Viðreisn segist hafa rekið Sigríði Andersen til baka

Þing­maður Við­reisnar segir að ákvörðun Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra um að sveigja hjá nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar um val á dóm­ara í Lands­rétt hafi komið í kjöl­far þess að Viðreisn hafi rekið hana til baka á grund­velli kynja­sjón­ar­miða. Í kjöl­farið flutti Sigríður eig­in­mann sam­starfs­konu sinnar, sem var met­inn einna minnst hæfur, ofar á list­ann.

Viðreisn segist hafa rekið Sigríði Andersen til baka

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, varp­aði nýju ljósi á val Sigríðar Andersen á dóm­urum í Lands­rétt, á opnum fundi þing­flokks Við­reisnar í gær. 

Sigríður hefur verið gagn­rýnd harð­lega fyrir að fylgja ekki nið­ur­stöðum ópóli­tískrar hæf­is­nefndar, heldur ákveða að velja sjálf fjóra umsækj­endur á list­anum sem ekki þóttu meðal fimmtán hæf­ustu. Þar á meðal er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sam­flokks­manns hennar, og eig­in­maður fyrr­ver­andi sam­starfs­konu hennar á lög­manns­stofu til margra ára.

Hanna Katrín Frið­riks­sonSegir þing­menn Við­reisnar hafa hafnað lista hæf­is­nefndar vegna skip­unar dóm­ara í Lands­rétt.

Á opnum fundi Við­reisnar í gær rök­studdu þing­menn flokks­ins stuðn­ing sinn við val ráð­herra. Þar kom fram, í máli Hönnu Katrínar Frið­riks­son, þing­manns flokks­ins, að þing­menn Við­reisnar hefðu haft áhrif á valið.

„Það vorum við sem rákum ráð­herra til baka. Við hefðum ekki hleypt fyrri list­anum í gegn,“ sagði hún.

Þingmaður taldi valdið ráðherrans

Áður hefur Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, fært rök fyrir því í ræðu­stóli á Alþingi að þing­menn eigi ekki að koma að vali á dóm­urum. 

„Ef ég vil vísa málum frá er ég að segja ráð­herra að ég sé ekki ánægður með hans til­lögu. Hvort sem það eru nöfnin eða eitt­hvað annað í henni. En þar með er ég óneit­an­lega að hlut­ast til um hana. Það er bara svo ein­falt. Ég hlut­ast til um þá ákvörðun sem ráð­herra tekur. Og ég ein­fald­lega vil ekki hafa það vald vegna þess að ég ber ekki ábyrgð á þess­ari ákvörðun. Það er ráð­herra sem ber ábyrgð á ákvörð­un­inni og það er hans að taka hana,“ sagði Pawel í umræðum um málið. Þá vís­aði Pawel til for­dæma í Danmörku, þar sem ráð­herra hafi aldrei valið aðra en þá sem teld­ust hæf­astir. „Ráðherra sem er ábyrgur fyrir ákvörð­un­inni verður að fá að taka hana. Mér finnst það miklu betri upp­setn­ing á allan hátt. Tekið er fram að það hafi aldrei gerst í sögu Dan­merkur að ráð­herra hafi ein­hvern tím­ann til­nefnt ein­hvern sem ekki hefur verið met­inn hæf­astur. “

Segjast hafa hafnað á grundvelli jafnréttis

Þingmenn Við­reisnar greindu frá því á opna fund­inum í gær að það hefði verið á grund­velli jafn­rétt­is­sjón­ar­miða sem þeir vildu fara fram hjá vali hæf­is­nefndar, sem hafði valið tíu karl­menn og fimm konur. 

Við breyt­ingu Sigríðar á list­anum urðu kon­urnar sjö, en karl­arnir átta. Sigríður tók ekki undir það í við­tölum strax eftir ákvörð­un­ina að jafn­rétt­is­sjón­ar­mið hefðu legið að baki vali hennar, en vís­aði síðar til þess að það ætti við. Í við­tölum sagð­ist hún ekki hafa verið sam­mála því mati hæf­is­nefnd­ar­innar að 15 ein­stak­lingar væru „einir sem kæmu til greina“. Hún sagði til­efni til þess að dóm­ara­reynslan myndi vega nokkuð mikið í mat­inu. „Mér fannst vægi dóm­ara­reynslu ekki vera nægi­legt,“ sagði hún. Hún sagði ákvörðun sína ekki ólög­mæta. 

Meðal þess sem gerð­ist við breyt­ing­una var hins vegar að karl­maður, sem var met­inn 30. hæf­astur af 33 umsækj­endum, og minna hæfur en fimm aðrar konur, var val­inn meðal topp 15 umsækj­enda af ráð­herra. Maðurinn, Jón Finn­björns­son hér­aðs­dóm­ari, er eig­in­maður Erlu S. Árna­dóttur, eins eig­enda og starfs­manna lög­manns­stof­unnar LEX, þar sem Sigríður starf­aði í sjö ár, frá 2007 til 2015. Jón var val­inn fram yfir fimm aðrar konur sem taldar voru hæf­ari en hann. 

Að auki var, eins og áður sagði, eig­in­kona þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins færð upp list­ann af dóms­mála­ráð­herra úr Sjálf­stæð­is­flokknum og verður vænt­an­lega dóm­ari við Lands­rétt, nýtt milli­dóms­stig. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár