Blóðbað í Chicago - Sjö drepnir um helgina, þar af einn sjö ára drengur

Að minnsta kosti 40 manns særðust og sjö féllu í skot­árásum sem áttu sér stað í Chicago-borg um helgina, en Bandaríkja­menn fögnuðu þjóð­hátíðardegi sínum á laugar­daginn, þann 4. júlí. Frétta­stöðin CNN greinir frá málinu.

Um er að ræða tímabilið frá morgni föstudags til síðdegis á sunnudag, en á meðal þeirra sem létu lífið um helgina í Chicago var sjö ára drengur. Hann varð fyrir byssukúlu sem var ætluð föður hans, sem er hátt­settur klíku­meðlimur í borginni. Faðir hans hafði verið hand­tekinn 45 sinnum og var með langa sakaskrá. Feðgarnir voru að fylgjast með flugelda­sýningu á þjóð­hátíðar­daginn þegar þeir og aðrir viðstaddir lentu skyndi­lega í byssu­kúlnaregni.

Lögreglu­yfirvöld í Chicago hafa undan­farin ár átt í harðri baráttu við klíkur í suður­hluta borgarinnar, sem er fátækasta svæði vindasömu borgarinnar við Michigan-vatn. Chicago er með hættulegri borgum Banda­ríkjanna og með eina hæstu morð­tíðnina.

„Kerfið okkar er bilað“


Í suð­ur­hluta borg­ar­innar er byssu­eign mjög útbreidd og hefur lög­regla ráð­ist í sér­stakt átak til að fækka byssum á götum borg­ar­innar. Frá því á föstu­dags­morgun hafa lag­anna verðir hald­lagt eitt skot­vopn á hverri klukku­stund.

„Kerfið okkar er bilað, og við þurfum að gera við það,“ hefur CNN eftir lögreglu­stjóranum Garry McCarthy. „Glæpamenn óttast ekki réttar­kerfið, og því þarf að breyta. Við verðum að hefta flæði skotvopna til borgarinnar. Ef þeir óttast ekki viðurlögin að vera með ólöglegt skotvopn, þá er eitthvað að.“

Þrátt fyrir blóðuga þjóðhátíðar­helgi í Chicago, voru skot­árásirnar 64 talsins á sama tímabili í fyrra. Þá slösuðust 69 og fimmtán létu lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár