Blair við Bush: „Með þér, sama hvað“

Nið­ur­staða Chilcot-rann­sókn­ar­innar á þætti Breta í Íraks­s­tíð­inu er ljós. Tony Blair gerði mis­tök, hann leiddi Breta í stríð án þess að það væri orðið nauð­syn­legt og hann ýkti ógn­ina sem staf­aði af Saddam Hussein, þáver­andi ein­ræð­is­herra Íraks.

John Chilcot, sem leiddi rann­sókn­ina, sagði í morgun að ljóst væri að þeirra mati að Bretland hafi ákveðið að taka þátt í inn­rásinni í Írak áður en aðrar leiðir til lausnar máls­ins höfðu verið full­reyndar. Það var ekki síð­asta úrræðið að fara í stríð á þeim tíma­punkti sem það var gert. Chilcot segir einnig að Blair hafi vilj­andi gert meira úr ógn­inni sem staf­aði af ein­ræð­is­herr­anum þegar hann reyndi að afla stuðn­ings þing­manna við hern­að­ar­að­gerðir. Hann treysti um of á sjálfan sig og eigin sann­fær­ingu, frekar en að hlusta á sér­fræð­inga leyni­þjón­ust­unnar. Hann hafi hunsað við­var­anir um afleið­ing­arnar.

Bush hunsaði ráð Breta

George Bush, for­seti Banda­ríkj­anna, og stjórn­völd í Banda­ríkj­unum almennt huns­uðu ítrekað ráð­legg­ingar Breta um það hvernig ætti að með­höndla Írak eftir inn­rás­ina, þar með talið hvaða hlut­verk Sam­ein­uðu þjóð­irnar áttu að hafa og hvernig ætti að stjórna olíu­pen­ingum Íraka. Allri inn­rásinni er lýst í skýrsl­unni sem mis­heppn­aðri. Bretland hafði að auki engin áhrif í Írak eftir inn­rás­ina. Banda­ríkja­menn skip­uðu sendi­herr­ann Paul Bremer til að leiða stjórn lands­ins eftir inn­rás­ina og Bretland hafði eftir það nán­ast ekk­ert að segja, þrátt fyrir náið sam­band Blair og Bush.

Lofaði að vera með Bush „sama hvað“

Minn­is­blöð sem Blair sendi Bush varpa ljósi á náið sam­band þeirra, en minn­is­blöðin voru birt ásamt skýrsl­unni í morgun. Þau sýna meðal ann­ars að Blair og Bush ræddu opin­skátt sín á milli um það að koma Saddam Hussein frá völdum allt frá árinu 2001, aðeins mán­uði eftir árás­irnar 11. sept­em­ber.

„Ég efast ekki um að við þurfum að takast á við Saddam. En ef við förum í Írak núna myndum við missa araba­heim­inn, Rússland, lík­lega hálft Evr­ópu­sam­bandið og ég ótt­ast áhrifin af öllu þessu á Pakistan. Engu að síður er ég viss um að við getum búið til áætlun fyrir Saddam sem hægt er að fylgja eftir síðar,“ skrif­aði Blair í októ­ber 2001. Skömmu síðar, í des­em­ber 2001, skrifar hann að Írak sé vissu­lega ógn vegna þess að það hafi mögu­leika á að koma sér upp gjör­eyð­ing­ar­vopnum. „En ein­hver tengsl við 11. sept­em­ber og AQ (Al-Kaída) eru í besta falli mjög hæpin.“ Almenn­ings­á­litið á alþjóða­vísu væri lík­lega ekki með þeim, utan Bret­lands og Banda­ríkj­anna, þar sem ekki væri stuðn­ingur við hernað þótt fólk vildi án efa losna við Saddam.

Blair lagði til að málið yrði byggt upp á lengri tíma, og í milli­tíð­inni ætti að grafa undan Saddam.

Í minn­is­blaði í júlí 2002 seg­ist Blair svo vera með Bush, sama hvað, og leggur áherslu á að það að koma Saddam frá sé það rétta í stöð­unni.

Hann sagð­ist ekki geta verið viss um stuðn­ing þings­ins, flokks­ins síns, almenn­ings eða einu sinni allrar rík­is­stjórn­ar­innar. Hann leggur til að þeir end­ur­flytji sönn­un­ar­gögnin um að Írak hafi gjör­eyð­ing­ar­vopn, og bæti við til­raunum Saddams til að koma sér upp kjarn­orku­vopnum og bæti við tengslum við Al-Kaída. Tengslin við Al-Kaída séu mögu­leg, og þau myndu hafa mikil og sann­fær­andi áhrif í Bret­landi.

Herinn var illa búinn

Þá segir í skýrsl­unni að breski her­inn hafi verið illa búinn og illa hafi verið staðið að allri skipu­lagn­ingu. Varn­ar­mála­ráðu­neyti Bret­lands hafi skipu­lagt inn­rás­ina í flýti og hafi svo verið lengi að bregð­ast við ógnum í Írak, eins og notkun betri sprengja, sem urðu mjög mörgum her­mönnum að bana.

Að auki er leyni­þjón­usta Bret­lands harð­lega gagn­rýnd og sögð hafa gert mörg mis­tök. Upp­lýs­ingar um ætluð ger­eyð­ing­ar­vopn Saddams Hussein hafi verið gall­aðar, en þær voru not­aðar til grund­vallar ákvörð­un­inni um að fara í stríðið. Gengið var út frá því alla tíð að ger­eyð­ing­ar­vopnin væru til staðar en aldrei skoðað hvort Saddam hefði losað sig við þau, sem var svo raunin.

Engu að síður var það mat leyni­þjón­ust­unnar að Írak væri ekki mikil eða yfir­vof­andi ógn. Íran, Norður-Kórea og Líbýa voru öll talin stærri öryggisógnir bæði þegar kom að kjarn­orku­vopnum og efna­vopnum. Leyni­þjón­ustan taldi að það myndi taka Írak fimm ár að búa til vopn af þessu tagi.

Blair biðst afsökunar en samt ekki

Tony Blair hélt blaða­manna­fund í dag þar sem hann útskýrði sína hlið á mál­inu. Hann sagði að skýrslan sýndi að hann hafi tekið allar ákvarð­anir í góðri trú, og það yrði líka að horfa til þess hvort heim­ur­inn væri betri í dag ef Saddam hefði ekki verið komið frá völdum. Hann sjálfur væri þeirrar skoð­unar að svo væri ekki. Hann myndi ekki biðj­ast afsök­unar á því að Saddam Hussein hafi verið komið frá völdum. Hann myndi heldur aldrei við­ur­kenna að þeir fjöl­mörgu her­menn sem lét­ust í stríð­inu hafi dáið án til­gangs.

Þetta var „erf­ið­asta, eft­ir­minni­leg­asta og kvala­fyllsta ákvörðun sem ég tók á mínum tíu árum sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.“ Hann sagði að mat á ýmsu hafi reynst vera rangt eftir á, eft­ir­leik­ur­inn af inn­rásinni hafi verið erf­ið­ari en búist var við, og bæði blóð­ugri og lengri. Hann lýsti yfir sorg, eft­ir­sjá og baðst afsök­unar. „Ákvarð­an­irnar sem ég tók hef ég borið með mér í 13 ár og mun gera það áfram svo lengi sem ég lifi. Það verður ekki dagur í lífi mínu sem ég end­ur­upp­lifi ekki og hugsi aftur um það sem gerð­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íraksstríðið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár