Mynd: Bára Huld Beck

Svona ætlar ríkisstjórnin að leysa húsnæðisvandann

Átaks­hópur for­sæt­is­ráð­herra um bætta stöðu á hús­næð­is­mark­aði hefur skilað 40 til­lögum til úrbóta. Þær fela m.a. í sér aukin stofn­fjár­fram­lög í almenna íbúða­kerfið og auknu sam­starfi um frek­ari upp­bygg­ingu hús­næðis fyrir tekju­lága.

Átaks­hópur sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði hefur skilað af sér til­lögum. Þær voru kynntar á frétta­manna­fundi í Hann­es­ar­holti klukkan 14 í dag. Skýrsl­unnar hefur verið beðið með umtals­verðri eft­ir­vænt­ingu enda þykja mögu­legar aðgerðir yfir­valda í hús­næð­is­málum vera lyk­il­breyta í því að höggva á þann hnút sem er til staðar í kjara­við­ræðum. Full­trúar stórra laun­þega­hreyf­inga hafa ítrekað sagt að ríkið verði að koma að borð­inu í þeim við­ræðum með aðgerðir í hús­næðis-, skatta- og bóta­málum ef draga eigi úr þeim launa­kröfum sem fram hafa verið settar í kröfu­gerðum. Því veltur mikið á því hver við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar verða við til­lög­unum.

Í tengslum við vinnu hóps­ins var unnin grein­ing á þörf fyrir íbúðir á lands­vísu. Nið­ur­staðan var sú að óupp­fyllt íbúða­þörf á land­inu öllu sé nú á bil­inu fimm til átta þús­und íbúðir. Mikil upp­bygg­ing sé hins vegar fyr­ir­huguð á næstu árum og er áætlað að um tíu þús­und íbúðir verði byggðar á árunum 2019 til 2021. Það muni skila því að íbúða­þörf muni minnka, en verði samt sem áður um tvö þús­und í byrjun árs 2022.

Fyrir liggur að mikið af þeim íbúðum sem nú eru í bygg­ingu henta ekki þeim hópum sem eru í mestum vand­ræðum á hús­næð­is­mark­aði, þ.e. tekju- og eigna­lágum. Til merkis um það er til að mynda stór hluti lít­illa íbúða sem eru í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hverfum þar sem fer­metra­verð er hvað hæst. Í sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem fer­metra­verð er lægra eru hins vegar byggðar stærri íbúðir, sem henta við­kvæm­asta hópnum ekki heldur.

Hópurinn hóf störf 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann skip­uðu full­trúar heild­ar­sam­taka á vinnu­mark­aði, full­trúar sveit­ar­fé­laga og full­trúar for­sætis-, fjár­mála- og efna­hags- og félags­mála­ráðu­neytis. Formenn hóps­ins voru Anna Guðmunda Ingv­ars­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Íbúða­lána­sjóðs, og Gísli Gíslason, hafn­ar­stjóri Faxa­flóa­hafna. 

Til­lög­urnar sem hóp­ur­inn setur fram eru 40 tals­ins í sjö mis­mun­andi flokkum. Að uppi­stöðu er um að ræða til­lögur sem hafa áður komið fram í umræð­unni um hús­næð­is­vand­ann, annað hvort form­lega eða óform­lega, eða eru þegar komnar í fram­kvæmd að ein­hverju leyti. Hér að neðan verða til­lögur hvers flokks raktar sér­stak­lega.

Almennar íbúðir

Almenna íbúða­kerfið er til­raun til að end­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­lega hús­næð­is­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­legum íbúðum fækk­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Almennar íbúðir fá stofn­fram­lög sam­kvæmt lögum og til­gangur þeirra er að auka hús­næð­is­ör­yggi efna­minni fjöl­skyldna. Hug­myndin er að skapa fram­boð af íbúðum sem hægt er að leigja þannig að kostn­að­ur­inn verði ekki umfram 25 pró­sent af tekjum.

Í skýrsl­unni kemur skýrt fram að hjá Bjargi íbúða­fé­lagi, sem er stór­tæk­ast í upp­bygg­ingu almennra íbúða, sé það þannig að umsækj­endur séu margir hverjir það tekju­lágir að það mark­mið náist ekki. Til að ýta hús­næð­is­kostn­aði þeirra niður fyrir fjórð­ung af tekjum þá þarf annað hvort hag­kvæm­ari fjár­mögnun á upp­bygg­ingu hús­næð­is­ins eða að hækka stofn­fram­lagið.

Tillögur hóps­ins í þessum flokki eru nokkrar. Hann leggur til að að ríki og sveit­ar­fé­lög auki stofn­fram­lög sín til almennra íbúða á næstu árum, að verk­efni sem eru í námunda við góðar almenn­ings­sam­göngur verði sett í for­gang við ráð­stöfun slíkra fram­laga, að lög­festa skyldu sveit­ar­fé­laga til að taka þátt í upp­bygg­ingu á almennum leigu­í­búðum og að ráð­stafa í skipu­lagi fimm pró­sent af bygg­inga­magni á nýjum reitum til upp­bygg­ingar á félags­legu leigu­í­búða­hús­næði., að tekju­mörk þeirra sem geta nýtt sér almenna íbúða­kerfið verði end­ur­skoðuð og muni taka mið af tveimur lægstu tekju­fimmt­ungum, að fjár­magns­kostn­aður stofn­fram­laga verði lækk­aður, að stærri hluti þeirra komi til útgreiðslu við sam­þykkt umsóknar og að stofn­fram­lags­höfum verði heim­iluð að fjár­magna sig með útboði sér­tryggðra skulda­bréfa.

önnur uppbygging fyrir tekjulága

Þá verður leitað eftir sam­starfi stétt­ar­fé­laga, Samtaka atvinnu­lífs­ins og líf­eyr­is­sjóða um fjár­mögnun á hús­næð­is­fé­lag­inu Blæ, sem er óhagn­að­ar­drifið leigu­fé­lag sem stofnað var af ASÍ og BSRB til að tryggja fram­boð á við­un­andi hús­næði á við­ráð­an­legu verði fyrir milli­tekju­hópa til leigu eða kaups.

Engin útfærsla er þó lögð til um hvernig það félag verði fjár­magnað en gert er ráð fyrir því að óhagn­að­ar­drifin hús­næð­is­fé­lög verði hluti af upp­bygg­ingu hús­næð­is­mark­aðar á næstu árum, meðal ann­ars með því að koma að upp­bygg­ingu íbúða sem henta úrræðum stjórn­valda um sér­tækar aðgerðir til að auð­velda ungu og tekju­lágu fólki að kaupa sér íbúð­ar­hús­næði.

Leiguvernd

Um 35 þús­und heim­ili á Íslandi eru á leigu­mark­aði og heim­ilum sem eru á honum fjölg­aði um 60 pró­sent milli áranna 2006 og 2016 á meðan að heild­ar­fjöldi heim­ila í land­inu jókst um 14 pró­sent. Því liggur fyrir að þeim sem eru á leigu­mark­aði hefur fjölgað gríð­ar­lega á örfáum árum og flestir þeirra sem þar eru myndu helst ekki vilja vera á þeim mark­aði.

Ástæða þess er tví­þætt: ann­ars vegar er hús­næð­is­ör­yggi mun minna á leigu­mark­aði en eigna­mark­aði og hins vegar hefur leigu­verð hækkað mikið á und­an­förnum árum sem hefur komið verst við tekju­lægstu hópa sam­fé­lags­ins. Þá hópa sem þurfa að vera á leigu­mark­aði.

Tillögur átaks­hóps­ins miða að því að auka leigu­vernd og tryggja þar með örugg­ari leigu­markað. Hann leggur til að ákvæði húsa­leigu­laga verði end­ur­skoðuð þannig að rétt­ar­staða leigj­enda verði bætt, að hafið verði fræðslu­á­tak um rétt­indi og skyldu leigj­enda og leigu­sala, að áhersla verði lögð á skrán­ingu leigu­samn­inga í opin­bera gagn­runna, að sveigj­an­leiki í útleigu á hluta hús­næðis verði auk­inn, veita sveit­ar­fé­lög um heimil til að breyta flokkun íbúða og auka stuðn­ing við hags­muna­sam­tök leigj­enda.

Skipulags- og byggingarmál

Hópurinn telur að stór­auka þurfi sam­vinnu stjórn­valda og ann­arra sem koma að skipu­lags-, bygg­ingar- og hús­næð­is­málum, meðal ann­ars með því að auka þátt raf­rænnar stjórn­sýslu. Þá þurfi að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir til að lækka bygg­ing­ar­kostnað og að sveit­ar­fé­lögum verði gert heim­ilt að setja skil­yrði um hlut­fall leigu­hús­næðis líkt og þekk­ist í Danmörku. Í skýrsl­unni segir að fyrir liggi „að tals­verður fjöldi fólks býr við óvið­un­andi aðstæður í ósam­þykktu og óskráðu hús­næði og heim­il­is­leysi hefur auk­ist til muna. Nauð­syn­legt er að bregð­ast við þess­ari stöðu og í því skyni er lagt til að heim­ildir í lögum fyrir búsetu­úr­ræði sem geti gagn­ast til skamms tíma verði auknar“.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði starfshópinn.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði starfs­hóp­inn.

Hópurinn leggur til að mynd­aður verði sam­starfs­vett­vangur stjórn­valda og ann­arra hags­muna­að­ila til að auka yfir­sýn yfir skipu­lags- og bygg­ing­ar­mál og raf­ræna stjórn­sýslu, að ráð­ist verði í ein­földun á reglu­verki skipu­lags- og bygg­ing­ar­mála, að hið flókna ferli á breyt­ingum á deiliskipu­lagi verði ein­faldað, að sveigj­an­leiki í deiliskipu­lagi og skipu­lags­málum verði auk­inn, að ákvæði bygg­ing­ar­reglu­gerðar verði færð nær því sem þekk­ist á Norð­ur­lönd­unum og að hönn­un­ar­gögnum verði skilað raf­rænt, til dæmis í gegnum bygg­ing­ar­gátt.

Þá er lagt til að mat á þörf fyrir rýni hönn­unar og fram­kvæmda­eft­ir­lit verði látið styðj­ast við ákveðna flokkun mann­virkja, að komið verði á útvistun bygg­inga­eft­ir­lits að fyr­ir­mynd Norð­manna, að í skipu­lags­lög­gjöf verði skil­greint og heim­ilt að útbúa íbúð­ar­hús­næði til skamm­tíma­nota á athafna­svæðum, að end­ur­greiðsla virð­is­auka­skatts af vinnu á verk­stað verði aukin í 100 pró­sent og að sveit­ar­fé­lögum verði tryggðar heim­ildir í lögum til að gera kröfu um að allt að 25 pró­sent af bygg­ing­ar­magni sam­kvæmt nýju deiliskipu­lagi verði fyrir almennar íbúðir, félags­legar íbúðir eða aðrar leigu­í­búðir.

Samgöngur

Hópurinn kemst að þeirri nið­ur­stöðu að það þurfi að huga að hag­kvæmri sam­göngu­þjón­ustu með auknu og betra fram­boði á almenn­ings­sam­göngum. ÞAð dragi úr umhverf­is­á­hrifum, kostn­aði við bíla­stæði og sam­göngu­kostn­aði íbúa.

Hann leggur því til að upp­bygg­ing leigu­í­búða fyrir tekju­lága taki fyrst og fremst mið af þörfum fjöl­skyldna og ein­stak­linga með til­liti til atvinnu og hag­kvæmni búsetu, að upp­bygg­ingu borg­ar­línu verði hraðað í ljósi mik­illar upp­bygg­ingar íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vaxta­svæðum á næstu árum, að fram­kvæmdum á stofn­brautum umhverfis höf­uð­borg­ar­svæðið verði hraðað, að gjald­svæði almenn­ings­sam­gangna á vaxt­ar­svæðum verði sam­ræmd og ein­földuð og að tek­inn verði upp sér­stakur sam­göngupassi sem veittur sé náms­mönnum og leigj­endur undur tekju- og eign­ar­mörkum almenna hús­næð­is­kerf­is­ins.

Ríkislóðir

Hópurinn horfir, líkt og aðrir hafa áður gert, til Keldna og Keldna­holts, stórs land­svæðis innan borg­ar­marka Reykja­víkur sem er í eigu rík­is­ins, sem þró­un­ar­svæðis fyrir íbúð­ar­byggð.

Hann leggur til að ríkið og Reykja­vík­ur­borg nái sam­komu­lagi um að hefja skipu­lagn­ingu Keldna­lands, m.a. með mark­mið um félags­lega blöndun, og semji í fram­haldi um eign­ar­hald og fram­kvæmdir. Tekið verði mið af því að hefja skipu­lagn­ingu á land­inu á árinu 2019 og að til bygg­ingar komi sam­hliða öðrum áfanga Borg­ar­línu.

Upplýsingamiðlun

Að lokum leggur hóp­ur­inn til að utan­um­hald og söfnun upp­lýs­inga um hús­næð­is­mál verði bætt. Þær upp­lýs­ingar liggi nú og víða og séu oft ósam­an­burð­ar­hæfar eða óað­gengi­legar.

Lagt er til að sam­starf opin­berra stofn­ana sem safna slíkum upp­lýs­ingum verði aukið, að notkun bygg­ing­ar­gáttar Mann­virkja­stofn­unar verði gerð að laga­skyldu, að stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög leggi sér­staka áherslu á vinnslu hús­næð­is­á­ætl­ana og að hafið verði átak til að safna upp­lýs­ingum um fjölda óskráðra íbúða og að hag­rænir hvatar sem leiða til þess að eig­endur óskráðra íbúða sjái sér haf í því að íbúð komi fram í opin­berum skrán­ingum verði skil­greindir.

Þá e lagt til að lög­festar verði bygg­ing­ar­gáttar Mann­virkja­stofn­unar verði gerð að laga­skyldu, að skil­grein­ingar á mats­stigum og bygg­ing­ar­stigum verði yfir­farnar með ein­földun í huga og að almennar hús­næð­iskann­anir á lands­vísu verði reglu­bund­inn þáttur í upp­lýs­inga­öflun hins opin­bera sem hægt verði að leggja til grund­vallar við þarfa­grein­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár