Frítekjumörk húsnæðisbóta hækkuð afturvirkt

Frí­tekju­mörk fyrir hús­næð­is­bætur hafa verið hækkuð aft­ur­virkt frá upp­hafi þessa árs.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra.

Frí­tekju­mörk fyrir hús­næð­is­bætur hafa verið hækkuð með reglu­gerð frá Þor­steini Víglunds­syni, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Reglu­gerðin er aft­ur­virk og gildir frá upp­hafi þessa árs. Greiðslur hús­næð­is­bóta verða því end­ur­reikn­aðar og leigj­endur sem eiga rétt á meiru fá mis­mun­inn fyrir lok þessa mán­aðar.

Misræmi varð á milli fram­færslu­við­miðs almanna­trygg­inga og frí­tekju­markanna í hús­næð­is­bóta­kerf­inu, þegar fram­færslu­við­miðið hækk­aði um 13,6 pró­sent um ára­mótin. Frí­tekju­mörkin fyrir hús­næð­is­bætur mið­uð­ust við þær upp­hæðir sem voru í gildi þegar lögin um hús­næð­is­bætur voru sam­þykkt um mitt ár í fyrra.

Með breyt­ing­unni verður frí­tekju­mark þess sem býr einn 3.373.000 krónur en var 3.100.000 krónur. Ef tveir eru í heim­ili verður frí­tekju­markið 4.461.064 krónur, en var 4.100.000.

Þor­steinn hafði áður til­kynnt að reglu­gerðin væri í smíðum þegar Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður VG, hafði meðal ann­ars spurt ráð­herr­ann um málið á Alþingi. Steinunn Þóra benti á að öryrkjar sem búa einir og hafa ein­ungis tekjur frá Trygg­inga­stofnun höfðu ekki lengur rétt á fullum hús­næð­is­bótum eftir að fram­færslu­við­miðið hækk­aði en frí­tekju­markið ekki. Þetta ætti við um fleiri hópa með lágar ráð­stöf­un­ar­tekjur, ekki bara öryrkja.

„Það gefur auga leið og er eðli­legt að vænta þess að ein­stak­lingur á lág­marks­bótum sem býr einn njóti fullra hús­næð­is­bóta. Þannig að þessu munum við breyta,“ sagði Þor­steinn í þing­inu í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár