Fjárfestingar Íslandspósts of miklar í fyrra

Fjár­hags­vandi Íslands­pósts stafar af of kostn­að­ar­samri dreif­ingu pakka­send­inga frá útlöndum og sam­drætti í bréfa­send­ingum hjá fyr­ir­tæk­inu. Vandi þess stafar þó einnig af of miklum fjár­fest­ingum í fyrra miðað við greiðslu­getu fyr­ir­tæk­is­ins.

Fjár­hags­vandi Íslands­pósts stafar meðal ann­ars af því að dreif­ing pakka­send­inga frá útlöndum hefur reynst félag­inu kostn­að­ar­söm og sam­dráttur í bréf­send­ingum hefur ekki feng­ist að fullu bættur með hækkun á gjald­skrá. Auk þess voru heild­ar­fjár­fest­ingar félags­ins á árinu 2018 of miklar miðað við greiðslu­getu þess. Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Íslands­póst til Alþingis sem birt var í dag.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir í við­brögðum sínum við skýrsl­unni að það blasi við að ef fyr­ir­tækið hefði ekki farið í fjár­fest­ingar á sama tíma og met­fækkun varð í bréfa­send­ingum og aukn­ing á tapi í pakka­send­ingum þá hefði félagið lík­lega haft getu til að fá lán hjá við­skipta­banka til að leysa bráða­lausa­fjár­vanda­fé­lags­ins í fyrra.

Fjárfestingar of miklar

[links]Íslands­póstur hefur átt við fjár­hags­erf­ið­leika að stríða. Fjár­hags­vandi fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2018 leiddi til þess að félagið stefndi í greiðslu­vanda þegar við­skipta­banki þess lok­aði fyrir frek­ari lán­veit­ingar. Í kjöl­farið fékk rík­is­sjóður heim­ild frá Alþingi í lok síð­asta árs til að veita fyr­ir­tæk­inu einn og hálfan millj­arð í neyð­ar­lán. Lánið var háð þeim skil­yrðum að fyr­ir­tækið standi við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og haldi þing­heimi upp­lýstum um gang mála.;

Fjár­­­­laga­­­­nefnd Alþingis sam­­­­þykkti í kjöl­farið jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­­­­­­­sýslu­út­­­­­­­tekt á starf­­­­semi Íslands­­­­­­­póst­s. Sú skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar var rædd á sam­eig­in­leg­um­fundi fjár­laga­nefndar og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um starf­semi Íslands­póst segir að á und­an­förnum árum hafi rekstr­ar­grund­völlur af kjarna­starf­semi Íslands­pósts veikst og reynst nauð­syn­legt að grípa til ráð­staf­ana þar að lút­andi. Að mati rík­is­end­ur­skoð­anda var ekki nægi­lega mark­visst brugð­ist við þeim breyttu aðstæðum fyrr en félagið var lent í fjár­hags­vanda.

Í fyrra var rekstr­ar­af­komu Íslands­pósts nei­kvæð um 287 milj­ónir króna. Í heild­ina var tap fyr­ir­tæks­ins á árunum 2013 til 2018 246 millj­ónir.Samkvæmt Rík­is­end­ur­skoðun stafar fjár­hags­vandi Íslands­pósts af því að dreif­ing­pakka­send­inga frá útlöndum hefur reynst félag­inu kostn­að­ar­söm, sam­dráttur í bréf­send­ingum hefur ekki feng­ist að fullu bættur með hækkun á gjald­skrá. Auk þess segir í skýrsl­unni að ásamt því hafi heild­ar­fjár­fest­ingar félags­ins á árinu 2018 verið of miklar miðað við greiðslu­getu þess. Til við­bótar bendir Rík­is­end­ur­skoðun á að fjár­fest­ingar í dóttur- og hlut­deild­ar­fé­lögum hafi svo ekki skilað félag­inu þeirri sam­legð og arði sem að var stefnt.

Bjartsýni einkennt rekstraráætlanir Íslandspósts

Fjárfest­ing Íslands­pósts í var­an­legum rekstr­ar­fjármunum jókst um 506 millj­ónir árið 2018 frá árinu á undan. Það skýrist einkum af fram­kvæmdum við póstmið­stöð og bygg­ingu pósthúss á Selfossi sem er svipað og gert var ráð fyrir í fjárfest­ingaáætlun. Stærsta fjárfest­ingin var í við­bygg­ingu við póstmið­stöð fyr­ir­tæk­is­ins við Stórhöfða í Reykjavík á árinu 2018. Í skýrsl­unni segir að hvat­inn að þess­ari fjárfest­ingu var sá að póstmið­stöðin var of lítil fyrir starf­sem­ina.

Fjármögnun fram­kvæmd­ar­innar með bankaláni var frágengin en gert var ráð fyrir að rekstur félags­ins skil­aði nægu fé til að standa undir öðrum fjárfest­ingum á árinu að frátal­inni end­urnýjun ökutækja. Sjóðstreym­is­yf­ir­lit ársins 2018 sýnir að hisnvegar fjármögnun fjárfest­inga gekk ekki eftir eins og ætlað var. Handbært fé frá rekstri var minna en félagið áætl­aði og því náði það ekki að standa undir nema litlum hluta fjárfest­inga með fjármögnun frá rekstri. Þá var 500 millj­óna lán frá ríkis­sjóði ekki hluti af tryggðri langtímafjármögnun.

Í skýrsl­unni segir að full­yrða megi að að tals­verð bjartsýni hafi í gegnum tíðina ein­kennt rekstr­aráætl­anir Íslandspósts. Frá árinu 2010 hefur alltaf verið gert ráð fyrir að rekst­ur­inn skil­aði hagn­aði eða að með­al­tali um 170 millj­ónir krona. Eins og fram hefur komið að ofan er langur vegur frá því að þessar áætl­anir félags­ins hafi gengið eftir.

Blasir við að félagið hefði líklega getað fengið lán hjá banka ef ekki hefði verið fyrir fjárfestingar

Í við­brögðum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut ríks­ins í Íslands­póst og skipar stjórn félags­ins, við skýrsl­unni segir að ráðu­neytið vilji benda á að fjár­fest­ingar hafi bein áhrif á sjóðs­streymi og að lán, sem félag hefur fjár­hags­legan styrk til að taka, megi bæði nota til fjár­fest­inga og til rekst­urs. „Því blasir við ef ekki hefði verið farið í fjár­fest­ingar á sama tíma og met­fækkun varð í bréfa­send­ingum og aukn­ing á tapi á pakka­send­ingum, þá hefði félagið lík­lega haft getu til að fá lán hjá banka til að styðja við bráða­lausa­fjár­vanda félags­ins sem fram kom 2018.“

Aftur á móti segir að ráðu­neytið hafi litlar for­sendur til að meta það hvort félagið hefði átt að sjá þessa þróun fyrir og tíma­setja fjár­fest­ingar á annan hátt og áhrif þess á rekst­ur­inn. Auk þess bendir ráðu­neytið á í þessu sam­hengi að þrátt fyrir aðvar­anir félags­ins um að félagið þyrfti að fá bætur fyrir alþjón­ustu­byrði, sé það ekki fyrr en um ára­mótin 2018-2019 sem félagið sækir form­lega um bætur til jöfn­un­ar­sjóðs alþjón­ustu og þá aft­ur­virkt fyrir árin 2013 til 2017.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið taldi ekki þörf á að leita eftir áliti Samkeppniseftirlitsins

Rík­is­end­ur­skoðun segir jafn­framt að for­stjóri félags­ins hafi leitt stefnu­mótun og rekstur félags­ins en stjórn félags­ins hefur lítið frum­kvæði haft að því að setja fram á stjórn­ar­fundum dag­skrár­efni til umræðu og ákvörð­un­ar­töku fyrr en stjórn­völdum var gert kunn­ugt um greiðslu­vanda félags­ins í ágúst 2018. Samráð við stjórn­völd og frum­kvæði stjórnar hafi auk­ist frá þeim tíma. „Að mati rík­is­end­ur­skoð­anda var ekki brugð­ist nægj­an­lega mark­visst og hratt við þeim breyttu aðstæðum sem hafa verið í rekstr­ar­um­hverfi Íslands­pósts ohf. fyrr en eftir að félagið lenti í fjár­hags­vanda,“ segir í skýrsl­unni.

Rík­is­end­ur­skoðun bendir jafn­framt á að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti hafi ekki talið þörf á að leita eftir áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um hvort lán­veit­ingin myndi skekkja sam­keppn­is­stöðu á póst­mark­aði. Rík­is­end­ur­skoð­andi bendir á að það heyri undir sam­keppn­is­yf­ir­völd að leggja mat á hvort umrædd lán­veit­ing hafi verið í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög.

Tillögur að endurbótum

Athugun rík­is­end­ur­skoð­anda bendir til að ákveðin óvissa hafi ríkt á milli sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um hvernig eft­ir­liti með fjár­hags­stöðu póst­rek­enda hafi verið háttað á und­an­förnum árum. Rík­is­end­ur­skoð­andi leggur áherslu á að bæði ráðu­neyti og eft­ir­lits­stofn­anir verði að túlka eft­ir­lits­heim­ildir og skyldur með sama hætti og að brýnt sé að allri óvissu í því sam­bandi verði eytt. Rík­is­end­ur­skoðun segir að mik­il­vægt sé að allir eft­ir­lits­að­ilar stundi eft­ir­lit út frá sam­eig­in­legri heild­ar­sýn

Rík­is­end­ur­skoðun segir jafn­framt að mik­il­vægt sé að stjórn­völd ráð­ist í mótun sér­stakrar eig­anda­stefnu fyrir Íslands­póst ohf. vegna síbreyti­legra aðstæðna og sér­tækra áskor­ana í rekstr­ar­um­hverfi félags­ins.

Auk þess þurfi stjórn­völd að tryggja rekstr­ar­grund­völl Íslands­pósts til lengri tíma. Í þessu sam­bandi bendir rík­is­end­ur­skoð­andi á þann mögu­leika í frum­varpi til nýrra heild­ar­laga um póst­þjón­ustu að gera þjón­ustu­samn­ing við alþjón­ustu­skylda aðila.

Auk þess segir stofn­unin að ástæða sé til þess að ráð­ast í marg­vís­legar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir innan Íslands­pósts, einkum hvað varðar að sam­eina enn frekar dreifi­kerfi bréfa og pakka í þétt­býli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár