Ekki allur munurinn á að kaupa af bankanum eða byggja jafn dýrt hinu megin við götuna

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að þegar upp sé staðið þá haldi hann að nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans, á dýrasta stað í borg­inni, muni vel geta staðið undir sér. Hann sjái þó ekki neina rök­bundna nauð­syn á því að höf­uð­stöðvar bank­ans rísi þar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að í sínum huga sé ekki „allur mun­ur­inn á því hvort að ráðu­neytið hefði keypt hús­næði af Lands­bank­anum í þessu húsi eða byggt hinu megin við göt­una, við Skúla­göt­una, jafn dýrt hús­næði á jafn dýrum stað.“

Þetta kom fram í við­tali hans við Dagmál á mbl.is sem birt var í gær, þegar rætt var um til­lögu sem lögð var fram á rík­is­stjórn­ar­fundi nýverið um að rík­is­sjóður myndi kaupa hluta af nýjum höf­uð­stöðvum Lands­bank­ans á sex millj­arða króna undir utan­rík­is­ráðu­neytið, sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir stýrir, og nýlegt ráðu­neyti háskóla-, nýsköp­unar og iðn­að­ar, sem er undir stjórn Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur.

Hitamál í ríkisstjórninni

Kjarninn greindi frá því 22. júlí síð­ast­lið­inn að til­laga um að kaupa nokkur þús­und fer­metra af hús­næði í svoköll­uðu norð­ur­húsi nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans við Aust­ur­höfn sem nú eru að rísa á sex millj­arða króna hefði verið lögð fram á rík­is­stjórn­ar­fundi í sumar.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var málið tekið upp á nokkrum rík­is­stjórn­ar­fundum í kjöl­farið en and­staða var við kaup á hús­næð­inu á meðal ein­hverra ráð­herra og því eru kaup­in, sem stend­ur, í upp­námi. Um mikið hita­mál er að ræða innan rík­is­stjórn­ar­innar þar sem sumir ráð­herrar hafa keyrt það fast að umrætt hús­næði, eitt það dýrasta sem fyr­ir­finnst á Íslandi, verði keypt undir áður­nefnd tvö ráðu­neyti.

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að kaupin á hinu svo­kall­aða norð­ur­húsi Lands­banka­höf­uð­stöðv­anna hafi verið teiknuð upp í ráðu­neyti Bjarna.

Bankinn gæti farið annað og selt eignina

Bygg­ing höf­uð­stöðva Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hefur verið veru­lega umdeild. Bygg­ingin er að rísa á einni dýr­ustu lóð sem hægt er að byggja á í Reykja­vík og sú máls­á­stæða Lands­bank­ans að hann þyrfti að vera með höf­uð­stöðvar í mið­borg­inni hefur verið dregin veru­lega í efa.

Ákvörð­unin hefur verið rök­studd með því að Lands­bank­inn sé í of mörgum stöðum með starf­semi sína, sem er dreifð víða um mið­borg­ina. Með því að koma öllum á sama stað myndi verða til mikil hag­ræð­ing auk þess sem hægt yrði að selja annað hús­næði bank­ans upp í kostn­að.

Upp­haf­lega var kostn­aður áætl­aður níu millj­arðar króna en hann hefur síðan vaxið upp í tólf millj­arða króna.

Í við­tal­inu við Dagmál sagði Bjarni að þegar upp sé staðið þá haldi hann að Lands­bank­inn muni halda á eign sem geti vel staðið undir sér. Þetta sé lík­lega dýr­asti staður í Reykja­vík til að byggja á og hann sjái ekki neina rök­bundna nauð­syn á því að höf­uð­stöðvar bank­ans rísi þar. „En í stóra sam­hengi hlut­anna, við efna­hag bank­ans, þá er þetta ekki það sem ræður úrslitum um afkom­una. Þetta verður alltaf eign sem á end­anum leiðir kannski til þess að bank­inn fer kannski eitt­hvert annað. Þá mun hann bara selja þessa eign. Ég veit ekk­ert um það. Þetta eru ákvarð­anir sem eru teknar á öðrum vett­vangi en við rík­is­stjórn­ar­borðið.“

Ekkert athugavert við staðsetningu stjórnsýslunnar

Einn af þeim val­kostum sem skoð­aðir hefðu verið fyrir upp­bygg­ingu stjórn­ar­ráðs­ins væri sá að hluti höf­uð­stöðv­anna sem Lands­bank­inn væri að byggja, og ætl­aði sér alltaf að selja eða leigja út, gæti nýst undir ráðu­neyti. „Það hefur verið skoðað og það hafa verið skiptar skoð­anir um það hvort að það væri hent­ugt eða hvort að það væri of dýrt og svo fram­vegis. Auðvitað er stjórn­ar­ráðið alltaf á dýr­ustu reitum Íslands.“

Það væri í sjálfu sér ekk­ert athuga­vert við að stjórn­sýslan væri stað­sett mið­lægt í höf­uð­borg­inni, þar sem dýr­ast er að byggja eða kaupa. „Í mínum huga er ekki allur mun­ur­inn á því hvort að ráðu­neytið hefði keypt hús­næði af Lands­bank­anum í þessu húsi eða byggt hinu megin við göt­una, við Skúla­göt­una, jafn dýrt hús­næði á jafn dýrum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár