Úr bankanum í eyðimörkina með fjölskylduna

Kristján Sverr­is­son lét af störfum hjá Lands­bank­anum til að fylgja köllun um kristni­boð í Afríku. Hann hélt til Eþíópíu ásamt eig­in­konu sinni, Helgu Vilborgu Sig­ur­jóns­dóttur, þar sem þau bjuggu með fjögur börn í fimm ár við frum­stæðar aðstæður. Sonur hans varð alvar­lega veikur af ormum og kastaði upp blóði. Hann segir að óvel­komnum börnum sé jafn­vel kastað niður af klettum.

Úr bankanum í eyðimörkina með fjölskylduna
Yfirgaf öryggið Kristján og konan hans fengu köllun um kristni­boð í Afríku. Hann lét af störfum við bank­ann og fór út þar sem hann var fékk 40 þús­und krónur í mán­að­ar­laun árið 2007. Mynd: Kristinn Magnússon

Ég held að það komi mörgum á óvart að ég sé kristni­boði,“ segir Kristján hlæj­andi þar sem við sitjum á skrif­stofu hans hjá Samtökum íslenskra kristni­boða. Kristján segir að í æsku hafi hann haft ríka rétt­læt­is­kennd og gjarnan sett spurn­ing­ar­merki við yfir­valdið. „Ég er lítið fyrir að láta segja mér hvað á að gera og hvernig á að gera. Ég var fljótur upp og alltaf að rífa kjaft og koma mér í vand­ræði.“

Sextán ára ákvað hann að fara út í heim og safn­aði fyrir skipti­námi erlendis. Næstu árin var hann alltaf með annan fót­inn í Evrópu, var ansi víð­för­ull og lenti í ýmsum ævin­týrum. Að loknu stúd­ents­prófi hélt hann svo til Þýska­lands, þar sem líf hans átti eftir að taka nýja stefnu. 

Þar kynnt­ist hann stúlku sem gaf honum Biblíuna. Hann hóf lest­ur­inn, fyrst og fremst til að sýna fram á vit­leys­una, en það sner­ist heldur betur í hönd­unum á honum. „Í dag get ég ekki hugsað mér að fara í gegnum dag­inn án þess að lesa í Bibl­í­unni. Þangað sæki ég mína and­legu nær­ingu.

Síðan horfði ég á umhverfið og það hvernig fólk hagar lífi sínu og sá hvað það er lítið á mann­kynið að treysta. Ég horfði á sól­ina og stjörn­u­rnar og spurði þess­ara spurn­inga, hver er ég, hvaðan kem ég og hvað ger­ist þegar ég dey. Einu svörin sem ég fann voru í Guðs orði.“

Kynntist konunni á kristilegum fundi

Kristján ákvað að koma heim í við­skipta­fræð­ina og kláraði hana. Á þessum tíma hélt hann áfram að lifa þessu ver­ald­lega lífi og fara út með strák­unum. Trúnni hélt hann fyrir sig og mætti í messu í Hall­gríms­kirkju þar sem eng­inn þekkti hann. „Ég vissi alltaf að þetta væri ekki það sem Guð vildi að ég gerði en ég hafði engin tengsl við kristi­legt sam­fé­lag á Íslandi. Ekki fyrr en ég sá aug­lýs­ingu frá félagi kristi­legra stúd­enta og ákvað að fara þangað. Ég mætti snemma og fyrsta mann­eskjan sem ég sá er núver­andi eig­in­kona mín.“

Hann hafði reyndar séð til hennar áður. Þremur mán­uðum fyrr hafði hann setið einn á kaffi­húsi og flett blöð­unum þar sem hann rakst á við­tal við brosmilda stúlku sem sagði frá sjálf­boða­starfi í Afríku. „Ég man að ég hugs­aði með mér hvað hún væri fal­leg og góð. Síðan hugs­aði ég ekki meira um það, þar sem ég vissi engin deili á þess­ari stúlku.

Um leið og ég sá hana aftur kveikti ég, þótt ég sé almennt ekki mann­glöggur maður. Ég gat nátt­úr­lega ekki sagt henni það, en ári síðar vorum við gift og nú eigum við fimm börn.“

Köllun um kristniboð

Kvöldið sem þau náðu saman sagði hún honum frá köllun sinni um að fara til Afríku sem kristni­boði. Á sömu stundu vissi Kristján að hann vildi fara með henni. „Ég var til­bú­inn til að fara strax en hún þurfti að fara í gegnum fjögur ár og mik­inn til­finn­inga­rús­sí­bana til að gefa end­an­legt sam­þykki fyrir því. Á meðan var ég bara að bíða.“

Alls voru þau úti í fimm ár. Fyrst í tvö og hálft ár í höf­uð­borg­inni Addis Ababa og síðan á meðal frum­byggja í eyði­mörk­inni. Fyrsta verk­efnið var að læra tungu­málið, ahamarísku, sem er tungu­mál amhari þjóð­flokks­ins sem er herra­þjóðin í Eþíópíu, landi þar sem sjö­tíu þjóð­flokkar búa, hver með sitt tungu­mál og menn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár