Mynd: Pressphotos

Fjársvelt samneysla og sögulegar óvinsældir

Sam­fé­lags­mynd Íslands er að gjör­breyt­ast undir rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Rík­is­stjórn, sem með réttu má kalla óvin­sæl­ustu rík­is­stjórn sög­unnar, hefur með aðgerðum sínum opin­berað áform sín um einka­væð­ing­ar­stefnu í heil­brigðis- og mennta­málum.

Sam­fé­lags­mynd Íslands er að gjör­breyt­ast undir rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Rík­is­stjórn, sem með réttu má kalla óvin­sæl­ustu rík­is­stjórn sög­unnar, hefur með aðgerðum sínum opin­berað áform sín um einka­væð­ing­ar­stefnu í heil­brigðis- og mennta­málum. Veg­tollar vegna vega­fram­kvæmda hafa verið boð­aðir og vopn­aðir lög­reglu­menn verða reglu­legir gestir á mann­fögn­uðum í sumar.

Um leið og rík­is­stjórnin rekur gríð­ar­lega aðhalds­sama útgjalda­stefnu full­yrða ráð­herrar og þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans að útgjöld rík­is­ins séu gríð­ar­lega mikil. „Það hef­ur orðið veru­leg aukn­ing á raunút­gjöld­um til LSH á und­an­förn­um árum og stefnt er að því að svo verði áfram,“ sagði Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, í við­tali við Morg­un­blaðið. Stað­hæf­ingar Þor­steins sam­ræm­ast alls ekki raun­veru­leik­anum. Hin meinta hækkun Þor­steins á rík­is­fram­lögum til Land­spít­al­ans hefur ekki átt sér stað frá árinu 2015. Þá full­yrti Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í jóm­frú­ar­ræðu sinni að rík­is­út­gjöld væru einna hæst á Íslandi. „Útgjöld rík­is­ins sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu eru eig­in­lega hvergi hærri meðal þró­aðra ríkja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár