Jákvæð áhrif staðla á norrænt efnahagslíf

Samkvæmt nýrri rannsókn hefur aukin notkun staðla jákvæð áhrif á efnahags­lega þróun á Norður­löndum.

Samkvæmt nýrri rannsókn, sem framkvæmd var á árunum 2017 til 2018, hefur aukin notkun staðla jákvæð áhrif á efnahags­lega þróun á Norður­löndum. Rann­sóknin var gerð af norsku rannsóknar­fyrirtæki, Menon, í samstarfi við Oxford Research og Félags­vísinda­stofnun Háskóla Íslands og náði til tæplega 1200 fyrir­tækja á öllum Norður­löndum. Þetta er í fyrsta sinn sem rannsókn á þýðingu staðla og efnahags­legum ávinningi af notkun þeirra er gerð á Norður­löndum.

Í henni kemur fram að notkun staðla hafi stuðlað að 39 prósent framleiðni­aukningu og 28 prósent aukningu lands­framleiðslu á árunum 1976 til 2014. Á vefsíðu Staðla­ráðs Íslands segir að útreikningar sýni að 0,7 prósent árleg framleiðni­aukning meðal norrænna fyrir­tækja sé til komin vegna staðla­notkunar.

Enn fremur segir að 73 prósent svarenda telji ávinning af notkun staðla meiri en kostnaðinn við innleiðingu þeirra og 85 prósent svarenda segi notkun staðla leiða til trausts og öryggis meðal viðskipta­vina.

Starfrækt er sérstak Staðlaráð á Íslandi og samkvæmt vefsíðu ráðsins vinna sjö starfs­menn þar. Á síðunni segir jafnframt að staðall sé opinbert skjal ætlað til frjálsra afnota. Í staðli sé að finna reglur, leið­beiningar eða skilgreiningar sem miða að því að tryggja tiltekna virkni, að hlutir passi og að þeir skili því sem af þeim er krafist. Samning staðla byggist á því að hagsmuna­aðilar komi sér saman um hvað sé hæfilegt, eðlilegt, góðar starfs­venjur og í takt við tímann. Ákveðnar reglur séu viðhafðar um samningu og samþykkt staðla, sem og þátttöku við gerð þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár