Bjarni: Stjórnmálamenn eiga ekki að tryggja öllum sömu stöðu í lífinu

Fjár­mála­ráð­herra segir það ekki hlut­verk þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar að leggja af slag­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins: „Stétt með stétt“. Vandi jafn­að­ar­manna er sá að trúa því að hægt sé að byggja sam­fé­lag þar sem stjórn­völd tryggja öllum jafna útkomu í líf­inu.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Hlutverk stjórn­mála­manna er ekki að reyna að tryggja öllum nákvæm­lega sömu stöðu í líf­inu sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í svari við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

„Við höfum byggt hér upp stétt­laust sam­fé­lag. Þar sem jöfn­uður er meiri en í nokkru öðru rík­i,“ sagði Bjarni í fram­boðs­ræðu sinni á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um síð­ustu helgi.

Jóhann Páll spurði Bjarna frekar út í þessa full­yrð­ingu sína á þingi í dag og vís­aði í slag­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá stof­nárum hans fyrir nærri hund­rað árum.

„Hér á 20. öld­inni varð til stjórn­mála­flokkur, var­fær­inn Íhalds­flokkur, sem sagði: „Stétt með stétt“ og við­ur­kenndi þar með, athugið það, við­ur­kenndi stétta­skipt­ingu í íslensku sam­fé­lagi. Þessi flokkur horfð­ist í augu við vand­ann, stétta­skipt­ing­una, en kall­aði eftir sam­stöðu þvert á stéttir. Þessi var­færni íhalds­flokkur er ekki til. Nú segja Sjálf­stæð­is­menn ekki lengur: Stétt með stétt, heldur segja þeir að Ísland sé stétt­laust sam­fé­lag,“ sagði Jóhann Páll.

Í fram­hald­inu benti hann á að á síð­asta ári voru þrír útgerð­ar­menn á Íslandi með þrjá millj­arða króna hver í fjár­magnstekjur.

„Það eru þús­und­föld árs­laun öryrkja,“ sagði Jóhann Páll, sem spurði Bjarna í fram­hald­inu tveggja spurn­inga og sagð­ist ekki hafa áhuga á svörum í formi gini-stuðla eða mæl­inga á tekju­jöfn­uði. „Ég er að tala um stétta­skipt­ingu, ég er að tala um fólk hérna.“

Spurn­ing­arnar voru svohljóð­andi:

  1. Telur ráð­herr­ann að öryrk­inn og stór­út­gerð­ar­mað­ur­inn til­heyri sömu stétt?
  2. Fæðist barn öryrkj­ans inn í sömu stétt og barn útgerð­ar­manns­ins? „Trúir hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra því að þessi börn fái sömu tæki­færin og til­heyri sömu stétt? “

Fólk hafi jöfn tækifæri til að blómstra

Bjarni hóf svar sitt á því að segja að vand­inn við marga jafn­að­ar­menn sé meðal ann­ars sá að fólk trúir því að það sé hægt og skyn­sam­legt að byggja sam­fé­lag þar sem stjórn­völd tryggja öllum jafna útkomu í líf­inu. Hann sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn leggja áherslu á að fólk hafi jöfn tæki­færi til að blómstra.

Bjarni sagði þá sem vilja halda því fram að stétta­skipt­ing ríki á Íslandi vilji ekki, líkt og Jóhann Páll, ræða um gini-stuðla eða raun­veru­lega útkomu.

„Hvað er ann­ars betur til vitnis um að okkur hafi tek­ist að tryggja góðan jöfnuð í sam­fé­lag­inu sem við búum í en sú stað­reynd að hvergi í heim­inum ríkir meiri jöfn­uður en á Íslandi?“ spurði Bjarni, en sagði þeirri stað­reynd vera hafnað og í stað­inn spurt hvort það geti verið að til sé fólk í ólíkri stöðu í sam­fé­lag­inu.

Bjarni sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki vera að reka stjórn­mála­stefnu sem þyk­ist geta, eins og jafn­að­ar­menn að jafn­aði gera, tryggt öllum sömu nið­ur­stöðu í líf­inu.

„Það er hinn stóri mis­skiln­ingur hátt­virts þing­manns og jafn­að­ar­manna almennt og margra vinstri­manna, að það sé skyn­sam­legt að reyna það af hálfu stjórn­valda að stoppa þá sem eru að skara fram úr, skera nógu mikið af þeim til þess að afhenda öðrum sem hafa of lítið þannig að útkoman á end­anum verði jöfn. Þetta er ótrú­lega döpur nálgun á hlut­verk stjórn­valda.“

Bjarni sagð­ist hins vegar geta glatt Jóhann Pál með því að segja: „Þetta fólk er ekki í sömu stöðu og við stjórn­mála­menn­irnir eigum ekki einu sinni að reyna að tryggja öllum nákvæm­lega sömu stöðu í líf­inu.“

Fjarstæðukennd fullyrðing um stéttlaust samfélag

Jóhann Páll sagði það ekki nema von að Bjarni lendi í vand­ræðum með full­yrð­ingu sína um að Ísland sé stétt­laust sam­fé­lag.

„Hún er fjar­stæðu­kennd. Það er ekki furða að hann sé á harða­hlaupum undan eigin orðum en hann verður bara að una því að talað sé um stétta­skipt­ingu á Alþingi Íslend­inga.“

Jóhann Páll vís­aði í gögn frá land­lækni sem sýna að 30 ára karl­maður, sem er ein­vörð­ungu með grunn­skóla­próf, vænst þess að lifa fimm árum skemur en jafn gam­all maður með háskóla­próf. „Er þetta til­viljun eða er þetta einmitt áminn­ing um að Ísland er víst stétt­skipt sam­fé­lag?“ spurði Jóhann Páll.

Hann vís­aði jafn­framt í gögn frá OECD sem sýna að helm­ingur erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi er undir fátækt­ar­mörkum en samt í laun­aðri vinnu. „Við þurfum að fara til Banda­ríkj­anna eða Sviss til að finna sams konar hlut­fall. Er þetta til­viljun eða kannski einmitt áminn­ing um að Ísland er stétt­skipt sam­fé­lag, að það er eilífð­ar­verk­efni að draga úr þess­ari stétta­skipt­ingu, að við eigum ekki að afneita henni og við­halda henni eins og hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra gerir? Við eigum að draga úr henni og milda hana,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Bjarni sagði það ekki koma í hlut Jóhanns Páls að leggja af slag­orð Sjálf­stæð­is­manna, „stétt með stétt“.

„Það er bara rangt hjá hátt­virtum þing­manni að við höfum aflagt það slag­orð okkar. Stað­reyndin er samt sú að allar tölur sýna okkur að við höfum náð meiri árangri í því að tryggja stétt­laust sam­fé­lag heldur en nokk­urt annað þjóð­ríki. Ekki nóg með það heldur eru kjör þeirra sem minnst hafa á Íslandi ein­hver þau bestu sem fyr­ir­finn­ast innan OECD og innan Evrópu,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár