Mynd: Heiða Helgadóttir

Pólitík, mótmæli og forboðin ást

Blaða­konan Snærós Sindra­dóttir er skel­egg, ung kona, frjáls­lyndur femínisti með sterkar skoð­anir. Hún var aðeins tólf ára gömul þegar hún skráði sig í stjórn­mála­flokk og var um tíð mjög virk í gras­rót­ar­starfi flokks­ins. Ást­ar­sam­band hennar við kvæntan mann olli hins vegar spennu innan flokks­ins sem átti þátt í því að Snærós sagði skilið við póli­tík – í bili. Í sumar gift­ist hún þessum sama manni, Frey Rögn­valds­syni blaða­manni, og saman eiga þau tveggja ára dóttur, Urði Völu. Snærós ræðir hér um for­boðnar ástir, mót­mæli, hand­töku, kæru og skoð­ana­frelsið sem hún fann við að hætta í stjórn­málum.

„Ég er týpískt barn ungra for­eldra sem settu mér engin sér­stök mörk og ber þess merki. Pabbi hafði orð á því í ræðu í gift­ing­unni minni að þau hefðu verið svo ung þegar ég fædd­ist, 19 og 21 árs, að ég hefði mikið frekar alið þau upp. Það er að ein­hverju leyti rétt. For­eldrar mínir skildu síðan þegar ég var þriggja ára og ég flakk­aði á milli þeirra á tveggja vikna fresti. Eign­að­ist stjúp­for­eldra um alda­mótin og þegar ég var ung­lingur voru báðir for­eldrar mínir að hugsa um mjög ung börn, en ég er tíu til sautján árum eldri en systk­ini mín. Í þessu umhverfi verður til pláss til að haga sínum málum eins og maður vill og ég full­nýtti mér allar smugur. Það varð til rými til að eiga leynd­ar­mál.“

Menntaskólinn vonbrigði

Snærós Sindra­dóttir ólst upp í Vest­ur­bænum, gekk í Haga­skóla og var að eigin sögn upp­á­tækja­samur ung­lingur. Hún er dóttir Helgu Völu Helga­dóttur, lög­manns og fyrr­ver­andi frétta­konu á RÚV, og Sindra Freys­sonar, rit­höf­undar og blaða­manns. Snærós var hins vegar undir áhrifum frá stjúppabba sínum, Grími Atlasyni, þegar hún skráði sig í Vinstri græna aðeins tólf ára gömul. „Stjórn­málin voru mjög oft til umræðu á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár