Þingstubbur hefst á miðvikudag – Dagskráin niðurnegld

Alþingi kemur aftur saman á morgun en um er að ræða svo­kall­aðan þing­stubb sem mun ljúka með atkvæða­greiðslu á mánu­dag­inn.

Alþingi mun koma sam­an á morgun til þess að ræða frum­vörp og þings­álykt­un­ar­til­lög­ur er varða þriðja orku­pakk­ann og breyt­ingu á raf­orku­lög­um. Um er að ræða svo­kall­aðan þing­stubb en sam­komu­lag um þing­lok náð­ist þann 18. júní síð­ast­lið­inn. Það gerð­ist eftir að saman náð­ist milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og Mið­flokks­ins um hvernig haldið yrði á frek­ari umfjöllun um þriðja orku­pakk­ann.

Til stendur að at­kvæða­greiðsla um málið fari fram næsta mánu­dag og verður þá þingi frestað að nýju. Nýtt þing kemur saman þann 10. sept­em­ber næst­kom­andi.

Farið var yfir stöð­una á fundi þing­flokks­for­manna fyrr í mán­uð­inum og dag­skrá nið­ur­negld en samið hefur verið um að umræður um málin standi ekki lendur en til klukkan 20 á morgun og á fimmtu­dag­inn.

Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans er búist við því að umræður og atkvæða­greiðsla muni fara fram sam­kvæmt áætlun enda sé búið að meitla ræðu­tím­ann „í stein“.

Í fyrra­málið fá tals­menn þing­flokk­anna tíu mín­útur hver og verða andsvör leyft. Við tekur hefð­bundin umræða sem ætlað er að ljúki klukkan 20 um kvöldið. Á fimmtu­dag­inn verða þrjú mál tengd orku­pakk­anum rædd saman; það er mælt verður fyrir þeim öllum í einu. Eins og áður segir fer atkvæða­greiðsla fram næst­kom­andi mánu­dag.

Nokkrir þing­menn sem Kjarninn hafði sam­band við segja að ákveðin þreyta sé í fólki og hlakki þau til að ljúka þessum þing­stubbi.

Telur æskilegra að hafa lengri tíma í umræður

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að hann teldi að æski­legra hefði verið að hafa lengri tíma í umræður en þing­stubbur­inn gerir ráð fyrir.

„En það er búið að semja um þann tíma sem fer í umræð­una. Svo nú bindi ég fyrst og fremst vonir við það að þing­menn stjórn­ar­liðs­ins hlusti á bak­landið í eigin flokkum. Hlusti á sína flokks­menn og áhyggjur þeirra. Ég vona að í stað þess að halda því fram að ekk­ert nýtt hafi komið í ljós, leyfi sér að skoða stað­reynd­irnar og taki afstöðu út frá því,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár