Geð­veikin Bjarni Bern­harður á að baki verri lífs­reynslu en flestir menn. Hann varð manni að bana í geð­klof­akasti en hefur síðan komið lífi sínu á réttan kjöl. Mynd: Kristinn Magnússon

Geðklofinn kemur án fyrirvara

Bjarni Bern­harður glímir við geð­klofa og hrika­legar afleið­ingar sjúk­dóms­ins. Eftir ára­tuga­bar­áttu hefur hann náð jafn­vægi. Hann gerir upp líf sitt í bók. „Ég hef lifað allt þetta og mér fannst að þetta þyrfti að kom­ast til fólks­ins,“ segir hann.

Lista­mað­ur­inn Bjarni Bern­harður hefur lifað lífi sem fæstir öfunda hann af. Um ára­tuga­skeið hefur hann barist við geð­klofa með allri þeirri skelf­ingu sem sjúk­dómnum fylgir. Neysla á sýru varð kveikjan að því að vekja sjúk­dóm­inn upp. Hörmu­leg­asta afleið­ingin varð sú að hann ban­aði fyrr­ver­andi leigu­sala sínum. Í fram­hald­inu var hann dæmdur óska­hæfur og sendur á réttar­geð­deild í Svíþjóð og seinna á Íslandi. Bjarni hefur nú skráð lífs­sögu sína og von­ast til að opna umræðu um geð­sjúk­dóma og skilja það betur sjálfur hvers vegna fór sem fór.

„Þessi bók er skrifuð fyrir mig og þig. Ég þurfti að koma reglu á líf mitt og skipu­leggja mig. Til þess að gera það varð ég að skrifa end­ur­minn­ingar mínar og raða niður í tíma­röð. Spurn­ingin sem ég leita svara við er af hverju þetta þurfti að koma fyrir þennan mann,“ segir Bjarni Bern­harður, sem er að gefa út lífs­sögu sína, Hin hálu þrep. Í bók­inni fjallar Bjarni með einkar opin­skáum hætti um líf sitt sem á seinni árum var und­ir­lagt af geð­veiki hans.

Heimilisofbeldi

Bjarni lýsir af ein­lægni ofbeldi í sam­böndum sínum og því hvernig geð­veikin hellt­ist yfir hann í fram­haldi af mik­illi neyslu á sýru og hassi.

„Í þessu iðukasti mann­lífs­ins er mann­eskjan alltaf að lenda utan­garðs. Það er akt­ú­elt mál að fjalla um geð­sjúk­dóma, vímu­efna­neyslu, ein­elti og hvernig barn fer á mis við menntun í göll­uðu skóla­kerfi. Þá er ég að fjalla um ofbeldi í hjóna­bandi, rétt­ar­kerfi, glæp og loks end­ur­reisn­ina. Þetta fer ég allt í gegnum og vil legga mitt til umræð­unnar sem oft hefur verið á villi­götum. Ég hef lifað allt þetta og mér fannst að þetta þyrfti að kom­ast til fólks­ins,“ segir hann.

Óhætt er að segja að ekk­ert er dregið undan. Bjarni Bern­harður fjallar um ofbeldi sitt gegn konu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár