Tómas lýsti yfir samábyrgð í tölvupósti til Macchiarinis

Plast­barka­málið er orðið að alþjóð­legu hneyksl­is­máli sem teygir sig frá Svíþjóð til Banda­ríkj­anna, Rúss­lands, Tyrk­lands og Íslands. Tveir íslenskir læknar eru aðilar að mál­inu sem og tvær virt­ustu stofn­anir lands­ins, Land­spít­ali Íslands og Háskóli Íslands. Tölvu­pósts­sam­skipti sýna að Tómas Guð­bjarts­son og Paolo Macchiarini töl­uðu saman um við­brögð við gagn­rýni á fyrstu plast­barka­að­gerð­ina á Andemariam Beyene.

Tómas lýsti yfir samábyrgð í tölvupósti til Macchiarinis
Hvað vissi Tómas og af hverju sagði hann ekk­ert? Tómas Guð­bjarts­son lýsti líðan Andemari­ams Beyene með öðrum hætti en Paolo Macchiarini gerði í Lancet-grein­inni og svo virð­ist sem rann­sókn­ar­nið­ur­stöður hafi sýnt að aðgerðin gekk ekki sem skyldi. Samt sagði Tómas ekk­ert um það opin­ber­lega. Mynd: KRISTINN INGVARSSON

„Þetta mál snertir ekki aðeins þig heldur okkur alla sem með­höf­unda. Mörg af svörum þínum hefðu getað verið orðuð betur,“ sagði Tómas Guð­bjarts­son, skurð­læknir á Land­spít­al­anum, í tölvu­pósti til ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis um mán­aða­mótin maí-júní í fyrra eftir að greint hafði verið frá því í sænska rík­is­sjón­varp­inu að grunur léki á að Ítalinn hefði gerst sekur um vís­inda­legt mis­ferli í rann­sóknum sínum á plast­börkum. 

Tómas er með­höf­undur Macchiarinis að grein sem birt var í lækna­tíma­rit­inu Lancet þann 24. nóv­em­ber árið 2011 sem lýsir fyrstu plast­barka­að­gerð­inni sem fram­kvæmd var í heim­inum, á Erít­reu­mann­inum Andemariam Beyene í júní árið 2011 og árangri þeirrar aðgerðar. Tómas var 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið undanfarið ár