Mynd: Kristinn Magnússon

„Ég vil ekki skattleggja fátækt“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, fór út í stjórn­mál til að berj­ast gegn mis­munun, órétt­læti, lög­leysu og fátækt.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, segir það mesta rang­læti sam­fé­lags­ins í dag að hér skuli vera fátæk börn sem ekki fái að njóta æsk­unnar. „Að hér skulu vera ein­stak­lingar sem líða það mik­inn skort að heil­brigð­is­þjón­usta, lyf og matur flokk­ist orðið til for­rétt­inda að fá að njóta,“ segir hún. 

 

 

Flokkur fólks­ins er nýr stjórn­mála­flokkur og á heima­síðu hans segir að hann muni berj­ast af hug­sjón fyrir þá sem hafa orðið fyrir órétt­læti, mis­munun, lög­leysu og fátækt. Þá segir að flokk­ur­inn hafi verið stofn­aður í kjöl­far umfjöll­unar um fátæk börn en flokk­ur­inn ætlar að útrýma fátækt og spill­ingu. Inga er sjálf 75 pró­sent öryrki, en á meðal stefnu­mála er að tryggja öllum 300 þús­und lág­marks fram­færslu, afnám verð­trygg­ingar, einn rík­is­rek­inn líf­eyr­is­sjóð, hækka virð­is­auka­skatt af ferða­þjón­ustu og fækka erlendum sendi­ráðum. Flokk­ur­inn er á móti Evr­ópu­sam­bands­að­ild og þá vill hann að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýr­inni. 

Fyrsta þing­málið sem Flokkur fólks­ins myndi leggja fyrir Alþingi 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár