Heimavellir hefja sölu íbúða á Hlíðarenda í mars

Leigu­fé­lagið Heima­vellir hyggst hefja sölu á 50 af 164 íbúðum á Hlíð­ar­enda í mars. Hinar fara að óbreyttu í útleigu. Fram­kvæmda­stjóri Heima­valla segir að íbúð­irnar muni verða á hag­stæð­ara verði en gengur og ger­ist.

Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla.
Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Heima­valla. Mynd: Nasdaq Iceland

Leigu­fé­lagið Heima­vellir hyggst hefja sölu nýrra íbúða við Hlíð­ar­enda í mars. Heima­vellir eiga 164 íbúðir á svo­nefndum E-reit en alls verða 178 íbúðir á reitnum full­byggðar. Heima­vellir hyggst selja ríf­lega 50 af 164 íbúðum, hinar fari í útleigu. Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Heima­valla, segir íbúð­irnar sem fara í sölu munu verða á betra verði en gengur og ger­ist um nýjar íbúðir mið­svæðis í Reykja­vík. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Selja 50 af 164 íbúðum

Guð­brandur segir, í sam­tali við Morg­un­blaðið, að um 75 íbúðir af 164 í eigu félags­ins á E-reit komi til afhend­ingar í sumar. Í heild eru íbúð­irnar á E- reit 178, þær skipt­ast þannig að 164 verði í eigu Heima­valla og 14 í eigu Frosta­skjóls ehf. „Við fáum 164 íbúðir afhentar í tveimur áföngum. Þann fyrri í sumar og hinn seinni ári síðar. Húsin eru byggð eins og tvö L sem tengj­ast svo saman. Hlutinn sem verður afhentur í sumar snýr að Hring­braut­inni. Þar eru um 75 íbúðir af þessum 164.“

Heima­vellir hygg­ist selja stærri íbúð­irnar og ætla að selja ríf­lega 50 af þessum 164 íbúðum. Hinar íbúð­irnar fari í útleigu. „Flestar íbúð­irnar sem við seljum eru yfir 75 fer­metrar; þriggja, fjög­urra og fimm her­bergja. Fjöldinn getur breyst þegar líður á árið ef við teljum ástæðu til með því að auka hlut­fall íbúða sem fer í sölu eða leigu,“ segir Guð­brandur.

Hóflegt verðlag

Guð­brandur segir reynslu Heima­valla af fyrri verk­efnum benda til meiri áhuga á stærri íbúðum en minni þegar fer­metra­verð er yfir með­al­lagi. Hann segir aftur á móti að ekki sé búið að ákveða sölu­verð. „Þetta verður hóf­lega verð­lagt miðað við það sem er í gangi í dag,“ segir Guð­brandur. Hann bendir svo á að allar íbúð­irnar á Hlíð­ar­enda verði með bíla­stæði og rúm­góða geymslu í kjall­ara. Ásamt E-reit verða reitir C með 162 íbúðir, D með 142 íbúðir og F með sam­tals nærri 500 íbúðir. Upp­bygg­ing þeirra er mis­jafn­lega langt á veg komin. Fyrsta fjöl­býl­is­húsið á Hlíð­ar­enda­svæð­inu, Arn­ar­hlíð 1, er á svo­nefndum B-reit. Það hús var afhent í fyrra­sumar en sam­kvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins eru enn óseldar íbúðir í hús­inu.

Guð­brandur segir marga bíða eftir íbúðum á Hlíð­ar­enda. Þar sé nátt­úra, mið­borgin og stærstu háskól­arnir í göngu­færi. Veð­ur­sæld sé á svæð­inu. Mikið sé lagt í hönnun húsa og eins­leitni brotin upp með ólíkum fram­hliðum. „Það hafa margir haft sam­band við okkur, ekki síst eldra fólk sem hefur búið lengi mið­svæðis, og spurt um íbúð­irnar.“

Taka afstöðu um hvort að félagið verði afskráð úr kauphöllinni

Fyrir liggur til­laga um félagið Heima­vellir verði afskráð úr kaup­höll­inni en hlut­hafar taka afstöðu til til­lög­unnar á aðal­fundi 15. mars. Heima­vellir er stærsta leig­u­­fé­lagið á almennum mark­aði og það eina slíka sem er skráð í Kaup­höll Íslands. Það átti 1.983 íbúðir í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Heima­vellir til­kynntu til Kaup­hallar Íslands, í nóv­em­ber í fyrra, að félagið hefði ákveðið að selja eignir fyrir alls 17 millj­arða króna á árunum 2018-2020 í stað tíu millj­arða króna líkt og fram hafði komið í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla sem birt var í vor.

Í til­kynn­ing­unni til kaup­hall­ar­innar kom fram að eigna­salan muni „hafa þau áhrif á fjár­hag félags­ins að fjár­bind­ing mun minn­ka, svo og tekjur lækka í sam­ræmi við fækkun eigna. Þannig er gert er ráð fyrir að árs­velta 2019 og 2020 verði ríf­lega 3,5 millj­arðar króna og áætlað að EBITDA hlut­fall félags­ins verði 64 pró­sent á árinu 2019 og hækki í 67-68 pró­sent á árinu 2020.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár