Björn Leví: Bann við tjáningu skaðlegra en tjáningin sjálf

Tveir þing­menn Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins ræddu á þingi í dag hvort rétt­læt­an­legt væri að gera það refsi­vert að afneita hel­för­inni.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, óskaði eftir því að eiga orða­stað við Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um bann við því að afneita hel­för­inni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Eins og þing­menn og þjóð þekkja eflaust hefur slíkt mál verið lagt fram á þingi, bann og refs­ing við að segja heimsku­lega og jafn­vel skað­lega hluti. Liggur ekki hund­ur­inn þar graf­inn að slík tján­ing sé mögu­lega skað­leg? Það finnst sumum greini­lega, en ég er hins vegar á þeim sokk­unum að með­alið sé skað­legra, að bann við slíkri tján­ingu sé skað­legra,“ sagði Björn Leví.

Tilefnið var nýtt frum­varp sem lagt hefur verið fram á Alþingi þar sem segir að hver sá sem opin­ber­lega afneit­i, gróf­lega geri lítið úr, eða reyni að rétt­læta eða sam­þykkja þjóð­ar­morð sem framin voru á vegum þýska nas­ista­flokks­ins í síð­ari heims­styrj­öld­inni skuli sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum.

„Má sem sagt banna afneitun helfararinnar á þingi en ekki annars staðar?“

Vísaði Björn Leví í orð Brynjars þar sem hann sagði að nú hefðu það ekki ein­ungis verið „þjóð­ern­issós­í­alistar sem stund­uðu þjóð­ar­morð í stríð­inu og á árunum fyrir og eftir. Aðrir sós­í­alistar gáfu þeim ekk­ert eftir, til að mynda þeir sem stjórn­uðu gömlu Sov­ét­ríkj­unum.“

Sagði Björn Leví Brynjar ýja að því með kald­hæðn­is­legum tón að frum­varpið ætti kannski að taka ein­hverjum breyt­ingum þannig að öllum yrði refsað fyrir að fara með aug­ljósa þvælu.

„Ég furða mig á þessu frum­varpi eins og hátt­virtur þing­maður Brynjar Níelsson en það vakti með mér enn meiri furðu í gær þegar for­sætis­nefnd afgreiddi breyt­ingar á reglum um með­ferð þinger­inda þar sem bannað verður að birta umsagnir sem kunna að vera í and­stöðu við lög, góða reglu og vel­sæmi, en þær reglur voru settar í kjöl­far þess að umsögn barst alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þar sem sagt var að hel­förin hefði ekki gerst,“ sagði hann.

Sagðist Björn Leví ekki skilja þessa afstöðu vegna þess að Brynjar hefði stutt breyt­ingar á þessum reglum en hefði hins vegar verið and­vígur frum­varpi sem var efn­is­lega sam­bæri­legt. „Má sem sagt banna afneitun helfar­ar­innar á þingi en ekki ann­ars staðar? Er það kannski bara umfang refs­ing­ar­innar sem er vanda­málið? Vill hv. þing­maður sem sagt bara beita rit­skoðun til að koma í veg fyrir birt­ingu slíkra ummæla?“ spurði hann.

Segir þetta ekki sambærilegt

Brynjar tók til máls undir sama lið á þingi í dag og svar­aði Birni Leví. „Mér hefði fund­ist eðli­legra að for­seti sjálfur svar­aði um þetta. Í mínum huga er þetta ekki alveg sam­bæri­legt. Ég get haft mínar reglur á mínu heim­ili, hvað er við­haft þar og hvað er í sam­ræmi við við­mið og reglur. Það er mik­ill munur í mínum huga þegar rík­is­valdið, sem hefur þving­un­ar­vald, ætlar að beita refs­ingum til þess hugs­an­lega að koma í veg fyrir eitt­hvað sem gæti verið skað­legt, ein­hver tján­ing. Það er margs konar tján­ing skað­leg.“

Hann sagð­ist enn fremur sjálfur alltaf hafa barist gegn hvers kyns ofstæki og skipti engu máli í hans huga hvort menn kenndu sig við þjóð­ern­issós­í­al­isma eða alþjóða­hyggjusós­í­al­isma eða sós­í­al­isma sem er tengdur ákveðnum mönnum í for­tíð­inni, og ef menn gera lítið úr voða­verkum þeirra, sem margir gerðu í dag.

„Þá er lausnin ekki sú að beita þving­un­ar­valdi rík­is­ins og refs­ingu. Ég vil beita rökum. Hvað við höfum hér í þing­inu, hvað við ætlum að birta, er í mínum huga gjör­ó­líkt mál. Ég er ekki að mæla með því almennt að við beitum miklum þrýst­ingi eða rit­skoð­unum en við getum samt ákveðið í okkar félagi, í okkar hópi, hvernig við höfum slíka hluti.

En auð­vitað má alveg gagn­rýna þetta. Ég held að for­seti sjálfur gæti miklu betur svarað um þetta. En ég get alveg tekið undir það að við þurfum að hafa ein­hverjar sið­legar við­mið­anir um það hvað við birtum hér á þing­inu í þessum efnum sem öllum öðrum. Ég ætla ekki að fara að beita refs­ingum. Ég vil beita rökum almennt og þess vegna er ég í póli­tík, ég er að berj­ast við öfganna alla daga, meira að segja hér á þing­inu,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár