Íslendingar kaupa sífellt meira á alþjóðlegum netverslunardögum

Gífurleg aukn­ing hefur orðið í fjölda póst­send­inga hjá Póstinum í kjöl­far stóru alþjóð­legu net­versl­un­ar­dag­anna á síð­ustu árum. Alls hefur fjöldi inn­lendra send­inga auk­ist um 140 pró­sent frá árinu 2015.

Pexels
Pexels Mynd: Pexels

Mikil aukn­ing hefur orðið í fjölda inn­lendra send­inga sem koma til Póstsins í kjöl­far alþjóð­legu net­versl­un­ar­dag­anna Singles Day, Black Friday og Cyber Monday á síð­ustu árum. Á hverju ári bæt­ist í fjölda þeirra net­versl­ana sem taka þátt í þessum dögum og bjóða upp á mikla afslætti.

Í ár var 43 pró­sent aukn­ing í póst­send­ingum á milli ára og býst Póst­ur­inn við áfram­hald­andi þróun í þessa átt á kom­andi árum. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá Póstinum.

Íslendingar versla meira á netinu en áður

[links]Innlend og erlend net­verslun er sífellt að verða stærri þáttur í verslun lands­manna. Frá árinu 2013 til árs­ins 2017 sjöföld­uð­ust send­ingar til lands­ins frá útlöndum. Mikinn fjöldi þeirra póst­send­inga má rekja til Kína en alls hefur þeim send­ingum fjölgað um 202 pró­sent á árunum 2014 til 2018.

Árið 2017 keyptu Íslend­ingar vörur frá erlendum net­versl­unum fyrir 4,3 millj­arða króna, sam­kvæmt toll­skrán­ingu frá Embætti toll­stjóra og toll­af­greiðslu Íslands­pósts. Sam­an­borið við kaup frá inn­lendum net­versl­unum fyrir 8,8 millj­arða á sama tíma.

Í skýrslu Rann­sókn­ar­set­urs versl­unar um íslenska net­verslun kemur fram að sá vöru­flokkur sem Íslend­ingar keyptu mest af frá erlendum net­versl­unum 2017 voru föt og skór. Á milli ára juk­ust fata­kaup frá erlendum fata­versl­unum um 31,4 pró­sent, ef bornir eru saman síð­ustu árs­fjórð­ungar 2016 og 2017. [adspot]

Þessir stóru alþjóð­legu versl­un­ar­dagar eiga hlut í þess­ari aukn­ingu en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ing­unni Póstins hefur fjöldi inn­lendra send­inga sem koma til þeirra í kjöl­farið þess­ara þriggja stóru net­versl­un­ar­dög­unum auk­ist um 140 pró­sent frá árinu 2015.

Sesselía Birg­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu- og mark­aðs­sviðs Póstsins, telur að þetta sé bara byrj­unin í þess­ari miklu aukn­ingu í fjölda send­inga í kringum þessa til­boðs­daga og að net­verslun hér á landi eigi enn tölu­vert inni.

Gagnrýna háan kostnað vegna erlendra sendinga

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru sam­þykktar breyt­ingar á lögum um póst­þjón­ustu sem heim­il­uðu Póstinum að inn­heimta svo­kallað enda­stöðva­gjald. Í kjöl­farið hækk­aði mót­töku­gjald erlendra póst­send­inga til muna. Samkvæmt umfjöllun Neyt­enda­sam­tak­anna um málið kostar nú að lág­marki 850 krónur að fá send­ingar fá Evr­ópu­löndum og 1.050 krónur að lág­marki fyrir send­ingar frá löndum utan Evrópu.

Neyt­enda­sam­tökin mót­mæltu frum­varp­inu á sínu tíma. Í umsögn sam­tak­anna um frum­varpið var því mót­mælt að gjaldið yrði lagt á herðar neyt­enda án þess að fyrir lægi grein­ing á því hver kostn­aður vegna erlendra send­inga væri í raun. Neyt­enda­sam­tökin hafa ítrekað óskað eftir gögnum sem liggja til grund­vallar enda­stöðvagjöld­unum, en for­stjóri Íslands­pósts hefur svarað því til að þau séu ekki til. Samtökin hafa bent Íslands­pósti og umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis að það brjóti í bága við 17. grein póst­þjón­ustu­laga enda eigi gjöldin að byggja á raun­kostn­aði við að veita þjón­ust­una.

Samtökin hafa jafn­framt beint mál­inu til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA þar sem sam­tökin telja að gjaldið gæti brotið í bága við EES samn­ing­inn. Málið er nú til skoð­unar hjá ESA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár