Tveir framkvæmdastjórar láta af störfum hjá Íslandspósti

Mikil hag­ræð­ing og kostn­að­arað­hald er framundan hjá Íslands­pósti. Fram­kvæmda­stjórum fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið fækkað úr fimm í þrjá.

Viða­miklar skipu­lags­breyt­ingar eru framundan hjá Íslands­pósti, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Fækkað hefur verið í fram­kvæmda­stjórn félags­ins og fram­kvæmda­stjórum fækkað úr fimm í þrjá. Samhliða því hafa ýmsar skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar innan fyr­ir­tæk­is­ins en sam­kvæmt for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins eru breyt­ing­arnar gerðar til draga úr rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tæk­is­ins og auka hag­ræð­ingu.

Mikil hagræðing og kostnaðaraðhald framundan

Fram­kvæmda­stjórar Íslands­pósts voru fimm en verða í kjöl­far breyt­ing­anna þrír á svið­unum þjón­ustu og mark­aður, fjár­mál og dreif­ing. Í til­kynn­ing­unni segir að Helga Sigríður Böðvarsdóttir muni áfram leiða svið fjármála, en nú þegar hafi verið ráðinn nýr fram­kvæmda­stjóri yfir sviði þjónustu og mark­aðar, sem áður hét mark­aðs- og sölusvið, og hefur sá aðili störf í sumar. Hörður Jónsson mun leiða dreif­ing­ar­svið, sem er sam­einuð pósthúsa og fram­kvæmda­svið en hann hefur hingað til stýrt pósthúsasviði. Samhliða þessu verður Sigríður Ind­riðadóttir nú titluð mannauðs­stjóri en var áður fram­kvæmda­stjóri starfs­manna­sviðs. [adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir að sam­hliða þessum breyt­ingum verður staf­ræn þjón­usta sett sér­stak­lega í for­gang hjá póst­inum. Auk þess verða flokkar innan fyr­ir­tæk­is­ins að sér­stökum ein­ing­ar­sviðum sem starfa þvert á rekstr­ar­sviðin undir nýju þróunar­sviði sem Birgir Jónsson, for­stjóri Íslands­pósts, leiðir. Birgir var ráð­inn for­stjóri Íslands­pósts í lok maí en Ing­i­­mundur Sig­­ur­páls­­son, fyrr­ver­andi for­­stjóri Íslands­­­pósts, sagði starfi sínu lausu sem for­stjóri þann 15. mars síð­ast­lið­inn eftir fjórtán ára starf.

Þá mun skrif­stofa Íslands­pósts flytja frá Stórhöfða yfir í skrif­stof­urými í Höfða­bakka. Í til­kynn­ing­unni segir að til­gangur þess­ara breyt­inga á skipu­riti Íslands­póst er að ná fram hag­ræð­ingu í rekstr­inum, búa til nýjan og öflugan hóp lyk­il­stjórnenda og auka og hraða upplýsinga­flæði innan fyr­ir­tæk­is­ins. Birgir segir að þessar breyt­ingar séu ein­ungis fyrstu skrefin og að framundan sé mikil hag­ræð­ing og kostn­að­arað­hald hjá fyr­ir­tæk­inu.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst birt í dag

[links]Í sept­­em­ber 2018 leit­aði Íslands­­­póstur á náðir rík­­is­ins og fékk 500 millj­­ónir króna að láni til að bregð­­­ast við lausa­­­fjár­­­skorti eftir að við­­­skipta­­­banki þess, Lands­­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­­ari lán­veit­ing­­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­­­ar, í des­em­ber, sam­­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­­arð til við­­­bót­­­ar.

Í umsögn Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoð­un­­­ar, um auka fjár­­­veit­ingu rík­­is­ins til Íslands­­­­­pósts, sagði að ­­­­­Rík­­­­­­is­end­­­­­­ur­­­­­­skoðun teldi að það væri óheppi­­­­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­­­­ar­­­­­­vanda Íslands­­­­­­­­­­­pósts þannig að til­­­­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­­­­is­­­­­­sjóði til félags­­­­­­ins. Þá væri orsök fjár­­­­hags­vand­ans alls ógreind, ekki lægi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­­­­rekstri eða starf­­­­semi innan einka­rétt­­­­ar.

Fjár­­­laga­­­nefnd Alþingis sam­­­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­­­­­sýslu­út­­­­­tekt á starf­­­semi Íslands­­­­­pósts. Sú skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar verður opin­beruð í dag að loknum sam­eig­in­legum fundi fjár­laga­nefndar og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár