Mætti vera meira af „harða hægrinu“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hvetur þing­menn til að sitja á „eilífri þörf“ til að hækka skatta og gjöld þegar kreppir að og fara „ein­fald­lega betur“ með þær tekjur sem ríkið heimtar af fólk­inu í land­inu.

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Diljá Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjall­aði um störf þings­ins, hvað vel væri gert og hvað ekki, undir sam­nefndum lið Alþingi í vik­unni en síð­asta þing­fundi fyrir sum­ar­frí lauk aðfara­nótt fimmtu­dags.

„Það hefur verið mikil ánægja að vinna með ykkur og verða vitni að því frá fyrstu hendi hversu mikið alþing­is­menn þjóð­ar­innar brenna fyrir því að betrumbæta sam­fé­lagið okkar. Þeir vilja styðja við for­eldra sem missa barn, styðja við nýsköpun og styrkja stöðu lán­taka og leigj­enda. Þeim er annt um vel­ferð dýra og um umhverfið.

Alþing­is­mönnum er umhugað um geð­heilsu þeirra sem vinna við að hjálpa öðrum, vilja jafna stöðu fólks á vinnu­mark­aði og auð­velda og ein­falda aðgengi að tækni­frjóvg­unum,“ sagði hún í ræðu sinni.

Þingmenn auðvitað ekki alltaf sammála

Diljá Mist sagði að þing­menn væru auð­vitað ekki alltaf sam­mála og kannski sjaldn­ast, sér­stak­lega um leiðir að settu marki en þeim gengi gott til.

„Munurinn á hug­ar­fari þing­manna, hugs­un­ar­hætti og hug­sjónum kemur hins vegar vel í ljós þegar við ræðum fjár­mála­á­ætlun næstu ára hér á þing­inu. Þjóðin hefur glímt við næst­mesta efna­hags­á­fall seinni tíma og það er ljóst að aðgerðir hafa skilað árangri og efna­hag­ur­inn hefur tekið hratt við sér. Hins vegar stafar okkur ógn af verð­bólgu og versn­andi efna­hags­horfum í heim­inum. Hvernig eigum við að bregð­ast við því?“ spurði hún.

Þá sagði Diljá Mist að á þingi heyrð­ust raddir þar sem amast væri við skatta­lækk­unum und­an­far­inna ára, hækkun frí­tekju­marks og lækkun gjalda; aðgerðir sem stjórn­völd gætu sann­ar­lega hreykt sér af enda byggðu þessar for­tölur á hug­myndum um að sam­fé­lags­kakan væri óbreyt­an­leg stærð og ágrein­ing­ur­inn sneri aðeins að því hvernig ætti að skipta henni.

„Efna­hags­stjórn und­an­far­inna ára hefur hins vegar sann­ar­lega stækkað kök­una. Um það verður ekki deilt. Hins vegar mættu stjórn­völd standa sig mun betur þegar kemur að aðhaldi og hag­ræð­ingu. Þar mætti vera meira af harða hægr­inu og ég hvet þau til að sitja á eilífri þörf til að hækka skatta og gjöld þegar kreppir að og fara ein­fald­lega betur með þær tekjur sem við heimtum af fólk­inu í land­inu,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár