Hver verður næsti forseti Íslands?

Katrín Jak­obs­dóttir hefur algera yfir­burði í stuðn­ingi þjóð­ar­innar í emb­ætti for­seta Íslands, sam­kvæmt skoð­ana­könnun Stund­ar­innar. Hún hefur nú gefið út að hún muni ekki bjóða sig fram. Þeir tveir síð­ustu ein­stak­lingar sem setið hafa á Bessa­stöðum hafa verið mjög ólíkir per­sónu­leikar, með gríð­ar­lega ólíkar áherslur.

Katrín Jak­obs­dóttir hefur algera yfir­burði í stuðn­ingi þjóð­ar­innar í emb­ætti for­seta Íslands, sam­kvæmt skoð­ana­könnun Stund­ar­innar. Þeir tveir síð­ustu ein­stak­lingar sem setið hafa á Bessa­stöðum hafa verið mjög ólíkir per­sónu­leikar, með gríð­ar­lega ólíkar áherslur. Vigdís Finn­boga­dóttir var nán­ast óum­deild, sam­ein­ing­ar­tákn jafn­réttis og húman­isma, sem sat alla tíð á frið­ar­stóli. Við af henni tók Ólafur Ragnar Grímsson, póli­tískur refur, mark­aðs­stjóri við­skipta­lífs­ins, sem afþýddi máls­skots­rétt­inn og sigldi í gegnum ólgu­sjó.

Enginn þeirra sex ein­stak­linga sem búnir eru að til­kynna fram­boð sitt til for­seta þykja lík­legir til að ná kjöri. Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun Stund­ar­innar, þar sem spurt var um stuðn­ing við 27 fram­komna og mögu­lega for­seta­fram­bjóð­endur, hefur Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, afger­andi mestan stuðn­ing í emb­ættið sem kosið verður til næsta sumar. 

Katrín hefur hins vegar hvorki boðið sig fram til for­seta né úti­lokað fram­boð. Af þeim 10 aðilum sem mestan stuðn­ing hlutu í könnun Stund­ar­innar var eng­inn einn þeirra sex sem nú hafa boðað fram­boð til for­seta. Sá fyr­ir­liggj­andi fram­bjóð­enda sem þótti helst koma til greina var Þor­grímur Þrá­ins­son, en einn af hverjum tíu valdi hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár