Hreiðar Már leystur úr haldi

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings, er laus úr haldi. Hann var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir rúmu ári síðan, en er kom­inn á áfanga­heim­ili.

Hreiðar Már leystur úr haldi

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings, hefur verið leystur úr haldi af Kvía­bryggju, eftir að hafa afplánað 13 og hálfan mánuð af fimm og hálfs árs fang­els­is­dómi.

Hann mætti á áfanga­heim­ilið Vernd rétt í þessu. Þar hefur hann fullt ferða­frelsi á dag­inn, en þarf að gista á áfanga­heim­il­inu.

Auk Hreiðars Más var Elín Sig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, leyst úr haldi í dag. Hún var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi vegna Ímon-máls­ins og hóf afplánun um miðjan febr­úar.

Laus vegna lagabreytingar

Ástæða þess að Hreiðar Már losnar eftir aðeins 13 mán­uði er laga­breyt­ing sem sam­þykkt var á Alþingi í mars. Samkvæmt henni leng­ist tími sem fangar eru undir raf­rænu eft­ir­liti og eig­in­leg fang­els­is­vist stytt­ist. Í stað þess að fangar fengju tvo og hálfan dag á mán­uði í raf­rænu eft­ir­liti fá þeir fimm daga í mán­uði. 

Hreiðar Már kemur á Vernd
Hreiðar Már kemur á Vernd Eftir að hafa afplánað rúm­lega 13 mán­uði af fimm og hálfs árs fang­els­is­dómi fyrir mark­aðs­mis­notkun er Hreiðar Már Sig­urðs­son laus úr haldi. Hér sést hann koma á áfanga­heim­ilið Vernd upp úr klukkan fimm í dag.

Hreiðar Már var dæmdur í febr­úar í fyrra, ásamt Ólafi Ólafs­syni, Sigurði Ein­ars­syni og Magnúsi Guð­munds­syni. Þeir þrír síð­ar­nefndu voru leystir úr haldi 7. apríl og hafa notið frelsis á dag­inn síðan. Brot þeirra var við­skiptaflétta sem sner­ist um að veita sjeik Al Thani lán á laun fyrir kaupum á 5 pró­senta hlut í Kaup­þingi til að gefa til kynna betri stöðu bank­ans en raun var. Um sýnd­ar­við­skipti var að ræða. 

Hreiðar Már á enn óleyst mál í dóms­kerf­inu. Bæði stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál Kaup­þings og svo­kallað Chesterfield-mál eru vænt­an­leg fyrir Hæsta­rétt.

Verði hann dæmdur gæti hann farið aftur til afplán­unar á Kvía­bryggju.

Elín Sigfúsdóttir
Elín Sig­fús­dóttir Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans kom á áfanga­heim­ilið vernd skömmu fyrir kvöld­mat.

Fangi af Vernd hótaði ofbeldi

Greint var frá því á dög­unum að Sigurður Ein­ars­son hefði hótað manni ofbeldi við 850 fer­metra sum­ar­bú­stað í Veiðilæk, sem var áður skráður eign Sigurðar. „Farðu svo ég þurfi ekki að berja þig,“ sagði Sigurður við veg­far­anda sem tók mynd­band af atvik­inu.

Sigurður sjálfur sló Íslands­met með gjald­þroti sínu 23. sept­em­ber í fyrra. Aðeins 0,02% fékkst upp í 254,4 millj­arða króna kröfur á hendur honum. Ekki er ljóst hvaða erindi hann átti við sum­ar­bú­stað­inn. Bústað­ur­inn er skráður eign félags­ins Rhea ehf, sem er í eigu JABB á Íslandi ehf,  sem er í eigu JABB í Lúx­em­borg. Félagið hér hefur enga starf­semi og er skráð á sama stað og Rhea. Fram­kvæmda­stjóri félag­anna er Þorkell Guð­jóns­son hjá Virtus fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Hann neit­aði  að gefa upp raun­veru­legan eig­anda bústað­ar­ins. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar verður atvikið skoðað hjá fang­els­is­mála­yf­ir­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár