BSRB: Stjórnvöld þurfa að hafa hraðar hendur

Að mati BSRB eru til­lögur átaks­hóps stjórn­valda í hús­næð­is­málum vel unnar og gott inn­legg í umræð­una. Nú þurfi stjórn­völd að hafa hraðar hendur og fjár­magna til­lög­urnar og tryggja að þær nái fram að ganga.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
Sonja Ýr Þor­bergsdóttir for­maður BSRB Mynd: Aðsend mynd

Tillögur átaks­hóps stjórn­valda í hús­næð­is­málum eru vel unnar og eru gott inn­legg í umræð­una að mati BSRB. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Þar segir jafn­framt að ástæða sé til að fagna þeirri sam­stöðu sem náðst hefur um aðgerðir. Nú þurfi stjórn­völd að hafa hraðar hendur og fjár­magna til­lög­urnar og tryggja að þær nái fram að ganga.

„Mik­il­vægt er að fylgt verði eftir til­lögum um áfram­hald­andi upp­bygg­ingu almennra íbúða og að ríki og sveit­ar­fé­lög auki fjár­veit­ingar í stofn­fram­lög á næstu árum, til dæmis til Bjargs íbúða­fé­lags, sem stofnað var af ASÍ og BSRB. Þá er einnig þörf á því að end­ur­skoða sem fyrst tekju­mörk leigj­enda í almenna íbúða­kerf­inu og að lækka fjár­magns­kostnað þeirra félaga sem standa að upp­bygg­ingu þar til að tryggja fram­gang kerf­is­ins. Þá er jákvætt að átaks­hóp­ur­inn tekur undir áherslur BSRB um stuðn­ing við önnur íbúða­fé­lög sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

BSRB telur mik­il­vægt að byggt sé í sam­ræmi við þörf­ina hverju sinni. Til þess þurfi að efla upp­lýs­inga­öflun svo hægt sé að sjá hversu margar og hvernig íbúðir séu í bygg­ingu hverju sinni. „Út frá því má áætla betur þörf­ina á næstu árum og koma í veg fyrir eins­leita upp­bygg­ingu dýr­ari íbúða. Eins og ítrekað hefur verið bent á und­an­farið skiptir miklu að það hús­næði sem byggt er henti tekju­lægri hópum á vinnu­mark­aði,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Gefur von um að húsnæðisþörf ólíkra hópa verði mætt

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir að nú hafi full­trúar stjórn­valda, sveit­ar­fé­laga og heild­ar­sam­taka launa­fólks og atvinnu­rek­enda sam­ein­ast um hvernig eigi að bregð­ast við upp­söfn­uðum skorti á íbúðum sem leitt hefur til mik­illar verð­hækk­unar á íbúða- og leigu­mark­aði og hús­næðisó­ör­yggis. „Það gefur okkur von um að hús­næð­is­þörf ólíkra hópa verði mætt. Það á að vera for­gangs­verk­efni stjórn­valda að hús­næð­is­kostn­aður lækki og að tryggt verði nægi­legt fram­boð á hús­næði svo að fólk hafi raun­veru­legt val um hvort það eigi eða leigi hús­næði,“ segir hún.

Hún segir það vera mjög jákvætt að hús­næð­is­málin séu loks­ins komin á dag­skrá og það sé ekki síst verka­lýðs­hreyf­ing­unni að þakka. „Afrakstur umfangs­miklar vinnu liggur nú fyrir og mik­il­vægt að unnið sér hratt að útfærslum til­lagn­anna því verk­efnið skiptir fjöl­marga gríð­ar­legu máli. Alltof stór hluti launa of margra fer nú í hús­næð­is­kostnað og BSRB leggur áherslu á unnið sé hratt og vel að lækkun hans. Að sama skapi þarf að auka fram­boð svo að allir eigi kost á því að búa í við­un­andi hús­næði á við­ráð­an­legu verði,“ segir Sonja.

Óuppfyllt íbúðaþörf á landinu öllu á bilinu fimm til átta þúsund íbúðir

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið kemur fram að skýrsl­unnar hafi verið beðið með umtals­verðri eft­ir­vænt­ingu enda þykja mögu­legar aðgerðir yfir­valda í hús­næð­is­málum vera lyk­il­breyta í því að höggva á þann hnút sem er til staðar í kjara­við­ræðum. Full­trúar stórra laun­þega­hreyf­inga hafa ítrekað sagt að ríkið verði að koma að borð­inu í þeim við­ræðum með aðgerðir í hús­næðis-, skatta- og bóta­málum ef draga eigi úr þeim launa­kröfum sem fram hafa verið settar í kröfu­gerðum. Því veltur mikið á því hver við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar verða við til­lög­unum.

Í tengslum við vinnu hóps­ins var unnin grein­ing á þörf fyrir íbúðir á lands­vísu. Nið­ur­staðan var sú að óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu sé nú á bil­inu fimm til átta þús­und íbúðir. Mikil upp­bygg­ing sé hins vegar fyr­ir­huguð á næstu árum og er áætlað að um tíu þús­und íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Það muni skila því að íbúða­þörf muni minnka, en verði samt sem áður um tvö þús­und í byrjun árs 2022.

Fyrir liggur að mikið af þeim íbúðum sem nú eru í bygg­ingu henta ekki þeim hópum sem eru í mestum vand­ræðum á hús­næð­is­mark­aði, þ.e. tekju- og eigna­lágum. Til merkis um það er til að mynda stór hluti lít­illa íbúða sem eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hverfum þar sem fer­metra­verð er hvað hæst. Í sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem fer­metra­verð er lægra eru hins vegar byggðar stærri íbúðir, sem henta við­kvæm­asta hópnum ekki heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár