Mynd: Kristinn Magnússon

Langvarandi skortur á yfirsýn í heilbrigðismálum

Ísland er undir með­al­tali OECD ríkja þegar kemur að fjár­veit­ingum til heil­brigð­is­mála og í frjálsu falli á lista yfir bestu heil­brigð­is­kerfi Evrópu. Heil­brigð­is­ráð­herra segir skorta yfir­sýn í mála­flokknum og land­læknir hefur áhyggjur af slæmu aðgengi sjúk­linga að heil­brigð­is­þjón­ustu. Erfitt er að fá tíma hjá heim­il­is­lækni, aðgengi að nýjum lyfjum er ábóta­vant og biðlistar í skurð­að­gerðir alltof langir.

Þessa dag­ana fer fram und­ir­skrifta­söfnun meðal þjóð­ar­innar þar sem þess er kraf­ist að rík­is­stjórnin verji árlega ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu til rekst­urs heil­brigð­is­kerf­is­ins í stað 8,7 pró­sent eins og nú er gert. Rúmlega 55 þús­und manns hafa nú skrifað undir. For­sprakki söfn­un­ar­innar, Kári Stef­áns­son, full­yrðir að íslenskt heil­brigð­is­kerfi hangi á blá­þræði og geti ekki lengur sinnt hlut­verki sínu sem skyldi. 

Um leið og Kári hóf þessa her­ferð upp­hófust hins vegar miklar rök­ræður um tölur og töl­fræði, per­sónur og leik­endur. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra svar­aði Kára, fyrst á Facebook en síðan á blogg­inu sínu, og sagði vafa­samt að mæla heil­brigð­is­þjón­ustu aðeins út frá ákveðnu hlut­falli af lands­fram­leiðslu. Þá benti Pawel Bartoszek á að Kári væri að horfa til heild­ar­út­gjalda til heil­brigð­is­mála en rétt­ara væri að horfa til útgjalda opin­berra aðila. 

Sumir vilja meina að umræðan sé komin á villi­götur og að öllum megi vera ljóst að íslenskt heil­brigð­is­kerfi megi muna fífil sinn feg­urri. „Það er ekki hægt að reikna sig að þeirri nið­ur­stöðu að við höfum hlúð að heil­brigð­is­kerf­inu,“ segir Kári í sam­tali við Stundina.

0,1 prósent í innviði

OECD setur sjálft þann fyr­ir­vara með gögn­unum að breyt­ingar á því hversu mikið ríki ver í heil­brigð­is­þjón­ustu í hlut­falli við lands­fram­leiðslu geti bæði merkt breyt­ingar í útgjöldum til heil­brigð­is­mála eða vöxt í lands­fram­leiðslu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár