Fimm ára áætlun Rík­is­fjár­mála­á­ætl­unin varpar ljósi á fram­tíð­ar­sýn stjórn­ar­flokk­anna í rík­is­fjár­málum. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Umdeild framtíðarsýn veldur titringi á stjórnarheimilinu: Hvað felst í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar?

Stjórn­ar­liðar vilja að menntun og heil­brigð­is­þjón­ustu verði áfram skor­inn þröngur stakkur næstu fimm árin og að fjár­fest­ing­ar­stig hins opin­bera verði áfram jafn lágt og á tímum krepp­unnar. Ekki var brugð­ist við við­vör­un­ar­orðum Seðla­bank­ans, ASÍ og rekt­ora allra háskóla á Íslandi.

Þings­á­lykt­anir um rík­is­fjár­mála­á­ætlun og fjár­mála­stefnu til næstu fimm ára voru sam­þykktar á Alþingi í gær með 29 atkvæðum.

Eygló Harðardóttir
Eygló Harð­ar­dóttir sat hjá þegar greidd voru atkvæði um rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, gat ekki hugsað sér að styðja málin. Hún sat hjá og gaf þá ástæðu að ekki væri hlúð nægi­lega að barna­fjöl­skyldum, öldruðum og öryrkjum í áætl­un­inni. Þunga­vigt­ar­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum ætl­ast til þess að Eygló segi sig úr rík­is­stjórn, Brynjar Níelsson þing­maður segir hana hafa verið með súkkulaði út á báðar kinnar allt kjör­tíma­bilið og  Bjarni Bene­dikts­son hefur líkt fram­göngu hennar við hegðun leik­skóla­barns. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sat einnig hjá en allir aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins sem við­staddir voru studdu málin. 

Rík­is­fjár­mála­á­ætl­unin er stefnu­yf­ir­lýs­ing og hefur ekk­ert laga­gildi. Ólíklegt er að byggt verði á henni næstu fimm árin nema núver­andi stjórn­ar­flokkar verði áfram við stjórn­völ­inn.

Í áætl­un­inni birt­ist hins vegar fram­tíð­ar­sýn stjórn­ar­flokk­anna í rík­is­fjár­málum til næstu fimm ára. Og í þessu liggur upp­lýs­inga­gildi hennar; ólíkt kosn­inga­bæk­lingum stjórn­mála­flokka felur hún í sér póli­tísk fyr­ir­heit og mark­miðs­setn­ingu á grunni ítar­legs rök­stuðn­ings og tölu­legra gagna. Af þessum ástæðum hefur Stundin fjallað ítar­lega um rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar und­an­farna mán­uði.

Í atkvæða­greiðsl­unni í gær var áætl­unin sam­þykkt efn­is­lega óbreytt og ekki tekið til­lit til við­vör­un­ar­orða frá aðilum á borð við Seðla­banka Íslands og Alþýðu­sam­bandið. Einu breyt­ing­arnar lúta að orða­lagi þar sem til­teknu mál­efna­sviði er lýst auk þess sem ein neð­an­máls­grein féll brott.

En hvað felst í fjár­mála­á­ætl­un­inni og hvers konar fram­tíð­ar­sýn birt­ist þar? Stundin birtir hér upp­færða útgáfu af frétta­skýr­ingu um rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina sem birt­ist fyrr í sumar.

Fjárfestingarstigi hins opinbera haldið lágu

Fjár­fest­ing­ar­stig hins opin­bera verður mjög lágt í sögu­legu sam­hengi næstu fimm árin ef rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar verður fylgt eftir. Flest þeirra fjár­fest­ing­ar­verk­efna sem eru á dag­skrá  – til dæmis ýmis sam­göngu­mann­virki, ný Vest­manna­eyja­ferja og bygg­ing Húss íslenskra fræða – voru ráð­gerð í tíð rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur en frestað þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók við, meðal ann­ars vegna þess tekju­taps sem rík­is­sjóður varð fyrir með breyt­ingu og lækkun sér­staka veiði­gjalds­ins. 

Í áætl­un­inni er full­yrt að frá árinu 2009 hafi „fjár­fest­inga­stigi rík­is­ins verið haldið of lágu“ og afleið­ing­arnar komi „víða fram, svo sem í ástandi inn­viða“. Sem kunn­ugt er stóð fjár­hagur hins opin­bera höllum fæti árið 2009 í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins. Þrátt fyrir að staða rík­is­sjóðs hafi nú stór­batnað að sjö árum liðnum er áfram gert ráð fyrir því að ríkið haldi að sér höndum í fjár­fest­ingum og upp­bygg­ingu inn­viða. 

Fjár­fest­ing A-hluta rík­is­sjóðs verður áfram aðeins 1,3 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á fyrri hluta tíma­bils­ins en hækkar upp í 1,5 pró­sent eftir því sem á líður. Allt í allt mun opin­ber fjár­fest­ing vaxa aðeins lít­il­lega á tíma­bil­inu, eða um lið­lega 3 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þetta þýðir að fjár­fest­ing­ar­stig hins opin­bera verður mjög lágt í sögu­legu sam­hengi og vel undir lang­tíma­með­al­tali und­an­far­inna 20 ára. Þannig er stefnt að því að ríkið dragi sig að miklu leyti í hlé og láti einka­að­ilum eftir sviðið hvað varðar fjár­fest­ingar í innviðum. Þetta kom skýrt fram í mál­flutn­ingi Bjarna Bene­dikts­sonar á Alþingi þann 3. maí síð­ast­lið­inn, þar sem hann sagði hið opin­bera ekki hafa svig­rúm til meiri fjár­fest­inga en raun ber vitni „meðal ann­ars vegna allra þeirra fjár­fest­inga sem eru fyr­ir­hug­aðar í einka­geir­anum“. 

Tíu ára hagvaxtarskeið?

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er gengið út frá við­var­andi hag­vexti til árs­ins 2021. Eins og Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, benti á í umræðum um málið á Alþingi yrði tíu ára sam­fellt hag­vaxt­ar­skeið án for­dæma í hag­sögu Íslands. „Það verður því alveg nýtt í okkar sögu ef þetta ræt­ist, en vonum það besta,“ sagði hann. 

Fram kom í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í lok apríl að á grunni ábyrgrar fjár­mála­stefnu yrði unnt að „auka svig­rúm fyrir áherslu­mál á mála­sviðum ráðu­neyt­anna um 42 millj­arða króna“ á því tíma­bili sem rík­is­fjár­mála­á­ætl­unin nær til. Engu að síður er stefnt að því að rík­is­út­gjöld lækki sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu á tíma­bil­inu.

Gerð verður árleg aðhalds­krafa upp á 1 pró­sent til allra mála­flokka nema heil­brigðis- og mennta­mála þar sem krafan verður 0,5 pró­sent og í almanna- og atvinnu­leys­is­trygg­ingum þar sem engin aðhalds­krafa er gerð. Með hag­ræð­ing­unni er ráð­gert að rík­is­sjóður spari sam­tals 3 millj­arða á ári, eða um 15 millj­arða yfir tíma­bilið. Aðhalds­krafan er rök­studd á þá leið að Seðla­bank­inn hafi þurft að bregð­ast við auk­inni þenslu með aðhaldi í pen­inga­stefn­unni und­an­farin miss­eri og mik­il­vægt sé að „fjár­mála­á­ætlun vinni með pen­inga­stefn­unni að efna­hags­stöð­ug­leika og að aðhalds­stig­inu í opin­berum fjár­málum verði við­haldið á kom­andi árum“. 

Skattalækkanir á þenslutímum

Í bland við yfir­lýs­ingar um að aðgerðir í rík­is­fjár­málum þurfi að styðja pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans og vera hag­sveiflu­jafn­andi frekar en hag­sveiflu­magn­andi, boðar rík­is­stjórnin áfram­hald­andi skatta­lækk­anir, en slíkar ráð­staf­anir eru til þess fallnar að auka pen­inga­magn í umferð og þar með þenslu í hag­kerf­inu. Í þessu sam­hengi má rifja upp að sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis frá 2010 um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna er sér­stak­lega fundið að því að stjórn­völd hafi ákveðið að lækka skatta á þenslu­tím­anum fyrir hrun í trássi við ráð­legg­ingar sér­fræð­inga.

Eins og Stundin hefur áður fjallað ítar­lega um hafa bæði skatt­breyt­ingar og skulda­nið­ur­fell­ingar sitj­andi rík­is­stjórnar komið best út fyrir efn­uð­ustu hópa íslensks sam­fé­lags.

Þetta á til að mynda við um breyt­ingu og lækkun rík­is­stjórn­ar­innar á sér­staka veiði­gjald­inu og þá ákvörðun að fram­lengja ekki auð­legð­ar­skatt­inn á stór­eigna­fólk og raf­orku­skatt­inn á stór­iðj­una. Um 2 pró­sent lands­manna greiddu auð­legð­ar­skatt þegar hann var og hét, raf­orku­skatt­ur­inn lagð­ist að mestu á fáein álfyr­ir­tæki og þau 20 fyr­ir­tæki sem nýta meiri­hluta fisk­veiði­kvót­ans hafa borið hit­ann og þung­ann af veiði­gjald­inu. Sú skatt­byrði sem létt hefur verið af þessum hópum á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili er álíka mikil og tekju­tap rík­is­sjóðs af öllum öðrum skatta­lækk­unum sam­an­lögðum. 

Að sama skapi er ljóst að tekju­hæstu hópar sam­fé­lags­ins fengu lang­mest út úr aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar til lækk­unar á höf­uð­stóli verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Til að mynda fengu 1.250 heim­ili sem borg­uðu auð­legð­ar­skatt árið 2013 skulda­leið­rétt­ingu. Þannig var sam­tals um 1,5 millj­örðum króna af skattfé varið til að greiða niður skuldir fámenns hóps stór­eigna­fólks sem einnig losn­aði undan auð­legð­ar­skatt­inum á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Um leið og allar þessar ráð­staf­anir hafa valdið tekju­tapi fyrir rík­is­sjóð hafa þær einnig átt þátt í að auka eft­ir­spurn og skapa þá þenslu sem nú veldur því að rík­is­stjórnin telur nauð­syn­legt að hið opin­bera haldi að sér höndum í inn­viða­fjár­fest­ingum og fjár­mögnun grunn­þjón­ustu. 

Háskólar undirfjármagnaðir
Háskólar und­ir­fjár­magn­aðir Rektorar allra háskóla á Íslandi telja að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar muni hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á háskóla­nám, vís­inda­starf, fram­þróun í atvinnu­sköpun og sam­keppn­is­stöðu Íslands til fram­tíðar.

Háskólar áfram undirfjármagnaðir

Samkvæmt þeim hag­vaxt­ar­spám sem rík­is­fjár­mála­á­ætl­unin byggir á mun verg lands­fram­leiðsla aukast um 11,57 pró­sent frá 2017 til 2021. Á sama tíma munu rík­is­út­gjöld aukast um 10,52 pró­sent. Á meðal útgjalda­liða sem ekki halda í við aukn­ingu vergrar lands­fram­leiðslu á tíma­bil­inu eru mál­efna­svið eins og háskóla­stigið, fram­halds­skóla­stigið og heil­brigð­is­þjón­usta utan sjúkra­húsa. 

Samkvæmt skýrslum OECD eru íslenskir háskólar veru­lega und­ir­fjár­magn­aðir í sam­an­burði við önnur ríki og fá um helm­ingi lægra fram­lag á hvern nem­anda en háskólar á Norð­ur­löndum. Þrátt fyrir þetta er ein­ungis stefnt að því í rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að útgjöld til háskóla­mála hækki um 6,5 pró­sent næstu árin. 

„Þrátt fyrir að skýrt sé sagt í stefnu og aðgerða­á­ætlun Vísinda- og tækni­ráðs að fram­lag á hvern háskóla­nema verði sam­bæri­legt við Norð­ur­löndin árið 2020, er ekk­ert í til­lögu til þings­á­lykt­unar um fjár­mála­á­ætlun næstu fimm ára sem bendir til þess að nokkur breyt­ing verði á fjár­mögnun háskóla hér á landi,“ segir í ályktun sem rekt­orar allra háskóla á Íslandi sendu frá sér á dög­unum.

„Menntun er lyk­ill að vel­sæld þjóða og rann­sóknir eru drif­kraftur fram­fara. Þess vegna er núver­andi til­laga að fimm ára fjár­mála­á­ætlun ekki ein­ungis von­brigði heldur mun hún, verði hún sam­þykkt óbreytt, hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á háskóla­nám, vís­inda­starf, fram­þróun í atvinnu­sköpun og sam­keppn­is­stöðu Íslands til fram­tíðar.“

Í umfjöllun fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar um fram­halds­skóla­stigið er sér­stak­lega vikið að því að fækkun nem­enda hafi skapað „fjár­hags­legt svig­rúm“ sem notað hafi verið til að hækka fram­lag á hvern nem­anda. Þess er hins vegar ekki getið í áætl­un­inni að umrætt svig­rúm má einna helst rekja til þeirrar ákvörð­unar Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra að skerða aðgang nem­enda eldri en 25 ára að bók­námi við fram­halds­skóla. Gert er ráð fyrir áfram­hald­andi fækkun fram­halds­skóla­nema og minnst sér­stak­lega á jákvæð efna­hags­leg áhrif stytt­ingar fram­halds­skól­ans vegna fjölg­unar ungs fólks á vinnu­mark­aði. 

11 prósenta krafan hunsuð

Í fyrra greindi Rúnar Vil­hjálms­son, pró­fessor í félags­fræði við hjúkr­un­ar­fræði­deild Háskóla Íslands, frá því í fréttum Rík­is­út­varps­ins að í sam­an­burði við OECD-ríki væri Ísland í 23. sæti hvað varðar hlut­fall heil­brigðis­út­gjalda af lands­fram­leiðslu. Hlut­fallið væri ein­göngu 8,7 pró­sent hér miðað við 11 pró­sent í Svíþjóð og 10,4 pró­sent í Danmörku. 

Þann 30. apríl síð­ast­lið­inn afhenti Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, stjórn­völdum rúm­lega 85 þús­und und­ir­skriftir frá Íslend­ingum sem kröfð­ust þess að rík­is­sjóður myndi auka fram­lög til rekst­urs heil­brigð­is­kerf­is­ins upp í 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar stendur til að hækka fram­lög til heil­brigð­is­mála upp í tæp­lega 200 millj­arða á ári, eða um 18 pró­sent að raun­virði yfir fimm ára tíma­bil. Þótt hækk­unin sé veru­leg er hún mjög fjarri því að koma til móts við þá kröfu sem hátt í 90 þús­und lands­menn hafa gert með und­ir­skrift sinni. Munu útgjöld rík­is­ins til heil­brigð­is­mála nema um 8 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu árið 2021 ef áætl­unin gengur eftir. 

„Til þess að halda í horf­inu með sömu þjón­ustu og við­haldi á hús­næði þyrfti Land­spít­al­inn 5,3 millj­arða til við­bótar á næsta ári. Fjár­mála­á­ætl­unin gerir ein­göngu ráð fyrir 2,3 millj­örðum króna, bæði til Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri, akkúrat þegar þörf Land­spít­al­ans er 5,3 millj­arðar króna,“ sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir í ræðu á Alþingi í gær. „Ef áætlun rík­is­stjórn­ar­innar verður að veru­leika er ljóst að þjón­usta Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri mun drag­ast saman.“ 

Kristján Þór Júl­í­us­son, heil­brigð­is­ráð­herra, svar­aði á þá leið að frá­leitt væri að tala eins og 5,3 millj­arðar til Land­spít­al­ans skiptu sköpum þegar veltan í heil­brigð­is­málum væri 190 millj­arðar. „Það er bara ekki eðli­legt að ræða þetta út frá þeim sam­an­burði. Ég full­yrði það að sam­kvæmt áætl­unum stjórn­valda, hvort sem það er í fjár­mála­á­ætl­unin eða grunni að fjár­lögum næsta árs, er ekki gert ráð fyrir því að þjón­usta Land­spít­al­ans eða Sjúkra­húss­ins á Akureyri muni drag­ast saman.“ 

Ekki komið til móts við kröfu Kára og 90 þúsundanna
Ekki komið til móts við kröfu Kára og 90 þús­und­anna Útgjöld til heil­brigð­is­mála munu lækka sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu sam­kvæmt rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Ekki dregið úr greiðsluþátttöku sjúklinga

Eins og fram kom í frétta­til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins þegar rík­is­fjár­mála­á­ætl­unin var kynnt er stefnt að því að fram­lög til heil­brigð­is­mála auk­ist um ríf­lega 30 millj­arða á fimm ára tíma­bili. Þegar launa­hækk­anir og verð­lags­upp­færslur eru teknar með í reikn­ing­inn er þetta um 60 millj­arða aukn­ing að því er fram hefur komið í máli fjár­mála­ráð­herra á Alþingi. „Það eru um 30 millj­arðar sér­stak­lega vegna rekstrar- og stofn­kostn­aðar. Stór hluti af því mun fara í að full­hanna og hefja fram­kvæmdir við spít­al­ann,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son. 

Í sömu ræðu stað­festi hann að ekki væri gert ráð fyrir sér­stökum fram­lögum til að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni. Umtals­vert hefur verið rætt um greiðslu­þátt­töku sjúk­linga und­an­farnar vikur vegna umdeilds frum­varps Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra sem felur í sér að kostn­aður af heil­brigð­is­þjón­ustu flyst milli sjúk­linga­hópa í stað þess að hið opin­bera leggi aukið fé inn í kerfið. Fjöldi fag­að­ila og hags­muna­sam­taka hafa varað ein­dregið við því að lögin verði sam­þykkt óbreytt. Í þeim felst að kostn­að­ar­þátt­taka flestra sjúk­linga verður áfram meiri á Íslandi heldur en á hinum Norð­ur­lönd­unum. 

Fjær norræna módelinu
Fjær nor­ræna mód­el­inu Stefnt er að því að færri fái barna­bætur og barna­bóta­kerfið fær­ist fjær því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Færri fái barnabætur

Stundin hefur áður greint frá því að rík­is­stjórnin hygg­ist end­ur­skoða íslenska barna­bóta­kerfið í sam­ræmi við til­lögur sem Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn vann fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Þannig er gert ráð fyrir að færri fái greiddar barna­bætur en áður, og sam­kvæmt rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni á kerfið að þjóna nær ein­göngu tekju­lægstu fjöl­skyldum lands­ins ólíkt til að mynda barna­bóta­kerfum hinna Norð­ur­land­anna þar sem bætur eru einnig mun hærri. 

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, gagn­rýnir harð­lega að leitað hafi verið ráða hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, sem þekktur er fyrir að krefja ríki um harða nið­ur­skurð­ar­stefnu, frekar en að leita fyr­ir­mynda í hinum Norð­ur­lönd­unum. „Barna­bætur á Íslandi eru afar lágar fyrir alla nema ein­stæða for­eldra. Það eru ein­ungis afar tekju­lág hjón, jafn­vel undir fátækt­ar­mörkum, sem fá ein­hverjar barna­bætur. Fyr­ir­mynda hefði frekar átt að leita til hinna Norð­ur­land­anna,“ skrifar hann á Facebook. 

Framlög hins opin­bera til barna­bóta munu hald­ast óbreytt að raun­virði næstu fimm árin. Hins vegar stendur til að auka fram­lag til Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs um 1 millj­arð króna á árunum 2017 til 2018 svo unnt sé að hækka hámarks­greiðslur úr sjóðnum. Í nefnd­ar­á­liti sínu um fjár­mála­á­ætl­un­ina fagnar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, áformum um hækkun hámarks­greiðslna en bendir á að áfram verði fæð­ing­ar­or­lof miklu skemmra hér á landi en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. „Ætti vita­skuld að vera mark­mið að lengja það til jafns við það sem þar ger­ist ef ætl­unin væri að starf­rækja hér nor­rænt vel­ferð­ar­kerfi. Slíkt mark­mið er ekki að finna í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni,“ skrifar hún. 

Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir að bætur almanna­trygg­inga hækki í sam­ræmi við með­al­launa­hækk­anir á vinnu­mark­aði. Þá kemur fram að unnið sé að breyt­ingum á almanna­trygg­inga­kerf­inu til ein­föld­unar og hags­bóta fyrir aldr­aða. Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, bendir á það í nefnd­ar­á­liti sínu um áætl­un­ina að sam­kvæmt frum­varpi sem félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur birt á vef ráðu­neyt­is­ins til umsagnar kosti breyt­ing­arnar rúma 5 millj­arða króna árið 2017 og alls 33 millj­arða króna á næstu 10 árum. Hins vegar sé ekki gert ráð fyrir þessum kostn­aði í fjár­mála­á­ætl­un­inni. 

Gera athugasemdir við stefnumið ríkisstjórnarinnar
Gera athuga­semdir við stefnumið rík­is­stjórn­ar­innar Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri skrifar undir umsögn Seðla­bank­ans ásamt Þórarni G. Pét­urs­syni aðal­hag­fræð­ingi.

Sveifluaukandi regla innbyggð í áætlunina

Í umsögn Seðla­banka Íslands um rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina var gerð athuga­semd við það fyr­ir­komu­lag að sér­stak­lega er kveðið á um að frum­tekjur rík­is­ins – það er skatt­tekjur og annað en vaxta­tekjur og óreglu­legir liðir – skuli ekki aukast umfram vöxt vergrar lands­fram­leiðslu á tíma­bil­inu 2017 til 2021. Full­yrðir Seðla­bank­inn að þetta mark­mið sé „sér­lega baga­legt“ og til þess fallið að auka hag­sveiflur fremur en milda þær.

„Stefnu­miðið virð­ist því fyr­ir­fram setja skorður við sjálf­virka sveiflu­jöfnun á tekju­hlið opin­berra fjár­mála og fela í sér að ef hag­vöxtur reyn­ist kröft­ugri skuli gefa eftir tekjur. Þetta er sér­lega baga­legt í ljósi þess að reynsla und­an­far­inna ára­tuga gefur vís­bend­ingu um að hin hag­sveiflu­tengdu áhrif séu í raun sterk­ari en hefð­bundnar aðferðir við mat á sveiflu­leið­réttum jöfn­uði hafa leitt í ljós og til þess fallið að ýta undir hag­sveifl­una fremur en milda,“ segir í umsögn­inni. „Frum­gjöld hafa á hinn bóg­inn til­hneig­ingu til að lækka í takt við auk­inn hag­vöxt, en til þess að mæta sjálf­virkri slökun sem felst í ofan­greindri tekju­reglu yrði að skera útgjöld enn frekar niður.“

Við með­ferð áætl­un­ar­innar á Alþingi var ekki brugð­ist við þess­ari gagn­rýni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár