Mynd: Kristinn Magnússon

„Stjórnmálaflokkarnir hafa verið of hallir undir sérhagsmuni“

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir órétt­láta skipt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda þjóð­ar­innar vera mesta rang­læti sam­fé­lags­ins í dag. Hann vill ná sátt um sjáv­ar­út­vegs­málin og afnema ein­okun MS.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir svikin lof­orð rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið lík­lega vera stærstu svik íslenskra stjórn­mála­flokka á síð­ari tímum. Hann seg­ist hafa farið út í stjórn­mál því gömlu flokk­arnir hafi virst ætla að standa vörð um núverndi kerfi á morgum sviðum. „Þetta er staðnað kerfi sem þarf að breyta til hags­bóta fyrir lands­menn og kom­andi kyn­slóðir,“ segir hann. 

 

 

Viðreisn er frjáls­lyndur hægri­flokkur spratt upp úr mót­mæl­unum vorið 2014 við ákvörðun Gunnars Braga Sveins­sonar, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um að slíta við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið án þess að spyrja hvorki þing né þjóð. Hópurinn að baki Viðreisn sam­anstendur að miklu leyti af fyrr­ver­andi sjálf­stæð­is­mönnum, höllum undir Evr­ópu­sam­bands­að­ild, og leggur mikla áherslu á að þjóðin fái strax að kjósa um hvort ljúka skuli við­ræðum um fulla aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Aðspurður hvort það væri mögu­leiki á að Viðreisn fari í rík­is­stjórn­ar­sam­starf án þess að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið segir Benidikt ein­fald­lega: Nei. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár