Hagnaður sjávarútvegs þrefaldaðist milli ára en afkoma tæknifyrirtækja breyttist lítið

Tekjur íslenska við­skipta­hag­kerf­is­ins, án fjár­mála­starf­semi og lyfja­fram­leiðslu, juk­ust um 18 pró­sent í fyrra og langt umfram verð­bólgu, sem var 5,1 pró­sent. Það er þriðja mestu aukn­ingu á tekjum hag­kerf­is­ins síðan árið 2002.

Hagnaður í sjávarútvegi var 89 milljarðar króna í fyrra.
Hagnaður í sjáv­ar­út­vegi var 89 millj­arðar króna í fyrra. Mynd: Skjáskot/SFS

Heild­ar­tekjur í við­skipta­hag­kerf­inu, án fjár­mála­starf­semi og lyfja­fram­leiðslu, juk­ust um 18 pró­sent á milli 2020 og 2021 og voru 5.071 millj­arðar króna í fyrra. Um er að ræða þriðju mestu aukn­ingu á tekjum hag­kerf­is­ins síðan árið 2002. Tekj­urnar hafa aldrei verið jafn miklar í krónum talið og þær voru vel umfram verð­bólgu, sem mæld­ist 5,1 pró­sent í fyrra. Afkoman í við­skipta­hag­kerf­inu í heild var jákvæð um 674 millj­arða króna, sem var 500 millj­örðum krónum betri afkoma en árið áður.

Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku. Rekstrar- og efna­hags­reikn­ing­arnir eru unnir úr skatt­fram­tölum rekstr­ar­að­ila og telja tæp­lega 35 þús­und aðila árið 2021 með um 114 þús­und laun­þega. Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar er tekið fram að tölur fyrir árið 2021 séu bráða­birgða­tölur og að þær verði upp­færðar við næstu útgáfu. Gögnin inni­halda ein­göngu þá aðila sem skilað hafa skatt­fram­tali.

Þeir geirar sem eru und­an­skildir í úttekt Hag­stof­unnar áttu líka gott ár í fyrra. Allir stóru bank­­arnir þrír; Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, högn­uð­ust til að mynda sam­an­lagt um 81,2 millj­­arðar króna í fyrra. Það er um 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020.

Fasteignaviðskipti skiluðu mestum hagnaði

Sá geiri sem skil­aði mestum hagn­aði var fast­eigna­mark­að­ur­inn. Hagnaður af fast­eigna­við­skiptum í fyrra var 178 millj­arðar króna, enda hækk­aði hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 18,4 pró­sent á árinu 2021. Sú þróun hefur haldið áfram á þessu ári og á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2022 hækk­aði verðið um 18,5 pró­sent. Því má búast við enn meiri hagn­aði af fast­eigna­við­skiptum í ár en á síð­asta ári. Hagnaður vegna fast­eigna­við­skipta var hins vegar tvö­faldur hagn­aður þess geira sem var með næst mestar heild­ar­tekjur sam­kvæmt úttekt Hag­stof­unnar.

Alls áttu 71 ein­stak­lingar og 382 lög­að­ilar sex íbúð­ir eða fleiri, 155 ein­stak­lingar og 101 lög­að­ilar áttu fimm íbúðir og 579 ein­stak­lingar og 165 lög­að­ilar áttu fjórar íbúð­ir í lok síð­asta árs. Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem átti þrjár íbúðir var 2.974 og fjöldi lög­að­ila sem áttu sama magn íbúða var 285. Þá áttu 16.501 ein­stak­lingur og 688 lög­að­ilar tvær íbúð­ir.

Það sem af er árinu 2022 hefur fjöldi þeirra íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina slíka auk­ist um 735, og hlut­­falls­­lega um 0,2 pró­­sent­u­­stig af heild­ar­­í­­búð­­ar­­eign. Nú eru 14,6 pró­­sent allra íbúða í eigu ein­hverra sem eiga fleiri en eina íbúð. Ef farið er 15 ár aftur í tím­ann, til árs­ins 2006, þá var það hlut­­fall 10,6 pró­­sent og fyrir árið 2003 var það ætið undir tveggja stafa tölu, allt niður í 8,1 pró­­sent árið 1994.

Hagnaður í sjávarútvegi þrefaldaðist

Í tölum Hag­stof­unnar kemur fram að tekjur sjáv­ar­út­vegs hafi auk­ist um 12 pró­sent milli ára og verið 419 millj­arðar króna. Hagn­að­ur­inn í grein­inni þre­fald­að­ist milli ára og var 89 millj­arðar króna. Engin grein utan fast­eigna­við­skipta skil­aði meiri hagn­aði en sjáv­ar­út­vegur á síð­asta ári. Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar segir að aukn­ing­una megi „helst rekja til almennra fram­fara í rekstri; auk­inna tekna sam­fara hlut­falls­lega lægri kostn­aði, jákvæðrar afkomu af fjár­magnsliðum og bættrar afkomu dótt­ur­fé­laga.“

Laun­þegum í sjáv­ar­út­vegi fækk­aði um eitt pró­sent á árinu 2021 en laun hækk­uðu um átta pró­sent, eða hlut­falls­lega mun minna en hagn­aður geirans milli ára. Þá lækk­uðu lang­tíma­skuldir í hlut­falli af eigin fé um fimm pró­sentu­stig sem þýðir að fjár­magns­kostn­aður dróst umtals­vert saman. Til við­bótar má nefna að stórir aðilar í sjáv­ar­út­vegi fjár­magna sig að stóru leyti ann­ars staðar en á Íslandi og í öðrum myntum, á mun betri kjörum en bjóð­ast hér­lendis. Þeir gera auk þess upp í helstu við­skipta­myntum sínum en greiða starfs­fólki að uppi­stöðu laun í íslenskum krónum.

Ekki stökk í afkomu tæknitengdra fyrirtækja

Sér­stak­lega er vakin athygli á því í umfjöllun Hag­stof­unnar að, ólíkt því sem þekkt­ist sums staðar erlendis, sást ekki mikið stökk í afkomu tækni­t­engdra greina þótt tekj­urnar hafi auk­ist jafnt og þétt í gegnum far­ald­ur­inn frá 2019 til 2021. Tækni- og hug­verka­iðn­aður, sem var þriðja stærsta atvinnu­grein á Íslandi, skil­aði 55 millj­arða króna hagn­aði og átta pró­sent vexti í tekjum árið 2021. Hátækni­þjón­usta og upp­lýs­inga­tækni og fjar­skipti voru á svip­uðu reiki með um 27 millj­arða króna hagnað hvor og um 10 pró­sent vöxt í tekjum. „Afkomu­aukn­ing­una mátti helst rekja til kostn­að­ar­hag­kvæmni en launa­kostn­aður hækk­aði minna hjá tækni­grein­unum en í við­skipta­hag­kerf­inu í heild sinni auk þess sem fjöldi laun­þega var lítið breyttur. Efna­hags­staða hátækni­þjón­ustu breytt­ist lítið en í tækni- og hug­verka­iðn­aði og upp­lýs­inga­tækni og fjar­skiptum juk­ust skuldir umfram eigið fé um 11 pró­sent ann­ars vegar og 4 pró­sent hins vegar á milli ára.“

Mikil áhersla hefur verið á að styðja við tækni- og hug­verka­iðnað á Íslandi á und­an­förnum árum. Áætl­­aðir árlegir styrkir úr rík­is­sjóði til nýsköp­un­­ar­­fyr­ir­tækja vegna rann­sókna og þró­unar hafa farið úr 1,3 millj­­arði króna í 13,8 millj­­arða króna á átta árum.

Ferðaþjónustan fimmta stærsta greinin

Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var mikil áhersla lögð á efna­hags­að­gerðir til að halda ferða­þjón­ust­unni lif­andi og í þeim ham að hún gæti tekið hratt við sér þegar losn­aði um ferða­tak­mark­anir. Það hvernig til tókst mun að mestu koma fram á þessu ári, 2022.

Í fyrra skil­uðu hins vegar ein­kenn­andi greinar ferða­þjón­ustu tapi upp á tæp­lega 3,6 millj­arða króna, sem að miklu leyti mátti rekja til bágrar afkomu í flug­rekstri. Icelandair Group, stærsta flug­fé­lag lands­ins, tap­aði þannig 13,6 millj­örðum króna í fyrra og PLAY tap­aði 2,9 millj­örðum króna.

Þetta var þó tölu­verður við­snún­ingur frá fyrra ári en tap ferða­þjón­ust­unnar nam þá um 89 millj­örðum króna.

Þrátt fyrir hlut­falls­lega mikla tekju­aukn­ingu hjá ferða­þjón­ust­unni gætti áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins enn og var greinin ein­ungis sú fimmta stærsta árið 2021 eftir að hafa verið næst stærst 2019. Heild- og smá­sölu­verslun, tækni- og hug­verka­iðn­aður og sjáv­ar­út­vegur voru allar stærri sé miðað við heild­ar­tekjur árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár