Kínverskir hakkarar komust yfir viðkvæm gögn úr bandaríska kerfinu

Kínverskir hakkarar komust yfir viðkvæm gögn úr bandaríska kerfinu, einkum persónulegar upplýsingar og leynilegar skýrslur um hin ýmsu mál. Þetta kemur fram í New York Times í dag, en málið má rekja um fimm ár aftur í tímann þegar yfirvöld í Banda­ríkjunum höfðu nokkra hakkara­hópa frá Kína undir eftirliti eftir að þeir voru staðnir að því að ná í upplýsingar frá orku­fyrirtækjum og stofnunum í Banda­ríkjunum.

Eftir því sem tíminn leið misstu yfirvöld af hluta þessara hópa, sem tókst að komast inn í viðkvæmar gagna­geymslur hins opinbera í Banda­ríkjunum.

Að því er fram kemur í umfjölluninni þá er ein ástæðan fyrir því að hökkurunum tókst að komast yfir gögnin sú, að öryggi aðgangs­orða starfs­manna var ófullnægjandi. Þannig fengu starfs­menn að nota aðgangs­orðið „password“ og einnig upphafs­stafi í nöfnum sínum.

Þetta gerði hökkurunum auðvelt fyrir við að brjótast inn í kerfin, en innbrotin eru nú til rann­sóknar hjá Alríkis­lögreglunni FBI.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár