Mynd: Kristinn Magnússon

„Það þarf að stráfella þessi helvítis kvikindi“

Sverrir Agn­ars­son, for­maður félags múslima, segir að skrímsla­væð­ing múslima sé orðin að iðn­aði sem græðir á ótt­anum. Sjálfur verður hann fyrir hol­skeflu for­dóma og hót­ana í hvert sinn sem hann tjáir sig opin­ber­lega, en hér á landi grass­erar ný-ras­ismi í lok­uðum umræðu­hópum á net­inu, þar sem fólk tjáir sig óhikað um löngun til þess að útrýma múslimum eða beita þá ofbeldi. Stundin ræddi við fólk í þessum hópum.

María Henley er 70 ára gömul kona í Kópavogi sem liggur ekki á skoð­unum sínum á inter­net­inu. Skoðanir hennar eru ekki allra og þær hafa valdið tog­streitu innan fjöl­skyld­unnar. María er nefni­lega með­limur í Facebook-hópum eins og Mótmælum mosku á Íslandi. Hópurinn er leyni­legur en þar safn­ast saman ein­stak­lingar sem hafa andúð á múslimum og láta það í ljós.

Vill þetta ekki til landsins
Vill þetta ekki til lands­ins María seg­ist ekk­ert hafa á móti þeim múslimum sem eru þegar komnir til Íslands, en ótt­ast að með nýrri mosku streymi hingað morð­óðir brjál­æð­ingar.

Alls eru 499 með­limir í hópnum en umræðan virð­ist fyrst og fremst ganga út á það að deila frá­sögnum og mynd­böndum af ódæð­is­verkum múslima víðs vegar um heim­inn. Við þessar frá­sagnir spinn­ast svo umræður sem oftar en ekki ein­kenn­ast af heift. Það er til dæmis algengt að fólk annað hvort hvetji til ofbeldis gegn múslimum eða lýsi löngun sinni til þess að beita múslima ofbeldi, jafn­vel útrýma þeim. Páll Hilm­ars­son hefur fylgst með þessum hópum og safnað saman athuga­semdum sem þar birt­ast, en blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við þetta fólk. 

María er ein þeirra sem lætur ýmsi­legt flakka á net­inu. Börn hennar og barna­börn hafa beðið hana um að senda ekki á sig efni af net­inu, en hún lætur það ekki á sig fá. „Núna er ég frjáls,“ útskýrir María. „Ég gæti ekki talað svona ef ég væri enn á vinnu­mark­aði en mér fannst ég svo frjáls að geta sagt allt þegar ég hætti að vinna.“

Fjölskyldan ósátt

Aðspurð hvað valdi því að hún sé með­limur í þessum hópum seg­ist hún þekkja til múslima á Íslandi. Hún eigi bæði dótt­ur­dóttur og son­ar­dóttur sem gangi báðar í skóla með stúlkum sem eru íslams­trúar. „Þær segja báðar að þessar stelpur séu bara venju­legar eins og þær. Ég reyndi að koma þeim í skiln­ing um að það sé ósköp eðli­legt að þær séu venju­legar núna, en hvað þegar þær verða full­orðnar?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár