Hvernig ISIS varð til í bandarískum fangabúðum

Helstu leið­togar ISIS kynnt­ust í banda­rísku fanga­búð­unum Bucca í Írak. Fyrr­ver­andi her­for­ingjar úr her Saddams Hussein og öfga­fullir ísla­mistar náðu saman í fang­els­inu og úr varð ban­vænn kok­teill. Fyrr­ver­andi fangi líkir búð­unum við verk­smiðju sem fram­leiddi hryðju­verka­menn. Fangar skrif­uðu síma­númer hvers ann­ars innan á amer­ískar boxer nær­buxur.

Margir af helstu leið­togum Íslamska rík­is­ins, Isis, voru í haldi í banda­rísku fanga­búð­unum Bucca í suð­ur­hluta Írak og sumir þeirra kynnt­ust einmitt þar. Þeirra á meðal var leið­togi sam­tak­anna Abu Bakr al-Baghdadi, yfir­lýstur kalífi Íslamska rík­is­ins sem hefur verið lýst sem hættu­leg­asta hryðju­verka­manni sam­tím­ans. Fyrr­ver­andi fangi í Bucca og núver­andi liðs­maður Isis-sam­tak­anna hefur líkt fanga­búð­unum við verk­smiðju sem fram­leiddi hryðju­verka­menn. Þar hafi fang­arnir fengið skjól til þess að skipu­leggja sig og ólíkir hópar náð saman. Aðrir hafa lýst búð­unum sem eins­konar „al-Qaeda“ skóla þar sem öfga­fullir ísla­mistar fengu rými til að kenna hóf­sam­ari sam­föngum á sprengjur og sjálfs­morðsárásir. 

Yfir hund­rað þús­und ein­stak­lingar sátu í fang­els­inu á meðan það var starf­rækt. Sér­fræð­ingar á sviði her­mála, sagn­fræð­ingar, grein­ing­ar­að­ilar, fyrrum fangar og fanga­verðir í Bucca virð­ast margir sam­mæl­ast um að Isis sam­tökin eins og við þekkjum þau í dag hafi orðið til í fanga­búð­unum. Þar hafi öfga­væð­ing (e. radicalization) farið fram; bók­stafstrú­aðir ísla­mistar hafi náð hóf­sam­ari föngum í lið með sér og það beint fyrir framan nefið á Banda­ríkja­mönnum. Fanga­búð­unum var lokað á haust­mán­uðum 2009 og föng­unum sem eftir voru ýmist sleppt eða þeir færðir í hendur íra­skra yfir­valda. Það leið hins­vegar ekki á löngu þar til margir þeirra voru komnir saman á nýjan leik; nú utan veggja fang­els­is­ins. Þeir höfðu skrifað síma­númer hvers ann­ars inn á amer­ískar boxer nær­buxur; þær sömu og þeir gengu í á leið sinni út úr fang­els­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár