Mynd: Kristinn Magnússon

„Samtal um lausnir í sátt er leið okkar“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill lækka tekju­skatt milli­stétt­ar­innar og færa Land­spít­al­ann. Hann segir það von­brigði að hafa ekki kom­ist lengra í að afnema verð­trygg­ing­una á kjör­tíma­bil­inu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir alla gagn­rýni eiga rétt á sér, þótt inni­haldið sé æði mis­mun­andi. „Það má gagn­rýna okkur fyrir að gera ekki allt sem við ætl­uðum okkur, en kjör­tíma­bilið er líka styttra en venja er,“ segir hann meðal ann­ars.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er elsti starf­andi stjórn­mála­flokk­ur­inn á Íslandi en hann fagnar hund­rað ára afmæli sínu í ár. Afmæl­is­árið hefur verið væg­ast sagt róst­ur­samt. Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­manns flokks­ins, var mót­mælt í kjöl­far þess að í ljós kom að for­sæt­is­ráð­herra átti félag í skatta­skjóli og tók Sigurður Ingi þá við sem for­sæt­is­ráð­herra. Mikil ólga var í flokknum fram að lands­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­asta mán­uði þegar Sigurður Ingi var síðan kjör­inn for­maður flokks­ins, en Sig­mundur Davíð sak­aði þann fyrr­nefnda um að hafa svikið lof­orð við sig með því að bjóða sig fram gegn honum. 

 

Sigurður Ingi seg­ist hins vegar ekki hafa lofað Sigmundi Davíð að bjóða sig 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár