Þórdís Kolbrún: Fólk borðar ekki verðbólgu eða vaxtahækkanir

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sagði í pontu Alþingis í dag að henni fynd­ust laun hinna lægst laun­uðu að sjálf­sögðu ekki full­kom­lega rétt­lát en að þró­unin væri á veg­ferð ein­hvers konar rétt­lætis.

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir
Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sat fyrir svörum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði hana hvort henni fynd­ust kröfur ræst­inga­fólks eðli­legar og hvort von væri á frek­ari til­lögum frá rík­is­stjórn­inni varð­andi kjara­mál.

Hún sagði það vera kunn­ug­legt stef að fólk borð­aði ekki með­al­tölin og exel-skjölin en bætti því við að fólk borð­aði ekki heldur óstöð­ug­leika. „Fólk borðar ekki heldur verð­bólgu eða vaxta­hækk­anir,“ sagði hún.

Þordís Kolbrún sagði að ef hún væri spurð hvort henni fynd­ist laun hinna lægst laun­uðu full­kom­lega rétt­lát þá myndi hún svara: Að sjálf­sögðu ekki. „Það er ekki til það sam­fé­lag í þessum heimi þar sem lægst laun­uðu lifa við mjög öfl­ugt og mikið rétt­læti. En þá þarf að horfa á á hvaða veg­ferð höfum við verið. Þegar við skoðum – og það má kalla það með­al­töl sem eng­inn étur en ég kýs að kalla það stað­reyndir og við hljótum að tala út frá stað­reyndum – upp­safn­aða raun­á­vöxtun ráð­stöf­un­ar­tekna þá er það mynd sem sýnir ákveðið rétt­læti. Vegna þess að tekju­lægstu tíund­irnar hafa fengið meira hlut­falls­lega heldur en þeir tekju­hæstu. Þannig að þegar horft er á þá mynd þá hugsa ég að sú þróun sé á veg­ferð ein­hvers rétt­lætis,“ sagði ráð­herra í pontu Alþingis.

Alltaf erfitt að tala um þá tekjulægstu

Hún sagði að hana lang­aði að vera almenni­leg og geta sagt að henni fynd­ist að allir ættu skilið að fá hærri laun. „Hverri og einni mann­eskju finnst hún þess verðug og þannig á okkur að líða. Og þess vegna er alltaf erfitt að tala um þá hópa sem eru með lægstu launin.“

Þess vegna séu til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar sér­stak­lega beint að þessum hóp. „En það þarf ein­fald­lega að finna út hvert er svig­rúm til launa­hækk­ana og svo er það þess­ara aðila að finna út úr því hvernig því er skipt. Ég get ekki gerst dóm­ari í því og þess vegna hef ég líka sagt að það er óheppi­legt þegar maður getur ekki einu sinni lagt mat á raun­veru­legar kröfur af því að deilu­að­ilar ríf­ast líka um þær – hverjar þær eru,“ sagði ráð­herra.

Þarf líka að horfa til sveitarfélaganna

Logi spurði hana aftur hvort henni fynd­ust þessi lægstu laun vera sann­gjörn og hvort von væri á ein­hverju frá rík­is­stjórn­inni.

Þórdís Kolbrún sagði að svarið lægi í þeim til­lögum sem kynntar voru hér fyrir örfáum dögum. Þar væri tekið á ýmiss konar kerf­is­breyt­ingum í skatt­kerf­inu. „Við höfum þegar lagt tölu­vert meiri fjár­muni í barna­bóta­kerfið og svo fram­vegis. Hér er sagt að það hefði átt að halda betur á spil­unum. Við erum samt með þá stöðu að hér ríkir lítið atvinnu­leysi, hér hefur kaup­máttur auk­ist og þegar fjallað er um mál sem snerta þessa hópa hvað mest þá er alveg aug­ljóst af allri umræðu að hús­næð­is­málin eru þar stór þáttur,“ sagði hún. Þess vegna væri sér­stök áhersla lögð á þá þætti í þessum til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar.

Hún telur þó að ekki eigi ein­ungis að horfa til rík­is­ins heldur einnig til sveit­ar­fé­lag­anna. „Þá má alveg velta því fyrir sér hvað sveit­ar­fé­lög í þessu landi og þá kannski sér­stak­lega Reykja­vík­ur­borg hefði getað gert öðru­vísi, hefði getað haldið betur á spilum til þess að það væru til fleiri íbúðir á mark­aðnum. En allar okkar aðgerðir miða sér­stak­lega að því að mæta þessum hópum,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár