Hálftíma kjarabót á ellefu árum ekki nóg

Á mánu­dag­inn eru konur hvattar til að leggja niður störf klukkan 14.38 og arka niður á Aust­ur­völl á sam­stöðu­fund. Vaskar konur og stöku karl­maður komu saman á Hall­veig­ar­stöðum um síð­ustu helgi og bjuggu til mót­mæla­skilti fyrir við­burð­inn. Stundin leit við til að kanna hvað helst brennur á þeim.

Hálftíma kjarabót á ellefu árum ekki nóg

Vinnu­degi kvenna ætti að ljúka á hverjum degi klukkan 14.38. Á þeirri mín­útu væru konur búnar að vinna fyrir sínum launum, fengju þær sömu laun greidd fyrir störf sín og karl­menn. Með­al­at­vinnu­tekjur kvenna eru nú 70,3 pró­sent af með­al­at­vinnu­tekjum karla. Á þeim hraða sem launa­munur hefur dreg­ist saman þyrftu konur að bíða fram til árs­ins 2068, í 52 ár, eftir því að fá sömu laun og karlar. 

Þessi fram­tíð­ar­sýn þykir sam­tökum launa­fólks og sam­tökum kvenna óásætt­an­leg og hafa því boðað til sam­stöðu­fundar á Aust­ur­velli undir yfir­skrift­inni kjara­jafn­rétti strax. Þetta verður í fjórða sinn sem blásið er til kvenna­frí­dags. Það var fyrst gert 24. októ­ber árið 1975. Þá lögðu þús­undir kvenna um land allt niður störf til að sýna fram á mik­il­vægi vinnu­fram­lags þeirra. Tíu árum síðar var Kvenna­smiðja opnuð dag­ana 24.–31. októ­ber, árið 2005 lögðu tug­þús­undir kvenna niður störf klukkan 14.08 og árið 2010 gengu þær út klukkan 14.25. Í ár á að pakka saman klukkan 14.38 en fund­ur­inn sjálfur hefst klukkan 15.15 á Aust­ur­velli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár