Afnám bótaskerðingar gæti kostað 11,4 milljarða árlega

Afnám svo­kall­aðrar „krónu á móti krónu“ bóta­skerð­ingar vegna tekna öryrkja gæti kostað rík­is­sjóð 11,4 millj­arða íslenskra króna á ári hverju.

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata.

Ef hætt yrði að skerða fram­færslu­upp­bót „krónu á móti krónu“ vegna ann­arra tekna líf­eyr­is­þega gæti það kostað rík­is­sjóð 11,4 millj­arða krónu árlega. Þetta kemur fram í svari félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi.

Halldóra Mogensen þing­maður Pírata lagði fram fyr­ir­spurn til Þor­steins Víglunds­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, á Alþingi þann 29. maí síð­ast­lið­inn. Fyr­ir­spurnin sner­ist um hugs­an­legan kostnað rík­is­sjóð ef svokölluð „króna á móti krónu“ bóta­skerð­ing yrði afnumin.

Svar ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni birt­ist á vef Alþingis í dag, en sam­kvæmt því er ekki hægt að segja nákvæm­lega til um kostn­að­inn. Fram­færslu­upp­bætur eru á bil­inu 4.953-58.985 kr. á mán­uði, eftir því hversu gamlir örorku­líf­eyr­is­þegar voru þegar þeir voru fyrst metnir til 75% örorku og hvort þeir fá greidda heim­il­is­upp­bót eða ekki.

Ef miðað er við að við­bót við tekju­trygg­ingu yrði 58.986 kr. er kostn­aður vegna afnáms bóta­skerð­ingar þeirra öryrkja sem hafa aðrar tekjur áætl­aður 11.438 millj­ónir króna á ári hverju.

Enn fremur spurði Halldóra hver við­bót­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs yrði ef ein­ungis 60% allra tekna öryrkj­anna væri notuð til útreikn­ings fram­færslu­upp­bótar, en sam­kvæmt ráð­herr­anum myndi það kosta ríkið 14.500 millj­ónir króna á ári hverju. Sömu­leiðis var spurt hversu mik­ill kostn­aður fælist í því ef það giltu sömu útreikn­ings­reglur um sér­staka fram­færslu­upp­bót og um tekju­trygg­ingu, en ráð­herra svar­aði að hann gæti numið 6,6 millj­örðum króna á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár