Ræddu framtíðarsýn Íslandspósts

Rík­is­end­ur­skoð­andi fund­aði með fjár­laga­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun, en full­trúar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins voru einnig við­staddir, sem og stjórn Íslands­pósts.

Skúli Eggert Þórðarson
Skúli Eggert Þórð­ar­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi ræddi skýrslu emb­ætt­is­ins um Íslands­póst á fundi fjár­laga­nefndar og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun. Einnig voru við­staddir full­trúar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, sem og stjórn Íslands­pósts.

Skúli Eggert segir í sam­tali við Kjarnann að lagðar hafi verið fyrir emb­ættið spurn­ingar er varða fjár­hags­leg mál­efni Íslands­pósts, meðal ann­ars hvernig lána­fyr­ir­greiðsla, sem gerð var á sínum tíma af hálfu rík­is­ins, horfir við og hvort fjár­hagur félags­ins muni breyt­ast eftir lánið. Jafn­framt hvort þörf sé á slíkri aðstoð aftur og hver fram­tíð­ar­sýn félags­ins sé.

Rekstur félagsins breyst á undanförnum árum

Enn fremur var, að sögn Skúla Eggerts, farið yfir á fund­inum hvernig rekstur Íslands­pósts hefði breyst á und­an­förnum árum en þar mætti meðal ann­ars minn­ast á minnk­andi póst­magn á borð við bréfa­send­ingar. Pakka­send­ingar erlendis frá hefðu aftur á móti auk­ist og væri gjald fyrir þær bundið alþjóða­samn­ingum, svo Íslands­póstur fær ekki háar greiðslur fyrir það sem kemur til að mynda frá Kína. Rík­is­end­ur­skoð­andi bendir þó á að búið sé að leggja á ákveðið gjald fyrir send­ingar erlendis frá.

Hann segir að stjórn­völd verði að huga að því hvernig þau vilji póst­þjón­ustu á Íslandi í fram­tíð­inni.

Skýrslan birt eins og hún var lögð fyrir Alþingi

Skúli Eggert segir að meðal ann­ars hafi komið til tals á fund­inum í morgun að óskað hefði verið eftir því að lagður yrði trún­aður á upp­lýs­ingar er varða stjórn­endur Íslands­pósts í skýrsl­unni. Þingmenn hafi aftur á móti lýst yfir óánægju sinni með að félag í rík­i­s­eigu myndi falla undir slíkan trúnað.

„Við afhendum Alþingi allar upp­lýs­ingar,“ segir Skúli Eggert og bætir því við að skýrslan muni vera birt eins og hún var lögð fyrir þingið fyrir utan ákveðnar trún­að­ar­upp­lýs­ingar er varða ein­inga­upp­lýs­ingar sem snerta sam­keppn­is­mál.

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um skýrsl­una í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár