Launa­kostn­aður um sjö pró­sent Launa­kostn­aður í álver­inu í Straums­vík er um sjö pró­sent af heild­ar­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Kaup á raf­magni eru hins vegar um einn fimmti hluti. End­an­legt mark­mið Rio Tinto gæti verið að reyna að end­ur­semja um verð á raf­magni. Mynd: Haukur Herbertsson / Flickr

Rio Tinto vill lækka launakostnað eftir að hafa skilað 380 milljarða króna hagnaði

Þrátt fyrir gríð­ar­legan hagnað á heims­vísu hefur Rio Tinto sett sér mark­mið um auk­inn nið­ur­skurð í kostn­aði. Þrýst­ingur berst frá höf­uð­stöðvum Rio Tinto til Íslands og veldur hörku í samn­ingum við starfs­fólk álvers­ins í Straums­vík. Rio Tinto vill lík­lega ekki loka álver­inu í Straums­vík en gæti viljað end­ur­semja við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Erlendir grein­endur hæla rekstri Rio Tinto og segja að fyr­ir­tæk­inu hafi gengið vel að lækka kostnað og mæla með hluta­bréfum þess til kaups. Þá var hagn­aður þess meiri á fyrsta helm­ingi árs­ins en gert hafði verið ráð fyrir, en Rio Tinto setti sér meiri nið­ur­skurð­ar­kröfur en áður.

Rio Tinto Alcan gefur ekki upp ávinn­ing fyr­ir­tæk­is­ins af þeirri hag­ræð­ingu sem fyr­ir­tækið telur fel­ast í þeim breyt­ingum á starfs­manna­haldi álvers­ins í Straums­vík sem leitt hefur til verk­falls í verk­smiðj­unni sem hófst mið­viku­dag­inn 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Verk­fallið er afleið­ing af því að Rio Tinto Alcan hefur viljað fá að semja um fá að not­ast í auknum mæli við verk­taka í starf­semi sinni í stað fast­ráð­inna starfs­manna til að lækka kostnað. 

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um hversu mikið Rio Tinto Alcan vilji ná niður launaskostn­aði álvers­ins út þeim rúm­lega 34 millj­ónum doll­ara sem þessi kostn­aður nam kemur fram að Rio Tinto hafi reiknað út þen­ann ávinn­ing að hann sé ekki gef­inn upp. „Við höfum áætlað ávinn­ingin af þessum atriðum en gefum þær áætl­anir ekki upp. Eðli máls­ins sam­kvæmt eru þær háðar ein­hverri óvissu en ljóst er að mögu­legur ávinn­ingur er mjög umtals­verður og svo sann­ar­lega er nauð­syn­legt fyrir fyr­ir­tæki sem horfir fram á tap­rekstur að geta sótt slíkan ávinn­ing, og það er líka mikið sann­girn­is­mál í ljósi þess að ISAL er ein fyr­ir­tækið á Íslandi sem býr við hömlur…“ segir í svar­inu frá Ólafi Teiti Guðn­a­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár