Flóttinn frá Íslandi

Þrátt fyrir að Ísland sé eitt „besta land í heimi“ til að búa í sam­kvæmt ýmsum alþjóð­legum listum sýna tölur fram á fólks­flótta frá land­inu síð­ustu árs­fjórð­unga. Hvernig stendur á þessu og af hverju vilja margir Íslend­ingar frekar búa á hinum Norð­ur­lönd­unum? Stundin fékk fjóra brott­flutta Íslend­inga til að deila upp­lifun sinni og fjóra hag­fræð­inga til að greina vanda­málið.

Ísland er eitt „besta land“ til að búa í sam­kvæmt hinum ýmsu listum sem birtir eru á ári hverju þar sem búsetu­skil­yrði í löndum heims­ins eru mæld og greind með ýmis konar hætti. Samkvæmt einum list­anum, svoköll­uðum Social Progress Index, sem settur er saman af hag­fræð­ingnum Michael Porter við Harvard-háskóla, eru lífs­gæði - mæld út frá mögu­leikum manna til að full­nægja frum­þörfum sínum, sækja sér grunn­menntun og njóta jafnra tæki­færa - á Íslandi fjórða besta land í heimi að búa í. Einungis Noregur, Svíþjóð og Sviss eru á undan Íslandi á list­anum. 

Samkvæmt öðrum list­anum, lista Barna­heilla eða Save the Children, er Ísland þriðja besta land í heimi að búa í fyrir mæður - ein­ungis Noregur og Finnland eru ofar Íslandi á þeim lista. 

Ísland er svo í þrett­ánda sæti yfir bestu lönd í heimi sam­kvæmt lista Human Develop­ment Report, sem settur er saman af Sam­ein­uðu þjóð­unum. Yfir­leitt eru það bara Noregur og Svíþjóð sem eru örugg­lega á undan Íslandi á slíkum listum og svo Sviss. 

Fækkun íslenskra ríkisborgara þrátt góð lífsskilyrði

Þó Ísland sé ofar­lega á heims­vísu á þessum listum þá flytj­ast samt til­tölu­lega margir Íslend­ingar frá land­inu á hverju ári ennþá og hefur brott­flutn­ingur auk­ist á síð­ast­liðnu ári eftir að það dró veru­lega úr honum 2013. Fram að þeim tíma, í kjöl­far hruns­ins 2008, hafði verið umtals­verður brott­flutn­ingur frá Íslandi miðað við höfða­tölu. 

Árið 2009 fluttu 4.851 Íslend­ingur frá land­inu en í fyrra voru þeir 3.400. Mestur var brott­flutn­ing­ur­inn frá land­inu árið 2009 og hélst hann yfir 4.000 fram til árs­ins 2013 þegar hann minnk­aði niður í tæp­lega 3.200. 

Árið 2013 fór mis­mun­ur­inn á brott­fluttum og aðfluttum Íslend­ingum niður í 36; þá voru aðeins 36 fleiri Íslend­ingar sem fluttu burt frá land­inu en fluttu til baka. Hæst hafði þessi tala verið tæp­lega 2500 árið 2009 en lækk­aði hún jafnt og þétt á árunum þar á eftir og fór niður í tæp­lega 940 árið 2012 og nálg­að­ist svo núllið árið á eftir - 36. 

Í fyrra jókst mun­ur­inn á brott­fluttum og aðfluttum svo aftur í 760. Þrátt fyrir að brott­flutn­ingur íslenskra rík­is­borg­ara hafi minnkað mikið frá því sem var fyrst eftir hrunið þá er ennþá nokkur fjöldi Íslend­inga - 3.400 - sem kýs að flytja í burtu.

Mikill meiri­hluti brott­fluttra Íslend­inga flyst til hinna Norð­ur­land­anna, Dan­merkur, Sví­þjóðar og Noregs, eða um þrír af hverjum fjórum, og hefur það verið raunin síðan á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Sögulega séð, síð­ast­liðin 50 ár, hafa um 70 pró­sent íslenskra rík­is­borg­ara sem flutt hafa frá land­inu snúið aftur innan átta ára en þetta kom fram í skýrslu sem Ólöf Garð­ars­dóttir, pró­fessor á mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, vann fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið árið 2012. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands eru ekki til nýrri upp­lýs­ingar en þetta um end­ur­komu Íslend­inga frá öðrum löndum.

Fleiri fara en koma til baka

Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs flutt­ust 800 íslenskir rík­is­borg­arar frá Íslandi en á sama tíma flutt­ust 430 Íslend­ingar til lands­ins. Munurinn er því 370 manns í tölu brott­fluttra og aðfluttra. Þessi þróun hélt áfram á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins þegar 680 íslenskir rík­is­borg­arar flutt­ust frá land­inu en 560 snéru til baka. Munurinn var því 120 manns á þessu þriggja mán­aða tíma­bili. 

Af þessum 680 voru 480 sem fluttu til hinna Norð­ur­land­anna eða rúm 70 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum. Betri og betur launuð störf eru til staðar í þessum löndum þar sem lífs­skil­yrði og lífs­gæði eru svipuð eða betri en á Íslandi sam­kvæmt þeim fjöl­mörgu alþjóð­legu listum sem birtir eru á hverju ári. 

Hugs­an­lega kann efna­hags­staðan í Noregi hins vegar að vera að breyt­ast vegna lækk­aðs heims­mark­aðs­verðs á olíu en nú í lok ágúst var greint frá því að atvinnu­leysi í land­inu hefði ekki verið hærra í tíu ár og væri nú komið upp í 4,5 pró­sent. Versn­andi efna­hags­á­stand eða kreppa á Norð­ur­lönd­unum kann því eðli­lega að hafa áhrif á brott­flutn­ing Íslend­inga þangað en á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landflótti

Fluttur úr landi: Fær meira fyrir ellilífeyrinn í Berlín
ViðtalLandflótti

Fluttur úr landi: Fær meira fyrir elli­líf­eyr­inn í Berlín

Kristján E. Guð­munds­son tók upp á því á gam­als­aldri að rífa sig upp með rótum og flytj­ast til Berlínar. Hann hefur komið sér vel fyrir í höf­uð­borg Þýska­lands og sækir meðal ann­ars leir­list­ar­nám­skeið. Þá drekkur hann í sig menn­ingu borg­ar­innar og nýtur lista­lífs­ins. Ekki skemmir fyrir að hægt er að fá mun meira fyrir elli­líf­eyr­inn í þess­ari fjöl­menn­ing­ar­legu borg þar sem verð­lagið er allt að helm­ingi lægra en á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár