Blaðamannaverðlaun veitt - Magnús verðlaunaður fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Blaðamanna­verðlaun Íslands voru veitt í dag við hátíðar­lega athöfn í Perlunni, og var ljós­myndasýning blaða­ljósmyndara opnuð á sama tíma. Sunna Ósk Loga­dóttir, Morgun­blaðinu, fékk blaðamanna­verðlaun ársins fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flótta­menn og starfs­menn flóttamanna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Magnús Halldórsson, blaða­maður Kjarnans, var verð­launaður fyrir rannsóknar­blaða­mennsku ársins, vegna umfjöllunar um sölu Lands­bankans á eignar­hlutum sínum í Borgun.

Snærós Sindra­dóttir, blaða­maður 365 miðla, fékk verðlaun fyrir viðtal ársins, við Einar Zeppelin Hildarson, sem sagði frá erfiðri lífs­reynslu sinni og fjöl­skyldu hans.

Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, frétta­stofu RÚV, unnu til verðlauna fyrir umfjöllun ársins.

Þeir fengu verð­launin fyrir umfjöllun um flóttamanna­vandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónar­horni á björgunar­störf áhafnar Týs á Miðjarðar­hafi og viðtölum við fórnar­lömb á vergangi í Ungverja­landi og Líbanon fengu landsmenn mikils­verða innsýn inn í erfiða ferð flótta­manna í leit að öryggi.

Tilnefningarnar voru eftir­farandi.

Viðtal ársins 2015

Helgi Bjarnason, Morgun­blaðinu.

Fyrir viðtal við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrra­sumar. Þresti Leó tókst fyrir snarræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björgunar­tæki brugðust gersam­lega og fær Helgi einstæðar lýsingar Þrastar Leó á hugar­ástandi þremenninganna á meðan þeir biðu björgunar.

Reynir Traustason, Stundinni.

Fyrir viðtal við Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunar­fræðing sem sökuð var um manndráp af gáleysi. Reynir gerir lífs­hlaupi Ástu Kristínar góð skil og fær viðmælanda til að tala mjög opinskátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að viðhalda lífs­viljanum.

Snærós Sindra­dóttir, Frétta­blaðinu.

Fyrir viðtal við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífs­reynslu. Einar segir á einlægan hátt frá örlaga­deginum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slasaður frá hildar­leiknum. Snærós segir áhrifa­mikla sögu manns og dregur fram mikla þraut­seigju, góða mannkosti og kærleika.

Umfjöllun ársins 2015

Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, frétta­stofu RÚV.

Fyrir umfjöllun um flóttamanna­vandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónar­horni á björgunar­störf áhafnar Týs á Miðjarðar­hafi og viðtölum við fórnar­lömb á vergangi í Ungverja­landi og Líbanon fengu landsmenn mikils­verða innsýn inn í erfiða ferð flótta­manna í leit að öryggi.

Helgi Seljan, Kastljós RÚV.

Fyrir umfjöllun um nauðganir, áreitni og ofbeldi gagnvart þroska­hömluðum konum. Ljóstrað var upp um sinnu­leysi yfirvalda sem héldu ekki hlífiskildi yfir konunum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og hunsuðu kvartanir. Af virðingu og með áhrifa­ríkum hætti var saga kvennanna sögð og sjónar­miði þeirra komið á framfæri.

Kristjana Björg Guðbrands­dóttir og Viktoría Hermanns­dóttir, Frétta­blaðinu.

Fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðar­áætlun stjórn­valda. Fréttaskýringaröð þeirra varpaði ljósi á vaxandi mansals­vanda hér á landi þar sem einstaklingar eru misnotaðir í kynferðis­legum tilgangi, til nauðungar­vinnu eða í glæpa­starfsemi.

Blaðamanna­verðlaun ársins 2015

Hörður Ægisson, DV.

Fyrir skýra og greina­góða umfjöllun um slitabú föllnu bankana, vogunar­sjóðina sem þá keyptu sem og útgöngu­samninga þeirra við íslensk stjórn­völd. Hörður hefur upplýst stöðu mála af djúpri þekkingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóðar­búið.

Ingibjörg Kjartans­dóttir, Stundinni.

Fyrir fjöl­breytta og mikilvæga umfjöllun um kynbundið ofbeldi. Í fjölmörgum greinum gaf Ingibjörg þolendum kynbundins ofbeldis og kynferðis­brota vettvang að tjá sig um sína upplifun af brotunum, upplýsti um hve víða í samfélaginu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórnar­lömb að leita réttlætis vegna þeirra

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morgun­blaðið/mbl.is.

Fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flótta­menn og starfs­menn flóttamanna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Rannsóknar­blaða­mennska ársins 2015

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni.

Fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um fjárhagsleg tengsl Illuga Gunnars­sonar menntamála­ráðherra og eignarhalds­félags hans OG Capital við fyrir­tækið Orka Energy. Í ljós komu verulegir hagsmuna­árekstrar vegna samstarfs­samnings íslenskra og kínverskra stjórn­valda í orkumálum sem Orka Energy var aðili að og ráðherrann ritaði undir.

Kolbeinn Tumi Daðason 365 miðlum.

Fyrir uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglu­manna með störf lögreglu­fulltrúa í fíkni­efnadeild og alvarlegar ásakanir samstarfs­félaga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkniefna­heiminn. Upphaf umfjöllunarinnar var tálbeitu­aðgerð við Hótel Frón sem fór út um þúfur.

Magnús Halldórsson Kjarnanum.

Fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Lands­bankans í Borgun í lokuðu söluferli og vísbendingar um að hlutur Lands­bankans hafi verið seldur á undir­verði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hagsmunum eigenda sem er almenningur í landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár