Mynd: Vera Pálsdóttir

Heimilið er ekki bara hús

Guðrún Eva Mínervu­dóttir birtir brot úr nýrri skáld­sögu sinni um leið og hún segir frá heim­ili sínu og því sem skiptir hana mestu máli. Hún er heppin, segir hún, því hún á heim­ili og óskar öllum þess að mega búa við öryggi og frið. Vera Páls­dóttir ljós­mynd­ari sótti hana heim.

„Þá varð mér litið út um glugg­ann, á naktar greinar sem bar við hvítan himin, og ákvað að ákvörð­unin um að flytja hingað hefði verið rétt, eða í versta falli ekki röng. Þak yfir höf­uðið. Dapurleg feg­urð. Friður. Húsið var lítið en hátt til lofts í stærsta rým­inu sem gegndi hlut­verki eld­húss, stofu og borð­stofu. Til að spara pláss og fé höfðum við keypt skáp­hurðir úr Ikea í stað venju­legra hurða en þær voru renni­hurðir og úr gleri og gáfu heim­il­inu jap­anskan blæ – þótt það væri að öðru leyti sund­ur­gerð­ar­legt; gólfið flotað, hús­gögnin til­vilj­ana­kenndur sam­tín­ingur, potta­plöntur lifðu af drag­súg og skort á sól­ar­ljósi. Hátal­arar, magn­arar, gamlar mynda­vélar og önnur tæki voru áber­andi – líkt og við byggjum í stúd­íói. Við höfðum fengið okkur kamínu vegna þess að þegar vindur blés að norðan næddi kuld­inn inn í húsið og í vetur sem leið sátum við stundum á púðum við eld­inn. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár