Mynd: Kristinn Magnússon

Líf eftir barnsmissi á meðgöngu

Réttur for­eldra er tals­vert ólíkur eftir því hvenær barn deyr. For­eldrar sem fæða and­vana barn eiga rétt á þremur sam­eig­in­legum mán­uðum í fæð­ing­ar­or­lofi, en for­eldrar barns sem deyr skömmu eftir fæð­ingu eiga hins vegar rétt á fullu fæð­ing­ar­or­lofi. „Hið and­lega bata­ferli er af sama meiði hvort sem barnið lést í móð­ur­kviði eða stuttu eftir fæð­ingu,“ segir Páll Valur Björns­son, sem vill breyta kerf­inu.

„Við erum alveg að verða komin. Andvana drengur,“ segir sjúkra­flutn­inga­maður í síma á leið­inni upp á Land­spít­ala og á sama augna­bliki áttar nýbökuð móðir sig á því að barnið hennar er látið. Innst inni vissi hún það. Hún vissi að litlar líkur væru á að sonur hennar gæti lifað utan móð­ur­kviðs eftir ein­ungis tæpa 22 vikna með­göngu. Samt var átak­an­legt að heyra það sagt upp­hátt í fyrsta skiptið. Andvana drengur. 

Guðrún Þor­gerður Jóns­dóttir var 23 ára þegar sonur hennar, Gabríel Fannar, kom óvænt í heim­inn. Hún hafði ekki gert ráð fyrir að verða móðir svona ung. Planið var að klára nám og koma sér almenni­lega fyrir áður en hún myndi stofna fjöl­skyldu. En jafn­vel þótt frétt­irnar af til­von­andi barni hafi komið á óvart tók hún þeim fagn­andi og hún hlakk­aði til að takast á við nýtt hlut­verk. Settur dagur var 16. febr­úar 2014, en Gabríel Fannar kom í heim­inn 11. októ­ber 2013 og lést skömmu síðar.

Strákur á leiðinni

Guðrún segir með­göng­una hafa gengið brös­ug­lega fyrstu mán­uð­ina sem ein­kennd­ust fyrst og fremst af mik­illi morg­unó­gleði. Það var því mik­ill léttir þegar hún ákvað að segja frá með­göng­unni á Facebook þar sem hún var stödd á ferða­lagi í Banda­ríkj­unum. Stuttu eftir heim­kom­una fór hún í tutt­ugu vikna són­ar­inn. „Við hittum líka hjarta­lækni því ég og tví­bura­systir mín fædd­umst báðar með gat í hjart­anu, sem lag­að­ist sem betur fer af sjálfu sér. Yngri bróðir okkar var hins vegar með stærra gat og þurfti að fara til London í aðgerð. Unnusti minn, Helgi, var einnig með hjarta­galla þegar hann fædd­ist, þannig það var mik­ill léttir þegar hjarta­lækn­ir­inn sagði okkur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár