Hlutabréf í Evrópu taka dýfu - Grískir bankar lokaðir

Hlutabréfa­markaðir í Evrópu tóku dýfu við opnun í morgun vegna stöðunnar í Grikk­landi. Mikil óvissa ríkir um lendingu á skulda­vanda Grikkja en samninga­viðræðum við önnur evruríki um frekari neyðarlán var slitið á laugardag. Í kjölfarið tilkynnti Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, að málið, og samnings­tillögur lánardrottna, fari í þjóðar­atkvæði þann 5. júlí næst­komandi.

Í London féll hlutabréfa­vísitalan um tvö prósent við opnun markaða og í Þýska­landi féll DAX vísitalan um ríflega þrjú prósent. Þróunin er sú sama og víða í Asíu fyrr í dag, þar sem Nikkei vísitalan í Japan hafði lækkað um nærri þrjú prósent. Evran hefur einnig átt undir högg að sækja og veikst gagnvart helstu gjald­miðlum.


Á vef frétta­síðunnar Business Insider er fjallað um fram­vinduna undir fyrir­sögninni „Evrópskir markaðir fá á baukinn og enginn veit hver sigrar grísku þjóðar­atkvæða­greiðsluna“. Í greininni segir að enginn viti hvernig atkvæða­greiðslan fer né hvað niður­staðan mun hafa í för með sér. Ef gríska þjóðin segir já við samningum lánardrottna, sem þó eru ekki full­mótaðir, myndi það fela í sér uppfyllingu þeirra skilyrða sem í samningunum eru lögð fram, meðal annars mikill niður­skurður hjá hinu opinbera. Með þeirri niður­stöðu þykir það líklegra en ekki að Grikkir haldi áfram í evru­samstarfinu.

What next for #Greece? We put the likelihood at 60% of voters backing the govt's rejection of creditor conditions. http://t.co/GldLpUT1AZ

— The EIU Europe (@TheEIU_Europe) June 29, 2015


Hópur sérfræðinga hjá tíma­ritinu The Economist telur 60 prósent líkur á að grískir kjósendir styðji við ríkjandi stjórn­völd og hafni samningnum. Alls er þó óvíst hvort atkvæða­greiðslan hafi nokkurt gildi þegar uppi er staðið. Hluti af fyrra neyðar­láni Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins til Grikk­lands fellur á gjalddaga á þriðjudag og það er óvíst að gjalddaga verði frestað svo auðveldlega.


Grísk stjórn­völd tilkynntu í gær að bankar í landinu myndu ekki opna í dag og hefur verið ákveðið að þeir verði lokaðir alla vikuna. Einungis verður hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum á meðan lokunin stendur yfir, jafnvirði tæplega níu þúsund króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár