„Munum aldrei geta gert allt sem okkur langar til“

Upp­bygg­ing heild­stæðrar heil­brigðs­stefnu er Óttari Proppé heil­brigð­is­ráð­herra ofar­lega í huga. Hann segir að þó enn sé ekki unnið eftir tíma­settri áætlun muni línur skýr­ast þegar fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar liggur fyrir 1. apríl. Honum þykir gagn­rýni sem Björt fram­tíð hefur fengið á sig að und­an­förnu ekki að öllu leyti sann­gjörn og segir flokk­inn og Viðreisn hafa tengt sig saman eftir kosn­ingar til að forð­ast að verða að póli­tísku upp­fyll­ing­ar­efni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Munum aldrei geta gert allt sem okkur langar til“

Nær tveir mán­uðir eru liðnir frá því að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar tók við völdum. Í stjórn­ar­sátt­mála hennar voru heil­brigð­is­mál sett í for­gang. Það eru því miklar vænt­ingar gerðar til nýs heil­brigð­is­ráð­herra, Óttars Proppé, sem tekur hlý­lega á móti blaða­mönnum og ljós­mynd­ara Stund­ar­innar í höf­uð­stöðvum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í Skóg­ar­hlíð. Tómleg skrif­stofan hans ber það þó með sér að hann er enn að koma sér fyrir, lík­ast til líka enn að máta sig við nýtt hlut­verk og kom­ast inn í þann víð­feðma og mik­il­væga mála­flokk sem hann er nú yfir og allir lands­menn hafa skoðun á. Veggirnir eru hvít­mál­aðir og tómir. Eitt af ein­fald­ari verk­efn­unum á löngum lista ráð­herr­ans er einmitt að breyta því. Hann þarf að velja sér mál­verk á vegg­ina en seg­ist ekki enn búinn að ákveða hvaða verk eða eftir hvaða lista­menn hann vilji raða í kringum sig. Aðal­krafan sem hann setji sé að lista­verkin séu lit­rík.

Fyrsta spurn­ingin sem Óttarr fær er hvort það sé orðið ljóst hvert verði hans fyrsta stjórn­ar­frum­varp. Hann segir það enn óljóst en telur lík­legt að það verði ann­að­hvort frum­varp gegn mis­notkun stera eða frum­varp til breyt­inga á lögum um tóbaks­varnir að því er lýtur að raf­sí­gar­ettum og reglu­verki um þær. Hann segir ýmis verk­efni hafa verið í bið­stöðu í ráðu­neyt­inu seinni part síð­asta árs vegna póli­tískrar óvissu og langrar stjórn­ar­kreppu. Fyrstu dag­arnir hafi því farið í verk­efni sem „biðu á hurð­inni“ þegar Óttarr sett­ist í stól heil­brigð­is­ráð­herra.

„Rík­is­stjórnin er stofnuð á þessum skrýtna tíma á árinu. Nú erum við í miklu kapp­hlaupi í und­ir­bún­ingi fimm ára fjár­mála­á­ætl­unar og allt ráðu­neytið og allar stofn­anir eru á fullu að und­ir­búa það, svo hægt sé að leggja það fram fyrir 1. apríl, eins og er gert ráð fyrir í lögum. Þetta gerir það að verkum kannski að maður er ennþá að bregð­ast við stöð­unni í ráðu­neyt­inu, frekar en að koma hér inn alveg á milljón sem ger­andi,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár