Enn lækka lægstu húsnæðislánavextir – Nú orðnir 1,64 prósent

Munurinn á þeim verð­tryggðu vöxtum sem sjóðs­fé­lögum Almenna líf­eyr­is­sjóðs­ins bjóð­ast og þeim vöxtum sem sjóðs­fé­lögum Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna bjóð­ast er nú 38 pró­sent. Vextir Lands­bank­ans eru tvisvar sinnum hærri en hjá Almenna.

Mikill munur er orðinn á þeim lánakjörum sem standa íslendingum til boða. Þar skiptir til að mynda máli í hvaða lífeyrissjóð viðkomandi er að borga.
Mikill munur er orð­inn á þeim lána­kjörum sem standa íslend­ingum til boða. Þar skiptir til að mynda máli í hvaða líf­eyr­is­sjóð við­kom­andi er að borga. Mynd: Pexels

Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur lækkað verð­tryggða breyti­lega vexti sína aftur, úr 1,77 pró­sent í 1,64 pró­sent. Það eru lang­lægstu ver­tryggðu vextir sem eru í boði fyrir íslenska lán­taka á mark­aðnum í dag, en Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn lánar sjóðs­fé­lögum sínum fyrir 70 pró­sent af kaup­verði. Vextir hans eru t.d. 38 pró­sent lægri en hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna og helm­ingur þeirra vaxta sem eru í boði hjá Lands­bank­anum fyrir sömu teg­und lána. Lands­bank­inn er þó sá við­skipta­banki sem býður bestu verð­tryggðu vext­ina.

Verð­bólga, sem hefur áhrif á verð­bætur sem greið­ast af verð­tryggðum lánum, er sem stendur 3,2 pró­sent.

Vaxta­breyt­ingar á breyti­legum verð­tryggðum lánum hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðn­um, sem býður sjóðs­fé­lögum sínum upp á lán fyrir allt að 70 pró­sent af kaup­verði á hús­næði, eru ákveðnar 15. hvers mán­að­ar. Þær voru því ákveðnar um helg­ina. Vext­irnir taka mið af með­al­á­vöxtun á skulda­bréfa­flokki Íbúð­ar­lána­sjóðs HFF150434 að við­bættu 0,75 pró­sent álag­i.

Verzlunarmenn ákváðu að breyta um aðferð

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins sem hefur verið leið­andi á meðal líf­eyr­is­sjóða í end­ur­komu þeirra á hús­næð­is­lána­mark­að, var með sama fyr­ir­komu­lag. Þ.e. vextir lána hans voru ákvarð­aðir í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­­ar­­kröfu sama skulda­bréfa­flokks og hjá Almenna, að við­bættu álagi. Á und­an­­förnum árum hafa við­­skipti með þau bréf dreg­ist veru­­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­­ar­krafan hefur dreg­ist mikið sam­­an.

Afleið­ing þess var sú að vextir Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna lækk­uðu mjög mikið á skömmum tíma. Í lok maí voru þeir orðnir 2,06 pró­sent.

Þá ákvað stjórn sjóðs­ins að breyta því hvernig vextir yrðu ákvarð­að­ir. Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa skulda­bréfa­flokks­ins myndi stýra vaxta­stíg­inu var ákveðið að stjórn sjóðs­ins myndu ein­fald­lega ákveða þá. Þeir voru í kjöl­farið hækk­aðir í 2,26 pró­sent og þar eru þeir enn þann dag í dag. Sjóð­ur­inn lánar einnig fyrir 70 pró­sent af kaup­verði, alveg eins og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn.

Almenni hélt áfram að lækka vexti

Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur ekki breytt sinni aðferð­ar­fræði. Í dag eru verð­tryggði vextir sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna geta fengið tæp­lega 38 pró­sent hærri en vext­irnir sem sjóðs­fé­lögum Almenna bjóð­ast.

Ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafði áhrif. VR, sem skipar fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í sjóðn­um, ákvað að skipta þeim öllum út fyrir nýja og bar fyrir sig trún­að­ar­brest vegna vaxta­hækk­un­ar­inn­ar.

Vext­irnir hafa þrátt fyrir það ekki lækkað eftir að ný stjórn tók við störfum og skipti með sér verkum.

Tvisvar sinnum hærri vextir hjá ríkisbankanum

Birta líf­eyr­is­sjóður býður upp á næst lægstu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina, eða 1,97 pró­sent. Sá sjóður lánar hins vegar ein­ungis fyrir 65 pró­sent af kaup­verði og lán hans því val­mögu­leiki fyrir afmark­aðri hóp betur settra en hjá sjóðum sem lána hærra hlut­fall.

Stapi líf­eyr­is­sjóður býður sínum við­skipta­vinum upp á 2,06 pró­sent breyti­lega verð­tryggða vexti en hann lánar meira en flestir líf­eyr­is­sjóðir, eða fyrir 75 pró­sent af kaup­verði. Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn lán­aðar síðan á 2,15 pró­sent vöxtum og fyrir 70 pró­sent kaup­verðs og í fimmta sæti á list­anum yfir hag­stæð­ustu breyti­legu verð­tryggðu lánin situr Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna.

Hinir stóru líf­eyr­is­sjóð­irnir, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (2,3 pró­sent vextir) og Gildi (2,61 pró­sent vextir) hafa einnig yfir­gefið kapp­hlaupið um hag­stæð­ustu vext­ina. Þeir eru, ásamt Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, lang­fjöl­menn­ustu og fjár­sterk­ustu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Sá við­skipta­banki sem býður skap­leg­ustu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina er Lands­bank­inn, þar sem hægt er að fá 70 pró­sent lán á 3,25 pró­sent vöxtum. Það næstum tvisvar sinnum hærri vextir en bjóð­ast hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum. Vextir bæði Íslands­banka og Arion banka eru því rúm­lega tvisvar sinnum hærri en hjá Almenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár