Túristakóngarnir

Mik­il­vægt er að styrkja inn­viði ferða­þjón­ust­unnar svo Ísland geti tekið á móti fleiri ferða­mönnum. Á meðan þeir streyma til Íslands græða nokkrir ein­stak­lingar á tá og fingri. Þetta eru þeir stærstu í ferða­manna­iðn­að­inum, en þeir selja flug, gist­ingu, ferðir, lax­veiði og lunda­bangsa.

Ísland getur tekið við fleiri ferða­mönnum en styrkja þarf inn­viði ferða­þjón­ust­unnar er inn­takið í því sem við­mæl­endur Stund­ar­innar innan ferða­þjón­ust­unnar segja. Í úttekt Stund­ar­innar á stöðu nokk­urra vel þekktra, og ann­arra minna þekktra, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja kemur vel fram hve upp­gang­ur­inn í grein­inni hefur verið mik­ill á liðnum árum. Tekju­aukn­ingin á milli ára hefur verið um þriðj­ungur hjá mörgum fyr­ir­tækjum og staða þeirra hefur ger­breyst frá árinu 2010. Nægir þar að nefna Icelandair, Drífu, Íslands­hótel, Iceland Excursions og Reykja­vík Excursions og Kynn­is­ferðir.

Góðærið í ferða­þjón­ust­unni hefur gert mörg fyr­ir­tæki, og þá ein­stak­linga sem standa á bak við þau, fjáð á síð­ustu árum. Ekkert bendir til að næstu ár verði minni gósentíð innan ferða­mennsk­unnar en síð­ustu ár. Þvert á móti: Lík­leg­ast er að ferða­manna­fjöld­inn haldi bara áfram að aukast og sam­hliða því munu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin stækka og eig­endur þeirra hagn­ast meira. 

Stöðug fjölgun á milli ára

Á hverju ári koma stöðugt fleiri ferða­menn til lands­ins og hefur fjölg­unin verið frá tæp­lega 18 pró­sentum til 24 pró­senta á hverju ári frá 2010. Telur grein­ing­ar­deild Íslands­banka að tæp­lega 1.200 þús­und ferða­menn muni koma til lands­ins í gegnum Leifs­stöð árið 2015 sem er hækkun um 23 pró­sent á milli ára. Árið í ár er því talið verða fyrsta árið þar sem meira en milljón ferða­manna - rúm­lega þre­föld íbúa­tala Íslands - komi til lands­ins í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. 

Grein­ing­ar­deild Íslands­banka benti líka á það í nýlegri skýrslu að fyrir nokkrum árum hafi mark­miðið verið að fá eina milljón túrista til Íslands árið 2020 en þetta mark­mið mun nást í ár, 2015. Þess í stað segir grein­ing­ar­deildin hugs­an­legt að þessi tala verði frekar tvær eða þrjár millj­ónir árið 2020. 

Einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar, Skúli Mogensen, telur þrjár millj­ónir vera raun­hæft mark­mið og bendir á vænt­an­legar tekjur af slíkri tölu. „Ef hér væru 3 milj­ónir ferða­manna væru gjald­eyr­is­tekjur Íslands um 1.000 milj­arðar á ári. Eitt þús­und millj­arðar!“

Stærsta atvinnugreinin

Ferða­þjón­ustan er orðin stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein þjóð­ar­innar en í fyrsta skipti í fyrra fór hún upp fyrir sjáv­ar­út­veg­inn í tekju­sköpun. Í fyrra varð Icelandair líka stærsta fyr­ir­tæki lands­ins miðað við tekjur þegar það fór fram úr Marel. Ferða­þjón­ustan er að verða stærst í öllu á Íslandi í dag og má segja að hún hafi tekið við hlut­verki fjár­mála­starf­sem­innar eftir hrun íslenska banka­kerf­is­ins árið 2008. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár