Samningur við Thorsil fallinn úr gildi vegna vanefnda

Engin við­brögð bár­ust frá Thorsil ehf. í kjöl­far þess að stjórn Reykja­nes­hafnar ákvað fyrir ári að segja upp lóða- og hafn­ar­samn­ingi vegna van­efnda. Fyr­ir­tækið hugð­ist reisa fjög­urra ljós­boga­ofna kís­il­ver í Helguvík.

Kísilver Thorsil átti að rísa á lóð í Helguvík samkvæmt samningi við Reykjaneshöfn. Hann er nú fallinn úr gildi.
Kísilver Thorsil átti að rísa á lóð í Helguvík sam­kvæmt samn­ingi við Reykja­nes­höfn. Hann er nú fall­inn úr gildi. Mynd: Batteríið

„Thorsil hafði eitt ár frá upp­sögn til að ganga frá sínum málum. Það var ekki gert og því var upp­sögn lóða­leigu­samn­ings­ins haldið til streitu.“

Þetta segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, um nýlega sam­þykkt stjórnar Reykja­nes­hafnar þar sem segir að litið sé svo á að lóðar- og hafn­ar­samn­ingur við Thorsil ehf. sé úr gildi fall­inn. Thorsil hafði gert samn­ing um lóð við Berg­hóla­braut á iðn­að­ar­svæð­inu í Helguvík þar sem fyr­ir­tækið hugð­ist reisa kís­il­ver.

Í jan­úar árið 2019 hvatti meiri­hluti bæj­ar­stjórnar bæði Arion banka og Thorsil að falla frá öllum áformum um upp­bygg­ingu og rekstur kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík og til að taka frekar þátt í annarri atvinnu­upp­bygg­ingu í sátt við fólkið í sveit­ar­fé­lag­inu og umhverfið.

Reykja­nes­höfn og Thorsil ehf. und­ir­rit­uðu í apríl árið 2014 lóðar- og hafn­ar­samn­ing. Á fundi stjórnar Reykja­nes­hafnar í maí í fyrra var sam­þykkt að segja samn­ingnum upp þar sem fyr­ir­tækið hefði van­efnt samn­ings­skyldur sínar. Í bókun stjórn­ar­innar var rifjað upp að með upp­bygg­ingu kís­il­vers­ins hafi átt að skap­ast „vel launuð störf“ og umsvif við höfn­ina enn­fremur að aukast. Mörg ár séu liðin frá und­ir­skrift en „ekk­ert bólar á fyr­ir­hug­aðri starf­semi“.

Fram kom auk þess í bók­un­inni að fyr­ir­liggj­andi væru samn­ings­við­aukar aðila þar sem kveðið væri á um greiðslu­fyr­ir­komu­lag þeirra gjalda sem inna átti af hendi á grund­velli samn­ings­ins. „Í ljósi þess að greiðslur hafa ekki borist lítur stjórn Reykja­nes­hafnar svo á að Thorsil ehf. hafi van­efnt samn­ings­skyldur sínar. Á tímum óvissu og atvinnu­brests er þörf á allri upp­bygg­ingu til að vega upp á móti óheilla­væn­legri þróun. Stjórn Reykja­nes­hafnar telur ófor­svar­an­legt að bíða enda­laust í óvissu á meðan nýir aðilar óska eftir sam­ræðum um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu.“

Ákveðið var á þessum fundi að segja upp samn­ingnum en sam­kvæmt ákvæði í honum tæki upp­sögnin gildi að ári en hefði engin áhrif ef fyr­ir­tækið efndi samn­ings­skyldur sínar á upp­sagn­ar­frest­inum.

Til­kynn­ing um upp­sögn­ina var send for­svars­mönnum Thorsil 20. maí í fyrra. „Þar sem liðið er rúmt ár frá því að upp­sögn samn­ings var til­kynnt og engin við­brögð hafa borist frá Thorsil ehf. varð­andi upp­sögn­ina og lítur stjórn Reykja­nes­hafnar svo á að ofan­greindur lóðar- og hafn­ar­samn­ingur sé úr gildi fall­inn,“ segir sam­þykkt stjórnar hafn­ar­innar frá því í lok júní í ár.

Samkvæmt starfs­leyfi sem Umhverf­is­stofnun gaf út árið 2017 hefur fyr­ir­tækið heim­ild til að fram­leiða allt að 110 þús­und tonn á ári af hrákísli, allt að 55 þús­und tonnum af kís­il­dufti og 9 þús­und tonnum af kís­il­gjalli í fjórum ljós­boga­ofnum. Árið 2015 sömdu for­svars­menn þess við ann­ars vegar Lands­virkjun um raf­magn til starf­sem­innar og hins vegar Lands­nets um raf­orku­flutn­inga.

Vilja fá að kjósa um Helguvík

Íbúar og stjórn­völd í Reykja­nesbæ eru brennd af reynsl­unni af kís­il­veri United Silicon, sem starf­aði á tíu mán­aða tíma­bili á árunum 2016 og 2017. Verið, sem stóð nærri byggð rétt eins og ver Thorsil myndi gera, var frá upp­hafi gagn­rýnt fyrir fjöl­marga þætti. Bygg­ing­arnar voru hærri og meiri en skipu­lag gerði ráð fyrir og það angr­aði veru­lega fólk með lykt og annarri mengun sem hafði áhrif á heilsu margra. Er slökkt var á eina ljós­boga­ofni kís­il­vers­ins vörp­uðu því margir önd­inni léttar.

Íbúa­sam­tökin And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík voru ötul í bar­áttu sinni gegn því að verið yrði end­ur­ræst sem og frek­ari starf­semi, m.a. Thorsil, á svæð­inu. Í árs­lok 2018 höfðu þau safnað und­ir­skriftum um 2.700 íbúa sem kröfð­ust þess að fá að kjósa um hvort verk­smiðj­urnar fengju að hefja starf­semi.

Kjartan Már bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um fram­hald máls­ins að ekki hafi verið gert ráð fyrir tekjum tengdum Thorsil ehf. í fjár­hags­á­ætl­unum Reykja­nes­hafnar síð­ast­liðin tvö ár, hvorki til skemmri eða lengri tíma.

Í árs­reikn­ingi Reykja­nes­hafnar fyrir árið 2019 segir að í fjár­hags­á­ætlun árs­ins hafi verið gert ráð fyrir tekjum í gegnum lóð­ar­gjöld í tengslum við að upp­bygg­ing á kís­il­veri Thorsil hæf­ist í Helguvík. „Þau áform gengu ekki eftir og liggur ekki fyrir að svo stöddu hvort og hvenær af þeim áformum verður,“ stóð í sam­an­tekt stjórnar og hafn­ar­stjóra.

Hvað fram­haldið í Helguvík varðar segir Kjartan Már Reykja­nesbæ vera að skoða ýmsa mögu­leika fyrir sveit­ar­fé­lagið um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár