Þingmaður fékk netfang upp á 53 stafbil

Nýr þing­maður Pírata biðlar til for­seta Alþingis að beita sér fyrir því að þingið „þurfi ekki að beygja sig undir óþarfa duttl­unga stjórn­sýsl­unnar“.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata.
Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Arndísi Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur þing­manni Pírata, og öðrum nýjum þing­mönnum, var á dög­unum úthlutað net­fangi frá Alþingi. Arndís Anna fékk net­fangið arndis.anna.kristinardottir.gunnarsdottir@althingi.is en undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag gagn­rýndi hún lengd net­fangs­ins.

„Ég hef sjálf oft um ævina átt í tölvu­póst­sam­skiptum við þing­menn og hef þá sent póst á net­föng eins og helgihrafn@althingi.is, andresingi@althingi.is eða birgir@althingi.is. Már var hins­vegar úthlutað net­fang­inu arndis.anna.kristinardottir.gunnarsdottir@althingi.is – heil 53 staf­bil. Tölvu­póst­fang sem er lengra en með­al­tölvu­póstur,“ sagði hún.

Þegar Arndís Anna óskaði eftir því að fá þessu breytt var henni tjáð að nýjar reglur frá „ein­hverri nefnd í fjár­mála­ráðu­neyt­inu kveði á um að net­föng þing­manna og starfs­fólks þings­ins skuli mynduð með þessum hætti héðan af“.

Reglurnar þjóna engum tilgangi

Þing­mað­ur­inn benti á að það að full­trúar á þingi væru aðgengi­legir væri mik­il­vægur þáttur í lýð­ræð­inu.

„Þingmenn eru ekki starfs­menn stjórn­sýsl­unnar, sem starfa nafn­laust í hennar nafni og eiga ekki að þurfa að þola óþarfa ágang frá almenn­ingi. Þingmenn eru ekki starfs­menn þings­ins, sem einnig eiga að njóta verndar í störfum sínum.

Þingmenn eru full­trúar almenn­ings í lög­gjaf­ar­sam­kundu þjóð­ar­innar. Af því leiðir að þing­menn eiga að vera eins aðgengi­legir og kostur er, að virtri lág­marks­per­sónu­vernd, sem einnig er afar tak­mörkuð fyrir fólk í slíkri opin­berri stöðu. Reglan þjónar í ofaná­lag engum til­gangi og leysir vanda­mál sem er ekk­ert,“ sagði hún.

Arndís Anna sagði jafn­framt að þetta væri hugs­an­lega lít­ill próf­steinn á sjálf­stæði lög­gjaf­ar­sam­kundu þjóð­ar­innar en próf­steinn engu að síður. „Ég vil því biðla til for­seta að beita sér fyrir því að Alþingi þurfi ekki að beygja sig undir óþarfa duttl­unga stjórn­sýsl­unnar, sem í ofaná­lag stríða gegn þeim mik­il­væga þætti lýð­ræð­is­ins, að full­trúar þjóð­ar­innar á Alþingi séu almenn­ingi eins aðgengi­legir og kostur er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár