Heimavellir bjóða Heimavelli 900 ehf. til sölu

Leigu­fé­lag á Ásbrú hefur nú verið boðið til sölu.

Heima­vellir hafa boðið Heima­velli 900 ehf. til sölu, en upp­lýs­ingar um félagið og sölu­ferlið hafa verið birtar á vef Lands­bank­ans, sem sér um söl­una. Frestur til að skila inn til­boðum er til 19. febr­úar klukkan 16:00.

Félagið er með umtals­verða leigu­starf­semi á Ásbrú á Suð­ur­nesjum þar sem félagið á og leigir út níu fjöl­býl­is­hús, sam­tals 154 íbúðir.

Tekjur árs­ins 2019 eru áætl­aðar um 272 millj­ónir króna. Mikil tæki­færi geta falist í end­ur­bótum á fjöl­býl­is­hús­unum og fjölgun íbúða, segir í til­kynn­ingu Land­bank­ans.

Eftir sölu á Heima­völlum 900 ehf. munu Heima­vellir hf. áfram leigja út rúm­lega 580 íbúðir á Ásbrú. Heima­vellir er skráð félag, og námu heild­ar­eignir þess félags rúm­lega 58 millj­örðum króna í loka þriðja árs­fjórð­ungs í fyrra.

Eigna­safnið nemur um 3,8 millj­örðum króna, sem er 188 þús­und krónur á fer­metr­ann.

Fast­eigna­mat nemur 4,2 millj­örðum króna árið 2019.

50 ára lán frá Íbúða­lána­sjóði er áhvílandi, um 2,4 millj­arðar króna, og eru 47 ár eftir af þeim láns­tíma.

Leigu­tekjur 2019 eru áætl­aðar um 272 millj­ónir króna en útleigu­hlut­fall eigna nú er um 96 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár