Hæsta viðbúnaðarstig í Frakklandi

Dagurinn hefur verið sérkenni­legur. Skuggi hryðju­verka liggur yfir landinu. Í Gex, litlum, friðsælum bæ þar sem ég bý, ekki langt frá Lyon, eru allt í einu undarlegir lögreglu­bílar á sveimi. Þótt að sólin skíni og allt virðist leika í lyndi er stemningin einhvern veginn breytt. Það er ókyrrð í loftinu. Fólk á förnum vegi ræðir sín á milli: „Er þetta að gerast aftur?“ Og svo er það blóðbaðið í Túnis. Ætlar þetta engan endi að taka?

Öll öryggis­gæsla í kringum Lyon og nágrenni hefur verið hert í kjölfar árásarinnar á gasvinnslu­stöðina í Saint-Quentin Fallavier sem er í 40 kílómetra fjarlægð frá Lyon. Þar var maður afhöfðaður og einhverjir særðust. Einn er í haldi lögreglu grunaður um ódæðið. Hann er sagður hafa keyrt á bíl inn í verksmiðjuna. Forseti Frakk­lands, Francois Hollande, segir þetta vera hryðju­verk og að tilgangurinn hafi verið að sprengja upp verksmiðjuna. Lögreglu­yfirvöld hafa sagt að hinn látni hafi verið kaup­sýslumaður úr nágrenninu. Höfuð hans var hengt upp á hlið gasverksmiðjunnar með arabískum áletrunum. Talið er víst að morðinginn sé íslamskur öfgamaður.

Ráðamenn franska ríksins hafa brugðist hratt við og hert alla öryggis­gæslu og hækkað viðbúnaðastig í botn í kringum Lyon og nágrenni. Innan­ríkis­ráðherrann, Bern­ard Cazeneu­ve, mætti á staðinn í morgun og greindi fjöl­miðlum frá því að fáni íslamska ríksins hefði fundist rétt hjá morð­staðnum. Það liggur í svörum frönsku ráðherranna að þetta sé enn ein stríðs­yfirlýsing Íslamska ríksins við Frakkland. Og að við því verði brugðist.

Hryðjuverkadagur

Á sama tíma berast hryllilegar fréttir frá Túnis: hryðjuverka­árásin á baðströndinni kostaði 27 manns lífið; mann­skæðasta árás sem gerð hefur verið í landinu í langan tíma. Margir hinna látnu voru erlendir ferðamenn. Í janúar síðast liðnum létust 17 manns í árásum öfgamanna í París. Tilgangur árásarinnar í morgun virðist vera sá sami og þá: að vekja upp ótta og tortryggni í garð múslima til þess að þeir einangrist enn frekar í Frakk­landi og að ungt fólk gangi síðar til liðs við öfga­samtaka á borð við Íslamska ríkið. Yfirvöld gáfu til kynna í vor að hert eftirlit með grunuðum hryðju­verkamönnum hefði leitt til þess að fjöldi árása hefði verið afstýrt á þessu ári.

Einn besti vinur sex ára sonar míns er múslimi. Á leið frá skólanum í dag spjallaði ég aðeins við móður hans. Hún var miður sín yfir þessum fréttum: „Þetta er bara hryllilegt. Það er erfiðara að vera múslimi eftir svona árás. Þessir menn eru að eyði­leggja allt fyrir okkur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár