Mynd: Shutterstock

Forræði fæðinga flutt aftur til mæðra

Konum sem fæða heima heils­ast betur og börn þeirra eru hraust­ari. Þær eru ánægð­ari með fæð­ing­ar­reynsl­una, og kljást síður við fæð­ing­ar­þung­lyndi. Þrátt fyrir þetta fæða aðeins tæp 2% íslenskra kvenna heima hjá sér, ekki hefur verið starf­rækt fæð­ing­ar­heim­ili á Íslandi í 20 ár, og fæð­ing­ar­stöðum á lands­byggð­inni fækkar, þvert á óskir ljós­mæðra og fæð­andi kvenna. Rætt er við fimm konur, í mis­mun­andi störfum, sem allar hafa jákvæða reynslu af fæð­ingum utan spít­ala.

Frá því mann­kynið komst á þann stað í þróun sinni að konur eign­uð­ust lif­andi afkvæmi með svo risa­vaxin höfuð að þau rétt sleppa út um mjaðma­grind­ina, hefur það verið mjög áhættu­samur gjörn­ingur. Hrein­læti, þekk­ing, reynsla, and­rúms­loft, allt hefur þetta áhrif á útkomu fæð­ing­ar­innar. Upp úr bylt­ingu lækn­is­fræð­innar, og með auk­inni vakn­ingu um hrein­læti og verkun manns­lík­am­ans, færð­ust fæð­ingar út af heim­ilum fólks og inn á spít­al­ana, í hend­urnar á læknum, hjúkruna­fræð­ingum og ljós­mæðrum.

Í byrjun 20. aldar voru fæð­ingar á sjúkra­húsum innan við eitt pró­sent í Evrópu. Þegar leið á öld­ina flutt­ust fæð­ingar jafnt og þétt inn á sjúkra­húsin þar sem greiður aðgangur var að fæð­ing­ar­læknum ef eitt­hvað amaði að. Um og upp úr miðri öld­inni fæddi meiri­hluti kvenna á sjúkra­húsum og undir lok hennar var næsta fátítt að konur fæddu heima. Sjúkra­hús­um­hverfið þótti að mörgu leyti aðgengi­legri vinnu­staður fyrir starfs­fólk og auð­veld­ara var að mennta ljós­mæður þar.

Með upp­lýs­ingu urðu afskipti rík­is­ins meiri af fæð­ingum, bæði vegna auk­innar með­vit­undar um mæðra- og ung­barna­dauða og stefnu þeirra varð­andi fólks­fjölgun. Við þetta varð aðkoma lækna að fæð­ingum algeng­ari og þar með „karla­vædd­ist“ hin opin­bera fæð­ing­ar­þekk­ing þar sem við­horfið var að fæð­ing væri sjúk­dómur, enda voru það áhættu­fæð­ingar sem þurftu þjón­ustu lækn­anna við. 

Afleið­ing þess­arar þró­unar var sú að dán­ar­tíðni nýfæddra barna féll stöðugt, sem og mæðr­anna. Það sem hins vegar virð­ist hafa gerst sam­hliða þessu er að margra alda þekk­ing á and­legu hlið fæð­ing­ar­innar, sem og ýmis verk­leg þekk­ing, sem gengið hafði konu fram af konu, hvarf að mestu. Líkaminn var álit­inn vél sem hægt var að skilja hvernig virk­aði, og þar af leið­andi væri best að setja þessa vél í hend­urnar á sér­fræð­ingum, þegar hún tæki upp á því að fjölga sér. 

Fæðingar heima jafnvel öruggari

Um síð­ustu alda­mót voru heima­fæð­ingar í sögu­legu lág­marki, um 0,7% árið 2000. Þeim fjölg­aði samt hægt en örugg­lega, og voru þær í 1,8% árið 2009, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár